„Fólkið á að vita hverju ég er búinn að lenda í“

Í leik­verk­inu Fúsi – aldur og fyrri störf segir Fúsi sögu sína. Verkið unnu hann og Agnar Jón, frændi hans, saman en þann 3. des­em­ber síð­ast­lið­inn, hlutu frænd­urnir Múr­brjót­inn – verð­laun fyrir að brjóta niður veggi í þágu þroska­haml­aðra. Verð­launin eru veitt á vegum Þroska­hjálpar, einu sinni á ári. Mögulega er þetta raun­veru­legt tíma­móta­verk.

Fúsi og Agnar Jón
Fúsi og Agnar Jón Rætt um sögu Fúsa, vin­áttu frænd­anna og inn­gild­ingu fatl­aðra í leik­húsið. Ljósmynd: Jóhanna Helga Þor­kels­dóttir.

Leik­stjór­inn og leik­ar­inn Agnar Jón Egilsson er æsku­vinur blaða­manns síðan þau voru ell­efu ára. Og alla tíð hefur und­ir­rituð heyrt Agnar mæra Fúsa frænda sinn – sem heitir fullu nafni Sigfús Svein­björn Svan­bergs­son. Þeir frændur eru nánir og und­ir­rituð man líka eftir ein­hverjum skiptum þegar hún reyndi að gera eitt­hvað skemmti­legt með Agnari en hann vildi frekar hanga með Fúsa.

En hver er Fúsi?

Það má heyra í leik­verki um Fúsa, já, leik­ar­ann og lista­mann­inn Fúsa, sem þeir frændur hafa skapað og er sýnt þessa dag­ana í Borg­ar­leik­hús­inu. Svo það var ekki úr vegi að hitta þá í and­dyri Borg­ar­leik­húss­ins og rabba um ævin­týrið.

Að fatlaður listamaður fái vettvang

Múr­brjót­ur­inn er veittur á vegum Þroska­hjálpar, einu sinni á ári, og gleði­efni fyrir frænd­urna að þeir skyldu hljóta hann. „Þetta var stór tutt­ugu ára afmæl­is­há­tíð Listar án landamæra og verð­launa­af­hend­ing Múr­brjóts­ins fór með afmæl­is­há­tíð­inni. Þarna voru …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár