Meirihlutinn í borginni heldur, Vinstri græn eru að þurrkast út og Framsókn í frjálsu falli

Næstum 60 pró­sent íbúa Reykja­víkur eru óánægðir með störf meiri­hlut­ans í borg­inni en óánægjan með minni­hlut­ann mælist líka mikið, eða um 50 pró­sent. Þrír af fjórum flokkum sem mynda meiri­hlut­ann hafa bætt við sig fylgi á kjör­tíma­bil­inu þrátt fyrir þessa stöðu og hægt væri að end­ur­nýja sam­starf þeirra ef kosið yrði í dag.

Meirihlutinn í borginni heldur, Vinstri græn eru að þurrkast út og Framsókn í frjálsu falli
Tekur bráðum við Einar Þor­steins­son tekur við emb­ætti borg­ar­stjóra af Degi B. Egg­erts­syni í jan­úar. Enginn flokkur í borg­inni hefur tapað jafn miklu fylgi það sem af er kjör­tíma­bili og flokkur Einars, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Mynd: Bára Huld Beck

Fylgi meiri­hlut­ans sem mynd­aður var eftir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í Reykja­vík­ur­borg í fyrra­vor mælist nú 53,7 pró­sent. Það er aðeins minna en flokk­arnir fjórir sem hann mynda: Sam­fylk­ingin, Fram­sókn­ar­flokkur, Píratar og Viðreisn, fengu í síð­ustu kosn­ingum þegar 55,8 pró­sent atkvæða féllu þeim í té. 

Töluverð til­færsla hefur hins vegar orðið á fylg­inu, sam­kvæmt nýbirtum Borg­ar­vita Maskínu, sem kann­aði fylgi flokk­anna í Reykja­vík í ágúst síð­ast­liðnum. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem vann mik­inn kosn­inga­sigur á síð­asta ári og fékk 18,7 pró­sent greiddra atkvæða, mælist nú minnstur þeirra allra með ein­ungis 6,1 pró­sent fylgi. Tveir af hverjum þremur kjós­endum sem kusu flokk­inn síð­ast myndu ekki gera það í dag. Það breytir því þó ekki að odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík, Einar Þor­steins­son, mun taka við emb­ætti borg­ar­stjóra í jan­úar næst­kom­andi í sam­ræmi við sam­komu­lag sem gert var við myndun hins nýja meiri­hluta. 

Hinir þrír flokk­arnir sem mynda meiri­hlut­ann hafa allir bætt við sig fylgi það sem af er kjör­tíma­bili. Sam­fylk­ingin mælist stærsti flokkur höf­uð­borg­ar­innar með 25,9 pró­sent fylgi, sem er 5,6 pró­sentu­stigum meira en hún fékk í fyrra­vor. Píratar hafa bætt við sig tveimur pró­sentu­stigum og njóta nú stuðn­ings 13,6 pró­sent kjós­enda og Viðreisn mælist með 8,1 pró­sent fylgi, sem er 2,9 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk síð­ast þegar það var kosið. 

Sjálfstæðisflokkur í kjörfylgi en Vinstri græn eru að hverfa

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, stærsti flokk­ur­inn í minni­hluta borg­ar­stjórnar Reykja­víkur, mælist með nán­ast sama fylgi og hann fékk í síð­ustu kosn­ingum, eða 25 pró­sent. Sós­í­alista­flokkur Íslands hefur bætt mestu við sig af minni­hluta­flokk­unum, fer úr 7,7 í 10,1 pró­sent, og Flokkur fólks­ins fer úr 4,5 í 6,1 pró­sent. 

Þá vantar einn flokk sem náði inn í borg­ar­stjórn í síð­ustu kosn­ingum: Vinstri græn. Eyði­merk­ur­ganga þeirra í höf­uð­borg­inni virð­ist engan endi ætla að taka, en flokk­ur­inn gaf ekki kost á því að halda áfram meiri­hluta­sam­starfi eftir síð­ustu kosn­ingar í kjöl­far þess að hann fékk ein­ungis fjögur pró­sent atkvæða. Síðan þá hefur staða Vinstri grænna, í helsta vígi flokks­ins þar sem hann fékk hæst hlut­fall atkvæða í síð­ustu þing­kosn­ingum og þar sem Katrín Jak­obs­dóttir og Svandís Svav­ars­dóttir eru að fleti í lands­mál­unum, versnað. Fylgi þeirra mælist nú ein­ungis 2,7 pró­sent sem er ansi langt frá því að duga til að ná inn borg­ar­full­trúa. 

Eini flokk­ur­inn sem spurt var um í könnun Maskínu sem mælist með sam­bæri­legt fylgi er Mið­flokk­ur­inn, sem náði ekki inn í kosn­ing­unum 2022, en alls segj­ast 2,3 pró­sent aðspurðra styðja þann flokk. 

Mikil munur milli borgarhluta

Nið­ur­stöð­urnar eru athygl­is­verðar í því ljósi að þeim fjölgar nokkuð sem finnst meiri­hlut­inn vera að standa sig illa, þrátt fyrir að hann tapi litlu sem engu fylgi og haldi sam­kvæmt könn­un­inni. Í des­em­ber í fyrra sögðu 47 pró­sent að hann stæði sig illa en það hlut­fall er nú komið upp í 59 pró­sent. Alls 15 pró­sent telja meiri­hlut­ann vera að standa sig vel sem er sjö pró­sentu­stigum minna en í des­em­ber í fyrra. 

Aðspurðir virð­ast heldur ekki vera sér­stak­lega hrifnir af minni­hlut­anum í borg­ar­stjórn. Einungis tíu pró­sent telja að hann sé að standa sig vel en 49 pró­sent telja hann standa sig illa. 

Mest ánægja með Sönnu

Í könn­un­inni var líka spurt um afstöðu fólks til starfa borg­ar­stjór­ans í Reykja­vík, Dags B. Egg­erts­sonar, sem hefur gegnt starf­inu í rúman ára­tug. Nið­ur­staðan var sú að 55 pró­sent voru óánægð með störf hans. 

Skoðun fólks á frammi­stöðu borg­ar­stjóra skipt­ist mjög eftir borg­ar­hlutum. Óánægjan er mun meiri í þeim hverfum sem eru austan Elliðaáa, en þar segj­ast tveir af hverjum þremur vera óánægðir með störf Dags. Í mið­borg­inni og Vest­ur­bænum var mun meira jafn­vægi milli skoð­unar fólks á frammi­stöðu hans, en 35 pró­sent íbúa þar töldu hann standa sig vel á meðan að 37 pró­sent voru á önd­verðu meiði. Mitt á milli voru svo íbúðar Hlíða, Laug­ar­dals, Háa­leitis og Bústað­ar­hverfis þar sem 31 pró­sent var ánægt með borg­ar­stjór­ann en 46 pró­sent óánægt. 

Sá borg­ar­full­trúi sem flestir töldu að hafi staðið sig vel það sem af er kjör­tíma­bili er Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins, en 19,2 pró­sent nefndu hennar nafn. Alls 13 pró­sent nefndu Dag og 11,2 pró­sent Hildi Björns­dóttur, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Aðrir borg­ar­full­trúar nutu minni stuðn­ings. 

Einungis sex pró­sent nefndu verð­andi borg­ar­stjóra, Einar Þor­steins­son, þegar spurt var um þann borg­ar­full­trúa sem best hefði staðið sig frá síð­ustu kosn­ingum.

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár