Listviðburður ársins: Laufey, Njála á hundavaði eða glimmergjörningur?

Árið 2023 ólg­aði listin að vanda. Margir og merkir list­við­burðir, af ólíkum toga, voru hér og þar – og út um allt. En hvað stóð upp úr? Nokkrir álits­gjafar nefna hvað þeim þótti telj­ast til tíð­inda.

Margt glitr­aði og skein á lista­sen­unni í ár. Sögu­mað­ur­inn og hesta­bónd­inn Magnús Ólafsson á Sveins­stöðum telur þessa list­við­burði standa upp úr á árinu sem leið: 

Magnús Ólafsson Sögu­skáldið og hesta­mað­ur­inn Magnús Ólafsson.

Listviðburður í tilefni afmælis í Hofi

Óskar Pét­urs­son frá Álfta­gerði var eitt sinn bæj­ar­lista­maður á Akureyri og þeir bræður eru lands­þekktir sem frá­bærir söng­menn. Í til­efni 70 ára afmælis Óskars naut und­ir­rit­aður stór­kostegs list­við­burðar í Hofi á Akureyri. Þessi stund gleym­ist seint, listin réði ríkjum.

Þing­eyra­kirkja í Húna­byggð er í raun til­komu­mikið lista­verk. Byggingu kirkj­unnar lauk árið 1877. Eft­ir­minni­leg stund fyrir nokkrum árum þegar Álfta­gerð­is­bræður sungu þar.

Dúett sem réðst á hornstein íslenskrar menningar

Hjör­leifur Hjart­ar­son og Eiríkur Steph­en­sen skipa dúett­inn Hund í óskilum. Úr Njálsögu gerðu þeir lista­verkið, Njála á hunda­vaði. Þarna ræðst dúett­inn á einn af horn­steinum íslenskrar menn­ingar, sjálfa Njálu. Bráð­fyndið verk hlaðið list …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár