„Ég legg til að það verði fundin önnur leið fyrir þessa vegagerð eða sleppa henni alveg,” segir Anna Kristín Björnsdóttir sem er meðal þeirra tuga höfuðborgarbúa sem tjáð hafa skoðun sína á Sundabraut í tengslum við útgáfu matsáætlunar framkvæmdarinnar. Sú ætlun er fyrsta skrefið í umhverfismati sem á að ljúka á næsta ári.
Og Anna Kristín er ekki ein um þessa skoðun. „Göng alla leið eða ekki neitt“ er álit margra og núll-kostur, það að byggja einfaldlega ekki Sundabraut, sömuleiðis. Eða eins og Dagur Páll Ammendrup orðar það: „Þessi framkvæmd mun skemma útivistarsvæðið í Gufunesi. Notum peninginn í annað.”
Sundabraut hefur verið á teikniborðinu í fleiri áratugi í einni eða annarri mynd. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún er tekin til mats á umhverfisáhrifum, hin áformaða þjóðbraut sem myndi liggja frá Langholtshverfi, um Kleppsvík, Gufunes, út í Geldinganes, yfir …
Athugasemdir