Sameinar rafbílahleðslumarkaðinn í einu appi

„Maður þarf mikið hugrekki til að taka stórt skref og stíga inn í start up-heiminn,“ segir einn stofnenda fyrir­tækisins e1, Hafrún H. Þorvalds­dóttir. Appið e1 býður eigendum rafhleðslu­stöðva að leigja hleðslu­stöðvar sínar út til rafbíla­eigenda. Næstum 10.000 manns hafa hlaðið appinu niður.

„Við erum fyrirtæki sem auðveldar fólki aðgengi að hleðslu­stöðvum,“ segir viðskipta­fræðingurinn Hafrún H. Þorvalds­dóttir. Hún er einn af þremur stofn­endum fyrir­tækisins e1 en það sameinar rafhleðslu­markaðinn í einu appi sem notað er af tæplega 10.000 manns.

Appið virkar þannig að eigendur rafhleðslu­stöðva geta skráð þær inn í appið þannig að rafbíla­eigendur fái aðgang að þeim gegn gjaldi. „Við erum eins og Airbnb fyrir hleðslu­stöðvar. Það geta allir komið með hleðslu­stöðvarnar sínar inn og það geta allir hlaðið niður appinu okkar,“ segir Hafrún og útskýrir hvernig stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar nýta sér þjónustuna. „Ef þú átt hleðslustöð og vilt setja hana inn í kerfið, þá bara gjörðu svo vel.“

Hafrún hefur áratuga langa reynslu af orku­geiranum og starfaði meðal annars sem sölu­stjóri hjá ON, Orku nátt­úrunnar, þar sem hún sá um að koma upp rafhleðslu­stöðvum um allt land.

Meðeigendur Hafrúnar í e1 eru þeir Axel R. Eyþórsson tækni­stjóri og Konráð Ö. Skúlason, sem sér um viðskipta­þróun fyrir­tækisins. Reynsla og þekking hópsins á íslenska orku­markaðnum hefur reynst dýrmæt við stofnun e1 enda segir Hafrún þau öll hafa skoðun á því hvað sé best fyrir rafbíla­eigendur. 

Hafrún H. Þor­valds­dóttirEInn stofn­enda e1 sem sam­einar íslenska hleðslu­mark­að­inn fyrir þá sem eiga hleðslu­stöðvar og raf­bíla­eig­endur sem þurfa á þeim að halda.

Hvernig varð e1 til?

Hugmyndin að fyrir­tækinu varð til árið 2015 þegar Axel og Konráð stunduðu MPM nám við Háskólann í Reykjavík og unnu að sameiginlegu verkefni. „Þar kviknaði hugmynd að opnu kerfi sem allir hefðu aðgang að, hringrásar­hagkerfi eða deili­hagkerfi fyrir hleðslu­stöðvar og rafbíla­eigendur. Það er hugmyndin sem við fórum af stað með í janúar 2022 og gerðum að veruleika með e1. E1 fyrir öll og öll fyrir e1nn,“ segir Hafrún og brosir breitt.  

Slagorð fyr­ir­tæk­is­inse1 er aðgengi­legt öllum.

Fyrstu mánuðir fyrir­tækisins fóru í að móta skýra heildar­hugmynd af starfseminni og að auka skilning á markaðnum. „Þó ég hafi verið á þessum markaði, þá var ég hinum megin við borðið að setja upp hleðslur sjálf og reka þær. En ég þurfti að setja mig inn í hvað fólkið í landinu og fyrir­tækin vilja. Hvernig við gætum sameinað þetta í þjónustu sem gæti þjónað öllum,“ segir Hafrún þegar hún lýsir þessum fyrstu mánuðum.  

Þegar heildar­hugmyndin var orðin klár fóru stórir hlutir að gerast. „Ég get ekki sagt annað en að þetta hafi verið ævintýralegt ár til þessa. Núna í haust, september 2023, erum við komin með 70% af öllum stóru hleðslu­þjónustu­aðilunum á markaði og fjölda stór­fyrirtækja sem eru dreifð víða um land og nýta þjónustuna okkar á öllum sínum starfs­stöðvum. Og líka fyrir starfs­fólkið sitt heima sem fer kannski heim á fyrirtækja­bílum og hleður heima.“ 

TeymiðÍ teym­inu sem kemur að dag­legum rekstri eru Hafrún H. Þor­valds­dóttir, Axel R. Eyþórs­son, Konráð Ö. Skúlason og Sebast­ian H. Momberger

e1 sér um að rukka fyrirtæki fyrir þá þjónustu þannig að starfs­fólk beri ekki kostnað af hleðslunni. „Þetta er alveg magnað, að geta auðveldað orku­skiptin svona alla leið heim í hús í gegnum fyrir­tækin.“ 

„Núna í haust, sept­em­ber 2023, erum við komin með 70% af öllum stóru hleðslus­þjón­ustu­að­il­unum á mark­aði“
Hafrún H. Þor­valds­dóttir

Út fyrir þægindarammann

Fyrir Hafrúnu, sem hafði unnið í stabílum geira í langan tíma, var áskorun að fara út fyrir þægindarammann og í frumkvöðla­starfsemina. „Maður þarf mikið hugrekki til að taka stórt skref og stíga inn í start up-heiminn.“

Hafrún segir leitina að fjármagni hafa verið það sem var mest krefjandi við ferlið þó að það sé auðvitað eitthvað sem fylgi því að stofna nýtt fyrirtæki. „Að geta komið öllu í framkvæmd með fjármagni, það er erfiða skrefið. Nú er það vonandi að takast.“

Aðspurð hvort eitthvað hafi komið henni á óvart við ferlið brosir Hafrún og svarar því hversu skemmtilegt það sé búið að vera. Um þessar mundir er fyrir­tækið staðsett í Grósku og sækir Hafrún stuðning í fólkið í kringum sig sem er líka að vinna að ýmiss konar nýsköpunar­verkefnum. „Þetta er bara virkilega skemmtilegur staður að vera á, hérna í Grósku innan um allt þetta hugrakka og djarfa fólk sem fer þessa leið að fara út fyrir þæginda­hringinn.“ 

Hún finnur fyrir sigur­tilfinningu þegar hún hugsar til þess að fyrir­tækið sé orðið að veruleika og að viðbrögðin séu jákvæð. „Það er frábært að vera partur af stórkost­legu teymi sem hefur meiri háttar reynslu á þessu sviði sem við erum í. Og finna að þegar við setjum hausinn í bleyti saman hvernig stórir hlutir gerast. Við náum að brjóta hvern múrinn á fætur öðrum og fá fólk í samstarf með okkur.“ 

„Við viljum bara betra aðgengi að hrað­hleðslum og vera partur af þessu deili­hagkerfi sem e1 er. Nútíðin og framtíðin er komin til að vera svona í opnum hagkerfum. Það er fullt af stórum aðilum sem eru að keppa um að vera með bestu þjónustuna og við erum bara að styðja við þá að gera það. Það er neytandinn sem nýtur góðs af því, sem erum þú og ég.“ 

Af hverju á einhver sem les þetta viðtal að fara og hlaða niður appinu?

„Af því að við erum að ná að sameina markaðinn, hleðslu­þjónustu­markaðinn, á einum stað í e1 appinu. Það einfaldar honum lífið. Það er eina gildið okkar, einfald­leiki. Við viljum hjálpa einstaklingnum að einfalda líf sitt og fá aðgang að sem flestum hleðslu­stöðvum.“

AppiðHátt í 10.000 not­endur hafa sótt sér appið e1.

Jákvæðni, hugrekki og staðfesta

Fyrsta skref fyrir­tækisins er að sameina íslenska markaðinn en Hafrún segir engum hafa tekist það áður, hvorki hérlendis né erlendis. „Það væri stórkostlegt skref í rétta átt. Ég held að það myndi þýða eitthvað ofboðs­lega jákvætt fyrir íslenskt hagkerfi að önnur lönd gætu í sinni orkuskipta­vegferð horft til Íslands.“ Þannig skapast einnig tækifæri fyrir Íslendinga til að flytja út þekkingu og auka samstarf við erlenda aðila. 

Fyrir einstaklinga væri ekki hægt að lifa á því að leigja út rafhleðslu­stöðvarnar sínar nema þær væru nokkuð margar. „Það er ákveðinn stofn­kostnaður að eiga stæði eða stórt bílastæði og síðan að leggja rafmagn í stæðið, kaupa stöðina og setja hana í stöðina. Rafmagn er frekar ódýrt á Íslandi en það er nátt­úrlega ekki ódýrt að eilífu. Það er hægt að vera með góða álagningu á þessum stöðvum og samsetta verðskrá.“

Þeir sem leigja út hleðslu­stöðvarnar sínar geta valið milli þess að rukka aðeins kílóvatt­stundar­daggjald eða bæta við mínútu­gjaldi eftir að bíllinn er búinn að standa í stæðinu í einhvern ákveðinn tíma. 

Aðspurð um uppskriftina að árangri fyrir­tækja í frumkvöðla­heiminum segir Hafrún: „Það er jákvæðni, staðfesta, hugrekki og að gefast aldrei upp. Það þarf mikla orku líka. Það þarf að vera tilbúinn að gefa allt í þetta, blóð, svita og tár. Og hafa trú á heildar­hugmyndinni sinni, sjálfum sér og teyminu sínu. Ekki gefast upp á fjár­festunum. Það kemur á endanum, maður þarf bara að hafa trú á þessu öllu saman og þá fær fólk líka trú á þessu með þér. Þetta er bara svo skemmtilegt, ég held að það séu gígantísk tækifæri í íslensku hagkerfi til að styðja betur við frumkvöðla og gera stóra hluti,“ segir Hafrún. 

„Ekki gef­ast upp á fjár­fest­unum. Það kemur á end­anum, maður þarf bara að hafa trú á þessu öllu saman og þá fær fólk líka trú á þessu með þér.“
Hafrún H. Þor­valds­dóttir

Hvað er það besta við að hafa stofnað e1?

„Það kemur svo margt upp í hugann að það kemur ekkert út úr mér, ég er eiginlega orðlaus." Hafrún hlær og bætir við: „Það er ekki oft sem það gerist.“

Hún segir það besta vera að geta sett gott fordæmi fyrir börnin sín. „Það besta er líklega að fá að vera fyrirmynd fyrir börnin mín. Sýna að maður getur stappað út, staðið upp með sína menntun og allan sinn bakgrunn. Og geta staðið með sjálfum sér og farið og gert eitthvað nýtt og æðislegt, og breytt heiminum. Breytt lífi fólks og bætt líf annarra með eigin frumkvæði.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Töfrasprotar

Mest lesið undanfarið ár