Jólahefðir aðila vinnumarkaðarins: Hryllingsmyndir, hreindýr og hrikalega flókin grænmetisbaka

Á nýju ári munu aðilar vinnu­mark­að­ar­ins þurfa að koma sér saman um hvernig skuli skipta kök­unni á milli atvinnu­rek­enda og launa­fólks. En fyrst þarf að halda jólin, með öllu sem því til­heyrir, hefðum og venjum sem hafa lifað með fjöl­skyldum fólks í ára­tugi. Eða ein­hverjum glæ­nýjum siðum. Heim­ildin ræddi um jóla­hefðir við nokkra ein­stak­linga úr hreyf­ingu launa­fólks og röðum sam­taka atvinnu­rek­enda.

<span>Jólahefðir aðila vinnumarkaðarins:</span> Hryllingsmyndir, hreindýr og hrikalega flókin grænmetisbaka
Hefðir Hver hefur sinn sið á jólum. Mynd: Golli

Sumir halda kannski að Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, sé djöfla­dýrk­andi sem haldi ekki upp á jólin. Það er hins vegar ekki rétt. Hún segir fjöl­skyldu sína alltaf hafa tekið jólin alvar­lega.

„Ég er alin upp af miklu jóla­fólki. Það var unnið mikið í des­em­ber og svo voru jólin tekin með trompi,“ segir Sólveig Anna við blaða­mann. „Fram­leiðsla og upp­setn­ing jól­anna er ekk­ert grín,“ segir hún, en bætir við að þar sem afkvæmi hennar séu orðin stór hafi jólin róast frá því sem áður var.

Ein jóla­hefð sem fjöl­skyldan heldur í er að gefa sér tíma til að horfa á kvik­myndir saman, til dæmis að kvöldi jóla­dags. „Um margra ára skeið krafð­ist ég þess að öll Lord of the Rings-tríló­gían væri tekin, en ég þurfti svo að játa mig sigr­aða fyrir nokkrum árum þegar eng­inn nema ég mætti í sófann þegar sýn­ing var að hefj­ast. Það voru allir …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár