Fiskars ævintýrið og appelsínugulu skærin

Ef þú les­andi góður átt app­el­sínugul Fiskars skæri í eld­hús­skúff­unni ert þú ekki í ein­menn­ings­klúbbi. Meira en millj­arður þeirra gulu hefur verið fram­leiddur síðan þau komu á mark­að­inn árið 1967. En Fiskars, sem er elsta starf­andi fyr­ir­tæki í Finn­landi, fram­leiðir margt annað en skæri.

Fiskars ævintýrið og appelsínugulu skærin

Árið 1649 fékk maður að nafni Peter Thorwöste leyfi til að stofna járn­smiðju og smíða málm­bræðslu­ofn í þorp­inu Fiskars, fyrir vestan Helsinki. Hann fékk jafn­framt leyfi til að vinna járn úr málm­grýti, sem var flutt inn frá Svíþjóð. Í smiðj­unni voru fram­leiddir naglar og ýmis­legt fleira en megnið af því járni sem unnið var í Fiskars var sent aftur til Sví­þjóðar og selt þar. Finnland til­heyrði á þessum tíma Svíþjóð sem var einn helsti fram­leið­andi járns í Evrópu.

Starf­semin í Fiskars var að mestu óbreytt í rúm­lega eina öld, en á síð­ari hluta 18. aldar var farið að vinna kop­ar­málm úr námu í Orijärvi, skammt frá Fiskars. Árið 1802 var náman í Orijärvi nán­ast full­nýtt og slökkt á málm­bræðslu­ofn­inum. Þar með lauk vinnslu á málm­grýti í Fiskars. 

Kaup lyfsalans  mörkuðu tímamót

Árið 1822 keypti lyf­sal­inn Johan Jacob Julin (1787- 1853) smiðj­una og reyndar nán­ast allar bygg­ingar í þorp­inu Fiskars. Julin hafði háleit mark­mið og undir hans stjórn breytt­ist margt. Fyr­ir­tækið ein­beitti sér nú að fram­leiðslu margs konar hluta úr járni. Auk hnífa sem lengi höfðu verið fram­leiddir í Fiskars var nú farið að fram­leiða gaffla, skeiðar og hnífa.

Árið 1837 var sett á lagg­irnar véla­verk­stæði og þar leit brátt dags­ins ljós fyrsta gufu­vél sem fram­leidd var í Finn­landi. Fiskars hafði mikil áhrif á finnskan land­búnað með fram­leiðslu á ýmsum verk­færum, meðal ann­ars fram­leiddi fyr­ir­tækið rúma milljón plóga. Fiskars fram­leiðslan fékk gott orð á sig og allar götur síðan hefur Fiskars verið tákn um gæði. Julin sagði gjarna að gott hrá­efni, járn, kopar eða hvað annað sem notað væri við fram­leiðsl­una, væri for­senda góðrar vöru. 

Skóli, sjúkrahús og líkamsræktaraðstaða

Julin lyf­sali, og verk­smiðju­eig­andi, lagði mikla áherslu á vellíðan starfs­fólks og fjöl­skyldna þess. Hann lét reisa skóla og sjúkra­hús í þorp­inu og lét sömu­leiðis koma upp aðstöðu til ýmis konar íþrótta­iðk­unar (orðið lík­ams­rækt hafði ekki verið fundið upp) „heil­brigð sál í hraustum lík­ama“ sagði Julin gjarna.

Eftir lát Julin árið 1853, stýrði fram­kvæmda­stjórn skipuð ein­stak­lingum úr Julin fjöl­skyld­unni fyr­ir­tæk­inu. 1883 var Fiskars gert að hluta­fé­lagi og árið 1915 var félagið skráð í finnsku kaup­höll­inni. Heims­styrj­öldin fyrri hafði ekki telj­andi áhrif starf­sem­ina. Heimskreppan mikla, sem skall á haustið 1929 hafði mikil áhrif á finnskt efna­hags­líf, og áhrifa krepp­unnar gætti fram á miðjan fjórða ára­tug­inn. 1939 hófst heims­styrj­öldin síð­ari og það var ekki fyrr en eftir að henni lauk að stjórn Fiskars gat hrint í fram­kvæmd áætl­unum  sínum um stór­aukna fram­leiðslu. 

Meira en einn milljarður appelsínugulra

Árið 1967 olli straum­hvörfum í sögu Fiskars. Fyr­ir­tækið hafði þá fram­leitt skæri í meira en hund­rað ár en upp­finn­ingin er miklu miklu eldri. En það var þarna, árið 1967, sem skærin með app­el­sínugula hand­fang­inu litu dags­ins ljós. Hönnuðir Fiskars höfðu lagt mikla vinnu í hönnun skær­anna sem ku vera þau fyrstu með hand­fangi úr plasti. Skemmst er frá því að segja að skærin slógu (eða skáru!) algjör­lega í gegn. Á þeim 56 árum sem liðin eru frá því að þau gulu komu á mark­að­inn hefur selst meira en 1 millj­arður (þetta er ekki rit­villa) þessa verk­færis.

Af hverju appelsínugul?

Árið 1967 þegar fram­leiðsla Fiskars skær­anna með plast­hand­fangi var að hefj­ast hafði hönn­uð­ur­inn ákveðið að hand­fangið yrði svart, rautt eða grænt. Þegar kom að því steypa hand­föngin ákvað sá sem stjórn­aði plast­steypu­vél­inni að steypa fyrst hand­föng úr afgangi sem var í vél­inni. Sá litur var app­el­sínu­gulur. Svo voru steypt svört hand­föng, því næst rauð og loks græn.

Litirnir voru sem sagt fjórir. Þeim sem við­staddir voru „litapruf­una“ leist best á svarta lit­inn og þann app­el­sínugula, sem vel að merkja var hálf­gerð boð­flenna. Stjórn­endur Fiskars ákváðu þá að allt starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins myndi greiða atkvæði um lit­inn. Þar vann boð­flennan, sá app­el­sínuguli. Þess má geta að lit­ur­inn Fiskars app­el­sínu­gulur varð skrá­sett vöru­merki í Finn­landi árið 2003 og fjórum árum síðar í Banda­ríkj­unum en þar hafði Fiskars sett upp skæra­verk­smiðju árið 1977.

Flutt til Billnäs og Fiskars þorpið fékk nýtt hlutverk

Um 1970 var orðið þröngt um Fiskars á gamla verk­smiðju­svæð­inu og þá var tekin ákörðun um að flytja starf­sem­ina til Billnäs, skammt frá Fiskars. 

Hafa fært út kví­arnarFiskars fram­leiðir margs konar eld­hús­á­höld.

Í Billnäs voru gömul verk­smiðju­hús, sem Fiskars keypti og sömu­leiðis voru byggð ný hús fyrir fram­leiðsl­una. Eftir stóðu tóm hús í Fiskars. Í byrjun tíunda ára­tug­ar­ins tók stjórn Fiskars ákvörðun um að gera þorpið að eins konar lista­mannabæ. Lista­fólki bauðst þar hús­næði á hag­stæðu verði og þar blómstrar nú marg­háttuð starf­semi. Í þorp­inu eru árlega haldnar tvær hátíðir, Art & Design Biennale og Slowfood festi­val. Um 200 þús­und manns sækja þessar hátíðir á hverju ári, fyrir utan aðra gesti sem koma til þorps­ins. Fiskars styður með mynd­ar­legum hætti við starf­sem­ina.

Mörg handtök

Fyrir skömmu gerði blaða­maður Politi­ken sér ferð til Fiskars og Billnäs. Hann sagði eftir að hafa fylgst með fram­leiðslu skær­anna app­el­sínu­gulu að það væri óskilj­an­legt að skærin skuli ekki kosta meira en raun ber vitni. Skærin fara um margar hendur áður en þau eru full­gerð og því fram­leiðslu­ferða­lagi lýkur í höndum starfs­manna sem yfir­fara skærin. Athuga hvort allt sé eins og það á að vera, hvort bitið sé í lagi, hand­fangið sitji rétt o.s.frv. Að sögn tals­manns Fiskars er mikil áhersla lögð á að allt sem frá fyr­ir­tæk­inu fer, hvort sem það eru skæri eða annað, sé algjör­lega galla­laust. 

Þótt þau app­el­sínu­gulu séu hryggjar­stykkið í skæra­fram­leiðsl­unni eru ótal önnur „afbrigði“ ef svo má að orði kom­ast, lítil og stór, svört, rauð og græn. Fiskars er í dag með verk­smiðjur í fjöl­mörgum löndum og starfs­menn sam­tals vel á átt­unda þús­und. Fram­leiðslan er fjöl­breytt, fyrir utan skærin eru það hnífar, pottar og pönnur, garð­á­höld og fleira og fleira.

Mörg fleiri járn í eldinum

Á und­an­förnum árum hefur Fiskars fært út kví­arnar og keypt mörg þekkt fyr­ir­tæki. Þar má nefna Royal Copenhagen, breska postu­líns­fram­leið­and­ann Wedgwood og finnsku fram­leið­end­urna Iitala og Arabia. Um miðjan sept­em­ber sl. var til­kynnt að Fiskars hefði keypt danska fyr­ir­tækið Georg Jensen, sem fram­leiðir einkum silf­ur­muni og skart­gripi. Því má með sanni segja að þetta 374 ára fyr­ir­tæki, sem byrj­aði sem eldsmiðja, sé með mörg járn í eld­inum.

Kjósa
47
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár