Nýjasta fjöðrin í hattinn útí rassgati

Björn Teitsson, M.Sc. í borg­ar­fræðum, brá sér í nýju Bón­usversl­un­ina í Garðabæ og rýndi pælandi í ásýnd hennar, arki­tektúr og til­urð. Arki­tektúr nýju Bón­us­búð­ar­innar er að mati hans ein­kenn­andi fyrir svo­kall­aða „Big Box“-verslun.

Nýjasta fjöðrin í hattinn útí rassgati
Fegurð Fallegt sól­ar­lag minnir á ógleym­an­leg ljóð Andra Snæs Magna­sonar úr bók­inni Bón­us­ljóð.

Nýjasta útibú versl­ana­keðj­unnar Bónuss opn­aði fyrir skemmstu í Mið­hrauni í Garðabæ. Nokkra athygli vakti við til­kynn­ingu þar um, að versl­unin væri „lýst upp með LED ljósum sem dregur úr raf­orku­notkun auk þess sem að flestar hill­urnar eru ann­að­hvort smíð­aðar hér á landi eða end­ur­nýttar úr öðrum versl­unum Bónuss.“ Í sömu til­kynn­ingu segir Guð­mundur Mart­eins­son fram­kvæmda­stjóri: „Bónus er ávallt með umhverfið í önd­vegi og reynum við að skilja sem minnst umhverf­is­fót­spor eftir okkur.“ Hér má taka fram, að ef miðað er við Umhverf­is­verð­laun atvinnu­lífs­ins, sem verð­laun­aði árið 2022 bíl­rúðu­plástur sem „umhverf­is­fram­tak árs­ins“, þá ættu þessi Bónus-verð­laun sjálf­sagt til­kall til þeirra verð­launa. Fögnum því sem vel er gert.

Hvatt til mikils aksturs viðskiptavina

Arki­tektúr versl­un­ar­innar ein­kenn­ist af því sem kallað er „Big Box“-verslun, fyr­ir­bæri sem þró­að­ist fyrst í Banda­ríkj­unum og þá í Vestur-Evrópu á eft­ir­stríðs­ár­unum. Það sem ein­kennir slík mann­virki er að þau eru ein­föld í upp­setn­ingu, léttir veggir utan …

Kjósa
75
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SÍF
    Sveinn í Felli skrifaði
    Trixið er náttúrulega að girða stórverslanirnar vel og dyggilega af með umferðarslaufum og mannfjandsamlegum farartálmum, passa uppá að almenningssamgöngur komi þar hvergi nálægt; og á sama tíma að þrengja að hverfisverslunum og fjarlægja aðkomu og stæði fyrir vöruafhendingu og þessháttar.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár