Óveður í athugasemdum

Erum við smeyk við að tjá eigin skoð­anir í umræðurót­inu af ótta við að vera dæmd eða jafn­vel gerð upp afstaða – sem stingur í stúf við raun­veru­lega afstöðu okkar? Ungmenni á Norð­ur­lönd­unum við­ur­kenna í könnun að þau láti frekar upp skoð­anir sem þau telja við­ur­kenndar en að segja hug sinn. En hvað með fólk hér á landi? Á sam­fé­lags­miðlum er gíf­ur­yrðum svarað með gíf­ur­yrðum. Getur fæl­ing­ar­máttur þess ógnað tján­ing­ar­frels­inu?

Í súld og flökt­andi jóla­ljósum brugðu tvær blaða­konur af Heim­ild­inni sér á mál­þing í ráð­hús­inu á vegum mann­rétt­inda- og ofbeld­is­varna­ráðs Reykja­víkur um umræðu og tján­ing­ar­frelsi í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi. Kveikja þess var meðal ann­ars að full­trúar ráðs­ins voru nýkomnir af nor­rænni ráð­stefnu, Nordic safe cities, þar sem rædd hafði verið skautun sam­fé­lags­um­ræð­unnar og hættan á að fólk væri í auknum mæli hætt að þora að tjá hugs­anir sínar. Því var ekki úr vegi að velta upp spurn­ing­unni um það hvort getan til að vera ósam­mála fari hratt dvín­andi. Önnur blaða­konan tók þátt í umræðum á mál­þing­inu en báðar voru áhuga­samar og deila þeirri reynslu að hafa verið stefnt vegna orða fyrir dómi. 

Mál­þingið var ágæt­lega sótt, þarna sat fólk á ýmsum aldri og boðið var upp á jarð­ar­berja­djús og sam­lokur frá Joe & the Juice. Formaður áður­nefnds ráðs, Magnús M. Norðdahl, stóð fyrir þessu þingi um tján­ing­ar­frelsið – sem er ein …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár