Mynd: Brendan Smialowski / AFP

Reiðari Trump hefur stuðning til að verða aftur forseti

Þrátt fyrir ákærur um sam­særi gegn lýð­ræð­inu og orð­færi sem þekk­ist meira meðal ein­ræð­is­herra og fas­ista en for­seta Banda­ríkj­anna mælist Donald Trump með mestan stuðn­ing kjós­enda fyrir for­seta­kosn­ingar á næsta ári. NIð­ur­staðan mótar heims­mynd næstu ára.

Nú þegar ár er í næstu for­seta­kosn­ingar Banda­ríkj­anna mælist Donald Trump með mestan stuðn­ing í skoð­ana­könn­unum og ætti, sam­kvæmt þeim, að bera nauman sigur af hólmi gegn Joe Biden, sitj­andi for­seta. Þar virð­ast ekki skipta máli þau fjöl­mörgu dóms­mál og ákærur sem Trump stendur frammi fyrir, meðal ann­ars fyrir til­raunir til að hnekkja úrslitum síð­ustu for­seta­kosn­inga og að fela leyni­gögn rík­is­ins á heim­ili sínu. Orðræða Trumps er orðin her­skárri en áður og ber sömu ein­kenni og ein­ræð­is­sinn­aðir leið­togar hafa beitt, en það hefur ekki minnkað sig­ur­líkur hans.

Hatursorðræða og afmennskun

„Meindýr“ kall­aði Trump and­stæð­inga sína í ræðu sinni í New Hamps­hire-ríki þann 11. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. And­stæð­inga sem hann segir vera „komm­ún­ista, marx­ista, fas­ista og öfga­vinstri fanta“ og að þá beri helst að „upp­ræta“.

Þessi ummæli hans hafa verið harð­lega gagn­rýnd í Banda­ríkj­unum fyrir að bera merki „fasískrar orð­ræðu“ eins og Ruth Ben-Ghiat, pró­fessor við New York-háskóla, komst …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Sigmundur Davíð líkist Trump meir og meir. Það er greinilegt að gera á út á innflytjendaandúð í næstu kosningum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár