Einungis tvö fyrirtæki á Íslandi selja eingöngu reyktan og grafinn lax úr landeldi

Stærstu sölu­að­ilar á reyktum og gröfnum laxi hér á landi nota sjó­kvía­eldis- og land­eld­is­lax í fram­leiðslu sína á þessum vörum sem Íslend­ingar borða mikið af á jólum. Tvö af fyr­ir­tækj­unum fyrir norðan nota bara land­eld­is­lax frá Samherja í Öxar­firði en útgerð­ar­fé­lagið er frum­kvöð­ull í land­eldi á lax­fiskum hér á landi.

Einungis tvö fyrirtæki á Íslandi selja eingöngu reyktan og grafinn lax úr landeldi

Tvö fyr­ir­tæki á Íslandi nota bara lax úr land­eldi í fram­leiðslu sína á reyktum og gröfnum laxi. Slíkur lax er vin­sæll á veislu­borðum Íslend­inga yfir hátíð­arnar og borða margir þessar vörur á milli jóla og nýárs: Reykta lax­inn gjarnan með eggja­hræru og grafna lax­inn með þar til gerðri sósu ofan á brauð. Þessi fyr­ir­tæki eru Hnýfill á Akureyri og Betri vörur á Ólafs­firði. 

Sjó­kvía­eldi á eld­is­laxi er orðið umdeild­ara hér á landi en verið hefur vegna slysa sem hafa komið upp í þess­ari atvinnu­grein á síð­ustu árum. Um er að ræða slysa­slepp­ingar hjá bæði Arn­ar­laxi og Arctic Fish og einnig stór­felldan lúsafar­aldur hjá báðum fyr­ir­tækj­unum. Fyrstu fjölda­mót­mælin gegn sjó­kvía­eldi fóru fram á Aust­ur­velli nú í haust. Bæði fyrir þau og í kjöl­far þeirra hefur komið upp umræða um …

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Fæ nýjan og reyktan landeldislax frá Norðanfiski í Bónus og hann er merktur landeldi.
    0
  • LE
    Loftur Eiríksson skrifaði
    Grafni landeldis laxinn frá Hnýfli og Betri vörum er fáanlegur í Nettó en ekki Bónus, Hagkaupum eða Krónunni
    1
    • Hjálmar Pálsson skrifaði
      Hagkaups verslanir selja laxinn frá Hnýfli og Krónan Akureyri
      0
  • GRR
    Gísli Ragnar Ragnarsson skrifaði
    Stærstu seljendur...
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár