Katrín María Káradóttir, dósent í fatahönnun við Listaháskóla Íslands, er upphafsmanneskja Misbrigða, sem er verkefni unnið af nemendum í fatahönnun á öðru ári við Listaháskóla Íslands. Verkefnið er í samstarfi við Fatasöfnun Rauða kross Íslands og á heimasíðunni www.lhi.is/misbrigdi má lesa að með því séu rannsakaðar leiðir til að skapa nýjan fatnað úr ósöluhæfum flíkum með þekkingu og aðferðafræði hönnunar. Þannig sé sjónum beint að tísku á Íslandi í tengslum við sjálfbærni.
Þar má einnig lesa þessa yfirlýsingu: Misbrigði er andsvar við vestrænni neyslumenningu og unnið í samstarfi við Rauða krossinn á Íslandi.
Misbrigði hafa staðið að samstarfi við Fatasöfnun Rauða krossins frá upphafi, ásamt Guðbjörgu Rut Pálmadóttur teymisstjóra sem sér um fataverkefni. „Og er allt í öllu hjá fatasöfnuninni en án hennar stuðnings hefði ekki orðið neitt úr þessu,“ segir Katrín María, sem er stödd í Japan þegar hún svarar nokkrum spurningum um Misbrigði – í tilefni …
Athugasemdir