„Þetta er einhver skilgreining á geðveiki“

Ritfhöf­und­arnir Bergþóra Snæ­björns­dóttir og Ófeigur Sig­urðs­son gefa bæði út skáld­sögur í ár. Í við­tali við Heim­ild­ina ræða þau um líf sitt, harkið sem fylgir því að vera rit­höf­undur, jóla­bóka­flóðið, börnin sín, und­ir­með­vit­und­ina og bæk­urnar sem eru afrakstur ákveð­innar teg­undar af geð­veiki.

„Þetta er einhver skilgreining á geðveiki“
Harkið og vonin Þau Bergþóra Snæ­björns­dóttir og Ófeigur Sig­urðs­son deila sýn á því sem þau gera í líf­inu. Þau skrifa skáld­sögur og reyna að telja sér trú um að næsta bók verði meist­ara­verkið. Þau lýsa þessu sem ákveð­inni teg­und af geð­veiki. Mynd: Hörður Sveinsson

„Það er hrika­leg nálgun á bók sem maður hefur ekki lesið: Þessi mun breyta lífi mínu,“ segir Ófeigur Sig­urðs­son þar sem hann situr á móti Bergþóru Snæ­björns­dóttur, kollega sínum, og talar um bækur og gildi þeirra. Bergþóra grípur hugs­un­ina á lofti á kaffi­húsi í miðbæ Reykja­víkur: „Já, því þá verð­urðu alltaf fyrir von­brigðum. En kannski þegar ég er að lesa bók, þá getur mér liðið eins og það sé verið að breyta lífi mínu.“  

Þau Bergþóra (B) og Ófeigur (Ó) eru bæði með skáld­sögur í jóla­bóka­flóð­inu í ár og fékk Heim­ildin þau saman í við­tal.

Tíu ár skilja þau að, Bergþóra er fædd 1985 en Ófeigur 1975, og þau þekkj­ast ekki. Bæði eru í sam­búð og á Bergþóra tvö börn en Ófeigur var að eign­ast sitt fyrsta, sem er þriggja mán­aða. Bók Bergþóru heitir Duft en Ófeigs, Far heimur, Far …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár