Virt British Museum var opnað 1759 og er eitt stærsta og virtasta menn­ingar – og minja­safn ver­aldar. Mynd: P&PPhoto/Flickr

Maðkur í mysunni hjá British Museum

Á síð­ustu árum hefur um það bil tvö þús­und verð­mætum gripum verið stolið frá British Museum, og það eru ekki fingra­langir gestir sem þar hafa verið að verki. Safn­stjór­inn og aðstoð­ar­safn­stjór­inn brugð­ust ekki við ábend­ingum og eru hættir störfum.

British Museum í London er eitt stærsta og virtasta menn­ingar – og minja­safn ver­aldar. Safnið var opnað árið 1759 og var fyrsta safnið í heim­inum sem opið var almenn­ingi, það hefur að geyma rúmar átta millj­ónir gripa. Ein­hverjir myndu kannski segja að þótt safn­grip­unum hafi fækkað um tvö þús­und sjái ekki högg á vatni. En hver ein­asti hlutur, stór eða smár, er ein­stakur og hefur sögu að segja og því ómet­an­legur.

Í ágúst síð­ast­liðnum greindu breskir fjöl­miðlar frá því að fjöl­margir gripir, lík­lega á bil­inu 1-2 þús­und, í eigu British Museum væru horfnir. Frétt­irnar vöktu athygli en eftir við­tal frétta­stofu Sky sjón­varps­stöðv­ar­innar við danskan list- og forn­muna­sala rataði málið í fjöl­miðla um allan heim. Tveim dögum eftir að við­talið birt­ist sagði safn­stjór­inn Hartwig Fischer af sér og það gerði einnig aðstoð­ar­safn­stjór­inn Jonathan Williams.

List- og fornmunasalinn

Maðurinn sem varð til þess að þjófn­að­ur­inn í safn­inu komst upp heitir Ittai Gradel, 58 ára gam­all Dani. Eftir að hafa lokið jarð­fræði­námi við háskól­ann í Árósum sneri hann sér að sagn­fræði og lauk dokt­ors­gráðu frá Oxford með áherslu á trú­ar­brögð í Róma­veldi hinu forna. Hann vann síðan að rann­sóknum og kennslu við danska og breska háskóla.

Árið 2008 sneri Ittai Gradel við blað­inu, sett­ist að í Rud­købing á Langa­landi og starfar nú þar sem list- og forn­muna­sali. Hann rekur ekki verslun í eig­in­legum skiln­ingi en selur í gegnum við­skipta­sam­bönd, er þekktur í „brans­anum“ og nýtur mik­ils álits. Hann starfar einnig sem ráð­gjafi varð­andi kaup og sölu á list-og forn­munum.

Kannaðist við agat kristal sem boðinn var til sölu

Ittai Gradel hefur árum saman fylgst náið með antik­mark­aðnum og árið 2016 sá hann á net­síð­unni eBay mynd af agat kristal sem honum fannst hann kann­ast við. Eftir skamma leit í bóka­hill­unni á skrif­stof­unni fann hann mynd af þessum sama kristal í bæk­lingi frá British Museum, frá árinu 1926. Krist­al­inn hafði  safnið keypt árið 1814 ásamt mörgum öðrum munum úr safni Charles Townley (1737 – 1805) sem var þekktur safn­ari.  Þegar Ittai Gradel spurð­ist fyrir um krist­al­inn sagð­ist selj­and­inn hafa erft hann eftir afa sinn, sem lést árið 1952. Mynd af krist­alnum hafði birst í bæk­lingi frá British Museum, sú mynd var tekin löngu eftir 1952. Sagan um afann var upp­spuni. Nú voru grun­semdir Ittai Gradel vakn­aðar. Hann hafði reyndar sjálfur keypt, árið 2010 eða 2011, smá­hlut af þessum sama selj­anda fyrir 15 pund (2600 krónur íslenskar). Selj­and­inn sagði að þetta væri eft­ir­lík­ing en Ittai Gradel sá strax að hlut­ur­inn var frá 3. öld eftir Krist. „Ég seldi svo þennan hlut fyrir 2 þús­und pund (350 þús­und íslenskar). Það var greini­legt að selj­and­inn þekkti lítt til forn­gripa“ sagði Ittai Gradel. Þessi til­tekni hlutur var ekki kom­inn frá British Museum.

Ittai Gradel fór nú að velta fyrir sér hvort verið gæti að fleiri hlutir frá British Museum væru á mark­aðnum, ef svo mætti að orði kom­ast. Og hann þurfti ekki að leita lengi áður en hann fann hlut sem kunn­ingi hans sem líka var forn­gripa­sali hafði keypt af sama selj­and­anum og hafði aug­lýst agat krist­al­inn. Kunn­ing­inn átti hlut­inn enn og sendi hann strax til British Museum. Hann átti enn kvitt­un­ina og Ittai Gradel átti líka kvittun fyrir hlut sem hann hafði keypt, kvitt­an­irnar voru frá sama selj­anda. Og það sem meira var, allt benti til að selj­and­inn væri starfs­maður British Museum. 

 Safnið vísaði öllu á bug

Árið 2021 skrif­aði Ittai Gradel aðstoð­ar­safn­stjóra British Museum og vakti athygli á að svo virt­ist sem til­tek­inn starfs­maður safns­ins hefði aug­lýst og selt muni,  sem aug­ljós­lega væru komnir úr geymslum safns­ins. Ittai Gradel til­greindi mun­ina.

Ekkert svar barst og þremur mán­uðum síðar skrif­aði Ittai Gradel annað bréf, að þessu sinni til safn­stjór­ans. Ekki kom svar við því bréfi en skömmu síðar barst svar frá aðstoð­ar­safn­stjór­anum. Þar sagði að safnið hefði farið ítar­lega yfir málið og komið hefði í ljós að allir þeir munir sem Ittai Gradel hefði nefnt væru á sínum stað. „Á kurt­eis­is­legan hátt sagði aðstoð­ar­safn­stjór­inn mér að fara í rass og rófu“ sagði Ittai Gradel. 

Nú fóru hjólin að snúast   

Ittai Gradel er ekki maður sem leggur árar í bát. Seint og um síðir komst hann í sam­band við stjórn­ar­for­mann British Museum. Það gerð­ist þó ekki fyrr en Ittai Gradel hafði hótað að fara með málið í fjöl­miðla. Eftir fund þeirra krafð­ist stjórn­ar­for­mað­ur­inn skýr­inga frá for­stjóra safns­ins. For­stjór­inn brást við með til­kynn­ingu þar sem fram kom að starfs­maður safns­ins hefði verið rek­inn vegna gruns um að hann hefði stolið munum úr geymslum safns­ins. Af til­kynn­ing­unni mátti ráða að það hefði verið safnið sjálft sem upp­götv­aði stuld­inn.

Þetta fór ekki vel í Ittai Gradel sem sagði í við­tölum við breska fjöl­miðla að yfir­stjórn safns­ins hefði reynt að drepa mál­inu á dreif, en safn­stjór­inn sak­aði Ittai Gradel um að halda upp­lýs­ingum leyndum. „Þá var mér nóg boðið“ sagði Ittai Gradel sem sagð­ist hafa lagst í sím­ann og talað í þrjá daga við breska fjöl­miðla. Svo fór að safn­stjór­inn sagði upp og aðstoð­ar­safn­stjór­inn er kom­inn í leyfi. Þá var komið í ljós að í geymslu sem í áttu að vera 942 óskráðir munir úr safni Charles Townley voru aðeins 7 hlutir. 

Heilu fjöllin af óskráðum munum

Í við­tali við breska rík­is­út­varpið, BBC, sagði Ittai Gradel að í geymslum British Museum væru heilu fjöllin (hans orða­lag) af óskráðum munum. Sumir þeirra, eins og safn Charles Townley, hefðu legið í geymslum safns­ins í 200 ár. „Þetta býður hætt­unni heim“ sagði Ittai Gradel.  Hann sagði enn­fremur engan vafa leika á að þetta mál hafi þegar skaðað orðstír safns­ins og sumir vildu kannski kenna honum um. „Ef ég hefði ekk­ert sagt hefði þetta kannski aldrei kom­ist upp. En sam­viska mín kom í veg fyrir að ég léti kyrrt liggja.“

Þess má í lokin geta að skipuð hefur verið opin­ber rann­sókn­ar­nefnd sem þegar hefur tekið til starfa. Fyrsta verk nefnd­ar­innar var að ræða við Ittai Gradel. 

Kjósa
53
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár