Íþróttahópur fyrir trans fólk veitir gleði og styrk

Íþrótta­hóp­ur­inn Sterkari saman hefur hist í eitt og hálft ár í íþrótta­húsi Háskóla Íslands. Þar getur trans fólk komið saman og stundað fjöl­breytta hreyf­ingu. „Það eru fáir staðir þar sem maður hefur svona mikið frelsi til að vera í lík­am­anum sínum sem trans mann­eskja,“ segir eitt af skipu­leggj­endum hóps­ins.

Íþróttahópur fyrir trans fólk veitir gleði og styrk
Sterkari Saman Tvö af skipu­leggj­endum íþrótta­hóps­ins Sterkari Saman. Þau hvetja trans fólk til þess að taka pláss og segja öll vel­komin í tíma með hópnum. Mynd: Golli

Fyrir einu og hálfi ári síðan stofn­aði Elí Hörpu Önund­ar­bur íþrótta­hóp fyrir trans fólk. Blaða­kona Heim­ild­ar­innar fékk að mæta á æfingu með hópnum í íþrótta­húsi Háskóla Íslands þann 18. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Þátt­tak­endur mættu stund­vís­lega klukkan 19.00 og tínd­ust inn í sal­inn. And­rúms­loftið var afslappað, þægi­legt og hvetj­andi. Hópurinn mynd­aði hring með æfinga­dýnum og byrj­aði upp­hitun undir leið­sögn Elí. Hán stundar sjálft alls konar hreyf­ingu en fann að sig lang­aði einnig að verja tíma sínum í að gefa til baka í hinsegin sam­fé­lagið.

„Mér fannst ég vera að eyða of litlum tíma í að byggja upp sam­fé­lag, sér­stak­lega í kringum hinseg­in­leika og trans mál­efni. Þá hugs­aði ég: Já, af hverju geri ég ekki íþrótta­hóp fyrir trans fólk, það er örugg­lega gaman. Svo bara byrj­aði ég og tal­aði við Q-félagið, sem er félag hinsegin stúd­enta, og Trans Ísland og fékk þau með mér í að aug­lýsa.“

Tímarnir hafa farið …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár