Fyrir suma eru jólin tími sorgar

Jólin eru ekki gleði­leg hátíð í lífi sumra og þar getur sorgin haft áhrif. Ína Ólöf Sig­urð­ar­dóttir þekkir bæði missi á með­göngu og maka­missi og starfar sem fram­kvæmda­stjóri Sorg­ar­mið­stöðvar. Syrgj­endur geta haft ýmis­legt í huga þegar sorgin gerir vart við sig yfir hátíð­irnar. Og aðstand­endur þurfa að vera til staðar.

Fyrir suma eru jólin tími sorgar
Vantaði meira afl Ínu fannst vanta vett­vang fyrir ungar ekkjur og ekkla og börn þeirra.Hún stofn­aði því Facebook-hóp í sam­starfi við aðrar ungar ekkjur. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ína Ólöf Sig­urð­ar­dóttir var 25 ára þegar hún átti von á sínu fyrsta barni ásamt eigi­manni sínum, Árna Sig­urð­ar­syni heitnum. Á 21. viku með­göngu misstu þau barnið vegna alvar­legs fóst­ur­galla en þau gáfu litlu stúlkunni sinni nafnið Marín. Ína segir að á þeim tíma sem hún missti Marín hafi eng­inn annar deilt reynslu sem hefði verið henni hjálp­legt og hún nefnir að slík sorg sem með­göngu­missir er fái kannski ekki eins mikið svig­rúm og skiln­ing í sam­fé­lag­inu eins og annar ást­vina­missir. „Ég upp­lifði lít­inn skiln­ing á sorg­inni, pakk­aði henni saman og burð­að­ist svo með hana í mínum bak­poka.“

Ína og Árni eign­uð­ust tvö önnur börn en árið 2012 féll Árni frá eftir langvar­andi veik­indi, ára­tug eftir að Marín litla lést í móð­ur­kviði. „Þegar hann dó ýfð­ist líka upp gamla sorgin; það er mjög algengt að það ger­ist. Þá tók ég ákvörðun um að vinna sem best úr maka­miss­inum og …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár