Heimur Asil rifnaði í sundur

Asil Al Masri, sautján ára stúlka sem slas­að­ist alvar­lega í loft­árás Ísra­els­hers segir í sam­tali við Heim­ild­ina að það sé eins og heim­ur­inn hennar hafi rifnað í sundur. For­eldrar hennar, eldri systir, mágur og fimm ára frændi hennar dóu í árásinni. Barn­ungir syst­ur­synir hennar slös­uð­ust. Asil er á spít­ala í Egypta­landi en Suleiman Al Masri, bróðir hennar sem býr á Íslandi, vill fá hana hingað.

Heimur Asil rifnaði í sundur
Asil Al Masri missti for­eldra sína, systur, mág og lít­inn frænda í loft­árásinni. Hún seg­ist lifa í hreinni martröð en hún er alvar­lega slösuð á sjúkra­húsi í Kaíró í Egypta­landi.

Skömmu eftir að loft­árásir Ísra­els­hers hófust í byrjun októ­ber var Asil Al Masri og for­eldrum hennar, þeim Jihad Al Masri og Andera abu Swiss, ráð­lagt að yfir­gefa heim­ili sitt sem er nálægt landa­mærum Ísraels. Suleiman Al Masri, bróðir Asil, sem býr á Íslandi segir við Heim­ild­ina að þau hafi flúið dag­inn sem loft­árás­irnar hófust og leitað skjóls í húsi vina­fólks sem er skammt frá bænum Khan Younis. 
„Þeim var sagt að það ætti að vera öruggt svæði,“ segir Suleiman.

Sagt að þau yrðu örugg í húsi vinafólks 

Hann segir að for­eldrar sínir hafi strax haft sam­band við elstu dóttur sína og beðið hana að koma með fjöl­skyldu sína í húsið sem þeim var sagt að þau ættu að vera örugg í. Dóttir þeirra sem var þrí­tug þegar hún dó hét Asmaa og bjó ásamt eig­in­manni sínum og þremur sonum á aldr­inum tveggja til sjö ára í Rafah. 

Fjöl­skyldan For­eldrar Asil og Suleiman ásamt dótt­ur­sonum sínum. Amir er þarna í fangi ömmu sinnar en þau og pabbi Asil og Suleiman dóu öll í loft­árás Ísra­els­hers 17. októ­ber.

Níu dögum síðar gerði Ísra­els­her loft­árás á hverfið. Það var 17. októ­ber síð­ast­lið­inn. For­eldrar Suleiman og Asil, stóra systir þeirra, mágur og fimm ára syst­ur­sonur þeirra, Amir, dóu öll í árásinni. Mamma þeirra var 58 ára, pabbi þeirra 61 árs og systir þeirra þrí­tug. Asil og syst­ur­synir hennar tveir, þeir Salem sem er sjö ára og Ayham sem er tveggja ára, slös­uð­ust í árásinni. 

 „Ég lifi í hreinni martröð“

Heim­ildin náði í dag tali af Asil Al Masri þar sem hún er á sjúkra­húsi í Kaíró í Egypta­landi. „Ég lifi í hreinni martröð. Það er eins og heim­ur­inn minn hafi rifnað í sundur. Það gerð­ist þennan dag,“ segir Asil en sem fyrr segir er hún 17 ára.


Hún segir að árásin hafi verið gerð án nokk­urs fyr­ir­vara. „Ég var að fara út þegar þeir sprengdu húsið. Ég man ekki mikið en þó það að ég tókst allt í einu á loft og svo man ég öskur. Ég var að öskra og ég hélt að ég hefði heyrt systur mína öskra. Ég komst til hennar og hélt áfram að öskra. Ég var að kalla eftir aðstoð. Svo greip mig ein­hver og sagði mér að systir mín væri dáin. Síðan var ég allt í einu komin út á götu og litlu frændur mínir voru þar og þeir voru líka slas­aðir.“    

Ayham sem er tveggja ára slas­að­ist í árásinni

Syst­ur­synir hennar sem lifðu árás­ina af en slös­uð­ust eru tveggja og sjö ára.  

„Frændi okkar fór með þá á spít­ala en þeir misstu mömmu sína. Pabbi þeirra hefur ekki fund­ist en hann er tal­inn af.“

Asil segir að sjúkra­bílar hafi komið eftir um fimmtán mín­útur.  „Ég man eftir gríð­ar­legum sárs­auka og vissi að ég var lífs­hættu­lega særð.“

Asil var flutt á spít­ala í Khan Younis á Gaza. „Þar fór ég beint í aðgerð. Það þurfti að taka af mér vinstri fót­inn fyrir ofan hné. Það var gert í aðgerð­inni.“ 

Salem sem er sjö ára missti for­eldra sína og fimm ára bróður í árásinni

Nokkrum dögum seinna var Asil flutt á sjúkra­húsið í Kairó þar sem hún er enn. „Þegar ég kom hingað kom í ljós að nokkur bein voru brotin í hægri fæti og líka í vinstri hendi. Þannig að ég fór í aðra aðgerð.“

Suleiman, bróðir Asil segir að systir sín sé alger­lega ein og til standi að senda hana aftur til Gaza þegar bráða­með­ferð er lokið. „Þar á hún engan að.
Frændi okkar sem tók litlu syst­ur­syni okkar að sér fór með þá til Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmanna og þeir eru þar á spít­ala. 

Móðir Ayham lést í árásinni og pabbi hans hefur ekki fund­ist en hann er tal­inn af.


Það er búið að jafna fjöl­skyldu­húsið okkar við jörðu, hún á ekk­ert á Gaza,“ segir Suleiman sem flúði frá Gaza árið 2017 og hefur búið á Íslandi síðan þá. „Ég get ekki farið aftur til Gaza. Ég á engan að þar. Ég er alvar­lega þung­lynd, ég er ein­mana og hrædd. Ég lifi í martröð,“ segir Asil. 

„Svo greip mig ein­hver og sagði mér að systir mín væri dáin“
Asil Al Masri

Ekkert verið hugað að geðheilsu Asil

Spurð hvort hún hafi fengið áfalla­hjálp eða ann­ars konar sál­ræna fyrstu hjálp á spít­al­anum segir hún svo ekki vera. ,,Það er ekk­ert hugað að geð­heilsu minni hér.“ Hún seg­ist ekki vita hvenær hún verði útskrifuð af spít­al­anum. ,,Ég hef ekki fengið nein svör varð­andi það en ég er enn með mikla verki um allan lík­ama. Ég finn meira að segja til í þeim hluta fót­ar­ins sem var tek­inn af.  Læknir hér sagði að þetta séu drauga­verkir.“  

Asil Al Masri með pabba sínum Jihad Al Masri, pabbi Asil og Suleiman var pró­fessor í sagn­fræði. Suleiman segir sög­una vera að end­ur­taka sig því faðir hans hafi misst fjöl­skyldu sína í árás Ísra­els­hers þegar hann var ungur maður.

Suleiman segir að sagan sé að end­ur­taka sig. Pabbi þeirra sem var pró­fessor í sagn­fræði við háskóla í Khan Younis, hafi misst alla fjöl­skyldu sína í árás Ísra­els­hers árið 1967. ,,Hann missti alla fjöl­skyld­una sína og heim­ilið. Hann bjó þá í Beer Sheva sem nú er á ísrelsku yfir­ráða­svæði og flúði eftir árás­ina til Gaza.“  

Suleiman segir að það eina sem geti bjargað systur hans núna sé að hún fái að flytja til hans. Und­ir­skrifta­söfnun er hafin þar sem skorað er á íslensk stjórn­völd að flýta með­ferð máls systk­in­anna þannig að hægt sé að sam­eina þau á Íslandi sem fyrst. Þar segir meðal ann­ars að þrátt fyrir að Asil þurfi langa end­ur­hæf­ingu fái hún aðeins að dvelja til skamms tíma á spít­al­anum í Egypta­landi ,,að bráða­með­ferð lok­inni verður hún send aftur að landa­mærum Gaza; mun­að­ar­laust, heim­il­is­laust, fatlað barn. Ljóst er að bregð­ast þarf skjótt við áður en að þessu kemur.“  

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (8)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • IHÁ
    Ingvar Helgi Árnason skrifaði
    Gleymun ekki að við eigum fyrirmyndarfyrirtækið Össur hf.
    Þeir gætu vonandi lagt þessari stúlku lið.
    0
  • Jón Baldur Þorbjörnsson skrifaði
    Hvar finnur maður undirskriftalistann?
    0
    • María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp skrifaði
      https://island.is/undirskriftalistar/79096027-4c05-4b87-a917-66cc1804ddfc
      0
  • Gudrun Finnbogadottir skrifaði
    Ef við neitum þessari stúlku um hjálp, erum við aumingjar.
    0
    • María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp skrifaði
      https://island.is/undirskriftalistar/79096027-4c05-4b87-a917-66cc1804ddfc
      0
    • R
      ruthogthrainn skrifaði
      Er einhver sem man nú erið á söfnunarreikningum?
      0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Hryllingur! Íslensk stjórnvöld, gerið eitthvað fyrir þetta fólk sem biður um hjálp.
    1
    • María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp skrifaði
      https://island.is/undirskriftalistar/79096027-4c05-4b87-a917-66cc1804ddfc
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár