Njósn­ar­inn Lars Findsen, fyrr­ver­andi yfir­maður leyni­þjón­ustu danska hers­ins, skrif­aði bók um málið sem kom út fyrir rúmu ári síðan. Skömmu áður hafði hann verið ákærður en þær ákærur hafa nú verið dregnar til baka. Mynd: AFP

Málið sem er kallað stærsti skandall í danskri réttarfarssögu

Ákæra á hendur þremur mönnum, fyrr­ver­andi ráð­herra, yfir­manni leyni­þjón­ustu hers­ins og starfs­manni leyni­þjón­ustu lög­regl­unnar er að engu orðin, úlf­aldi orð­inn að mýflugu.

Upphaf þessa máls má rekja til 24. ágúst 2020. Þann dag sendi varn­ar­mála­ráðu­neytið frá sér til­kynn­ingu. Til­kynn­ingin var stutt­orð en þar kom fram að þremur dögum fyrr hefði Lars Findsen, yfir­maður leyni­þjón­ustu hers­ins, FE, verið sendur heim. Auk hans hefðu tveir hátt­settir menn emb­ætt­is­ins verið sendir heim og sömu­leiðis Thomas Ahrenkiel, ráðu­neyt­is­stjóri varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins. Ekki fór á milli mála að eitt­hvað alvar­legt bjó að baki. Hér er rétt að nefna að þegar þetta gerð­ist hafði stofn­unin TET (til­sy­net með efterretn­ings­tjenesterne) sem hefur eft­ir­lit með dönsku leyni­þjón­ust­unum skilað varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu langri og ítar­legri skýrslu. Sama dag, 24. ágúst 2020, kom fram í annarri til­kynn­ingu frá varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu að í skýrsl­unni hefði verið greint frá alvar­legum mis­bresti í starf­semi FE. Vitað var að TET hafði um langt skeið unnið að sér­stakri rann­sókn á starf­semi og vinnu­brögðum og TET sendi líka þennan sama dag frá sér stutta frétta­til­kynn­ingu. Þar sagði að FE hefði látið öðrum í té veru­legt magn upp­lýs­inga, eins og það var orðað, um danska rík­is­borg­ara. 

Starf­semi FE snýr að upp­lýs­inga­öflun erlendis, hern­að­ar­legu öryggi og net­ör­yggi. Hin leyni­þjón­ustan, leyni­þjón­usta lög­regl­unnar, almennt kölluð PET, gætir innra öryggis og sinnir upp­lýs­inga­öflun inn­an­lands.

Fljótir að komast á sporið

Eftir frétta­til­kynn­inga­flóðið 24. ágúst 2020 sökktu danskir frétta­menn sér niður í málið til að finna út hvað væri á seyði. Og voru fljótir að kom­ast á sporið. 

Þremur dögum eftir að áður­nefndir fjór­menn­ingar höfðu verið sendir heim, greindi Danska útvarpið, DR, frá náinni sam­vinnu leyni­þjón­ustu hers­ins, FE, og National Security Agency, NSA, einni stærstu leyni­þjón­ustu Banda­ríkj­anna. Sam­vinnan fólst í því að FE hafði heim­ilað NSA aðgang að flutn­ings­línum tölvu­gagna (ljós­leið­ara) en aðgang­ur­inn gerði NSA mögu­legt að fylgj­ast með öllum raf­rænum send­ingum og sam­skiptum dönsku þjóð­ar­innar. FE hefur haft heim­ild danskra stjórn­valda til sam­vinnu við erlendar leyni­þjón­ustur en þessi galopni aðgangur (orða­lag danskra fjöl­miðla) náði langt út fyrir þau mörk. Stjórn­mála­skýr­andi danska útvarps­ins, DR, sagði að þetta mál yrði lík­lega mesti skandall í sögu danskrar leyni­þjón­ustu, að minnsta kosti á síð­ari tímum. Seinna kom í ljós að hann hafði ekki skotið yfir markið með þess­ari yfir­lýs­ingu. 

Ritstjórum hótað

Snemma í des­em­ber 2021 voru rit­stjórar dag­blað­anna Berl­ingske, Jót­land­s­pósts­ins og Politi­ken, ásamt frétta­stjóra danska útvarps­ins boð­aðir á fund yfir­manna leyni­þjón­ust­anna. Rit­stjóri Weekendavisen og rit­stjórar fleiri blaða fengu sams konar boð nokkrum dögum síðar. Á þessum fundum var rit­stjór­unum til­kynnt að fjöl­miðlar gætu sætt hörðum refs­ingum fyrir að segja frá leyni­legum upp­lýs­ingum sem varða þjóðar­ör­yggi. Vitnað var í grein 109 í dönsku hegn­ing­ar­lög­gjöf­inni. Síðar voru átta blaða­menn boð­aðir á fund hjá yfir­mönnum leyni­þjón­ust­anna, fund­ar­efnið það sama og hjá rit­stjór­unum. 

„Á þessum fundum var rit­stjór­unum til­kynnt að fjöl­miðlar gætu sætt hörðum refs­ingum fyrir að segja frá leyni­legum upp­lýs­ingum sem varða þjóðar­ör­yggi“

Rit­stjór­arnir voru ekki lengi að leggja saman tvo og tvo: eitt­hvað stórt væri í píp­unum. Fjöl­miðl­arnir höfðu reyndar fengið veður af að ein­hverjir tengdir annarri leyni­þjón­ust­unni, eða báðum, hefðu verið hand­teknir, meira vissu þeir ekki. 

Stóra bomban

Hinn 10. jan­úar 2022 þurftu margir Danir lík­lega að klípa sig í hand­legg­inn og jafn­vel líta á daga­talið til að full­vissa sig um að þá væri ekki að dreyma og að ekki væri kom­inn 1. apríl þegar þeir sáu for­síður fjöl­miðl­anna. Þar var nefni­lega greint frá því að Lars Findsen, yfir­maður leyni­þjón­ustu hers­ins, sæti í fang­elsi, grun­aður um að leka mik­il­vægum trún­að­ar­upp­lýs­ingum. Hann hafði ásamt þremur öðrum hátt­settum emb­ætt­is­mönnum úr leyni­þjón­ustu hers­ins, FE, og leyni­þjón­ustu lög­regl­unnar, PET, verið hand­tek­inn með mik­illi leynd mán­uði fyrr, 8. des­em­ber.

Þremur þeirra sem hand­teknir voru var sleppt eftir yfir­heyrslur en Lars Findsen úrskurð­aður í gæslu­varð­hald. Í til­kynn­ingu leyni­þjón­ust­unnar kom fram að hinir grun­uðu væru taldir hafa lekið við­kvæmum trún­að­ar­upp­lýs­ingum. Refsing við slíku getur kostað 12 ára fang­elsi. Lars Findsen var úrskurð­aður í gæslu­varð­hald til 4. febr­úar 2022, varð­haldið var síðar fram­lengt. Ekki var upp­lýst hvað það var sem hann var grun­aður um. Hann losn­aði úr gæslu­varð­hald­inu 17. febr­úar, þar sem hann hafði setið í 71 sól­ar­hring, en til­kynnt að hann væri áfram grun­aður og væri hér með vikið úr emb­ætti yfir­manns leyni­þjón­ustu hers­ins. Lars Findsen fór heim og þurfti ekki lengur að stara á vegg­ina í fang­elsis­klef­anum, gólf­fjal­irnar heima tóku við, eins og einn dönsku fjöl­miðl­anna komst að orði. 

Í sept­em­ber 2022 var gefin út ákæra á hendur Lars Findsen, fyrir að hafa greint frá rík­is­leynd­ar­málum, sem ekki voru nánar til­greind hver væru. 

Claus Hjort Frederiksen 

Hafi Danir átt erfitt með að trúa frétt­unum af hand­töku Lars Findsen, yfir­manns leyni­þjón­ustu hers­ins, FE, 10. jan­úar 2022, komu fréttir fjöl­miðl­anna fjórum dögum síðar ekki síður á óvart. Þá greindi Claus Hjort Frederik­sen, þing­maður og fyrr­ver­andi ráð­herra, frá því að hann væri grun­aður um land­ráð, nánar til­tekið brot á grein 109 í hegn­ing­ar­lög­unum. Það er sama greinin og vitnað var til þegar rit­stjór­arnir voru teknir á teppið hjá yfir­mönnum leyni­þjón­ust­anna og nefnt var fyrr í þess­ari grein. 

Claus Hjort Frederik­senÞing­mann­inum og fyrr­ver­andi ráð­herr­anum var greint frá því að hann væri grun­aður um land­ráð.

Claus Hjort Frederik­sen var til­kynnt að hann hefði opin­ber­lega greint frá upp­lýs­ingum sem telj­ast varða þjóðar­ör­yggi. Frétta­skýrendur töldu sig vita að brotið fælist í því að Claus Hjort Frederik­sen hefði í sjón­varps­við­tölum stað­fest, án þess þó að segja berum orðum að fréttir af hler­unum, sem fjöl­miðlar hefðu greint frá, væru réttar. Rétt er að geta þess að fréttir af þess­ari „hler­ana­sam­vinnu“ komu fyrst fram árið 2013 og svo aftur ári síðar í gögnum sem upp­ljóstr­ar­inn Edward Snowden lak til fjöl­miðla. 

Þungavigtarmaður

Claus Hjort Frederik­sen hefur iðu­lega verið lýst sem „þunga­vigt­ar­manni“ í Ven­streflokknum. Hann er 76 ára, hafði setið á þingi frá árinu 2001, gegnt ráð­herra­emb­ættum í stjórnum Anders Fogh Rasmus­sen og Lars Løkke Rasmus­sen, sein­ast sem varn­ar­mála­ráð­herra frá árinu 2016 fram að stjórn­ar­skiptum árið 2019. Eftir kosn­ing­arnar það ár sat hann áfram á þingi en lýsti yfir að nýhafið kjör­tíma­bil yrði hans síð­asta. Hann sat sem sé á þingi þegar hann fékk til­kynn­ing­una um að hann væri grun­aður um land­ráð. 

Ríkislögmaður vildi ákæra en ljón í veginum

12. maí 2022 til­kynnti Mattias Tesfaye dóms­mála­ráð­herra að rík­is­lög­maður (rigsa­dvoka­ten) mælti með því að Claus Hjort Frederik­sen yrði ákærður fyrir land­ráð. En þar var ljón í veg­inum: þing­menn og ráð­herrar njóta þing­helgi, sem þýðir að ekki er hægt að ákæra nema meiri­hluti þings­ins sam­þykki svipt­ingu þing­helgi.

Miklar umræður urðu um þetta í þing­inu en eftir að ljóst varð að ekki væri þing­meiri­hluti fyrir að svipta Claus Hjort þing­helgi til­kynnti dóms­mála­ráð­herra að ekki yrðu greidd atkvæði um málið. Málinu væri þar með lokið, að minnsta kosti í bili. Þing­helgi fellur niður þegar þing­mennsku lýkur og þess vegna vakn­aði sú spurn­ing hvort ákæru­málið yrði tekið upp þegar Claus Hjort sæti ekki lengur á þingi. Þótt kjör­tíma­bil í Danmörku sé að jafn­aði 4 ár var síð­asta kjör­tíma­bil aðeins rúm 3 ár og eins og Claus Hjort hafði til­kynnt hætti hann þá þing­mennsku.

Ákærur gefnar út

Þótt margir hafi talið að mál Claus Hjort Frederik­sen væri úr sög­unni reynd­ist svo ekki vera. Hinn 21. febr­úar síð­ast­lið­inn var gefin út ákæra á hendur honum. Tilkynnt var að rétt­ar­höld í máli hans, og einnig í máli Lars Findsen, hæfust í nýliðnum októ­ber en því var svo frestað og til­kynnt að þau hæfust í þessum mán­uði, nóv­em­ber 2023. Rétt­ar­höld í máli þriðja manns­ins (sem aldrei var nafn­greindur), starfs­manns leyni­þjón­ustu lög­regl­unnar, PET, áttu sömu­leiðis að hefj­ast fljót­lega. Sá var ákærður fyrir að leka við­kvæmum upp­lýs­ingum til blaða­manns, ekki þó í „hler­ana­sam­vinnu­mál­inu“.

Hæstiréttur setti hælana í og sagði nei

Ákæru­valdið hafði kraf­ist þess að rétt­ar­höldin yfir Lars Findsen, Claus Hjort Frederik­sen og PET starfs­mann­inum (sem ekki hefur verið nafn­greindur) færu fram fyrir luktum dyrum. Ástæð­urnar sagðar þær að um væri að ræða mál sem varð­aði öryggi rík­is­ins. Jafn­framt hafði áður verið farið fram á að Lars Findsen fengi ekki aðgang að ákæru­skjal­inu og öðrum gögnum varð­andi málið. Lögum sam­kvæmt á hinn ákærði rétt á að fá ákæru­skjalið afhent og Hæsti­réttur setti ofan í við bæj­ar­rétt­inn (lægsta dóm­stig) fyrir að neita Lars Findsen um aðgang að ákæru­skjal­inu. Varðandi kröf­una um að rétt­ar­höldin færu fram fyrir luktum dyrum í bæj­ar­rétti er skemmst frá því að segja að Hæsti­réttur hafn­aði þessum kröfum að mestu leyti, nið­ur­staðan vr birt 27. októ­ber sl. 

Ákærurnar dregnar til baka

Þegar ljóst var að rétt­ar­höldin yfir Lars Findsen, Claus Hjort Frederik­sen og starfs­manni PET færu ekki fram fyrir luktum dyrum, nema í mjög afmörk­uðum til­vikum, átti ákæru­valdið ekki margra kosta völ. 1. nóv­em­ber, fimm dögum eftir ákvörðun Hæsta­réttar, til­kynnti ákæru­valdið að ákær­urnar á hendur Lars Findsen, Claus Hjort Frederik­sen og PET starfs­mann­inum væru dregnar til baka. Í til­kynn­ing­unni sagði að ákvörð­unin væri vegna nið­ur­stöðu Hæsta­réttar um opin rétt­ar­höld og þar gæti ýmis­legt komið fram, varð­andi starf­semi dönsku leyni­þjón­ust­anna sem ekki ætti að vera á vit­orði almenn­ings. 

Niðurlæging ákæruvaldsins, þingið vill rannsóknarnefnd

Danskir stjórn­mála­skýrendur segja málið allt algjört klúður og nið­ur­læg­ing ákæru­valds­ins og dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins algjör. Claus Hjort Frederik­sen lét að því liggja í við­tali að rík­is­stjórnin undir for­ystu Mette Frederik­sen bæri mikla ábyrgð í þessu máli öllu, málið væri póli­tískt. Hann nefndi sér­stak­lega ráðu­neyt­is­stjóra for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, Barböru Ber­tel­sen, sagði hana hafa sett af stað málið sem leiddi til ákærunnar gegn sér. Lars Findsen hefur sömu­leiðis nafn­greint ráðu­neyt­is­stjór­ann sem hann segir að hafi lengi haft horn í síðu hans og viljað losna við hann.

Í vandaClaus Hjort Frederik­sen hefur gefið í skyn að rík­is­stjórn Mette Frederik­sen beri mikla ábyrgð í mál­inu og sagði að það væri póli­tískt.

Löngu áður en ljóst varð að ákær­urnar yrðu felldar niður hafði dóms­mála­ráð­herr­ann fyr­ir­skipað rann­sókn á mál­inu öllu. Meiri­hluti þing­manna vill nú ganga lengra og hefur lýst sig fylgj­andi sér­stakri rann­sókn­ar­nefnd sem skili nið­ur­stöðu sinni til þings­ins, en ekki ein­göngu til dóms­mála­ráð­herr­ans eins og hann hafði gert ráð fyrir. Hvort af slíkri rann­sókn verður er ókomið í ljós þegar þetta er skrifað.

Ljóst er að síð­asta orðið hefur ekki verið sagt í ein­hverjum stærsta skandal í danskri rétt­ar­fars­sögu. Skandal þar sem úlf­aldi varð að mýflugu.   

Í lokin er rétt að nefna að grein 109 í hegn­ing­ar­lög­unum, sem nefnd hefur verið í þess­ari grein, var síð­ast beitt fyrir rúmum 40 árum. Brot gegn þess­ari grein getur varðað allt að 12 ára fang­elsi.

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár