„Hér geta hugmyndir vaknað og draumar ræst“

Ljós­mæð­urnar Emma M. Swift og Embla Ýr Guð­munds­dóttir stofn­uðu Fæð­ing­ar­heim­ili Reykja­víkur fyrir rúmu ári síðan. Þar hafa fæðst í kringum 70 börn og enn fleiri fjöl­skyldur sótt sér aðstoð þar. Markmið Emmu og Emblu Ýrar er að geta boðið upp á þjón­ustu frá kyn­þroska­aldri og fram að breyt­inga­skeiði.

„Hér geta hugmyndir vaknað og draumar ræst“
Stofn­endur Fæð­ing­ar­heim­ilis Reykja­víkur Emma M. Swift og Embla Ýr Guð­munds­dóttir ljós­mæður og stofn­endur Fæð­ing­ar­heim­ilis Reykja­víkur bjóða upp á þjón­ustu fyrir konur á öllum aldri. Mynd: Golli

„Við fengum leyfið klukkan 10 um morgun og sendum þá sms á allar kon­urnar sem voru komnar á tíma: Leyfið er komið,“ byrjar fram­kvæmda­stjóri Fæð­ing­ar­heim­ilis Reykja­víkur, Emma M. Swift, lýs­ingu sýna á fyrstu 24 klukku­stund­unum eftir opnun þess. „Um nótt­ina hringja þrjár konur í byrj­andi fæð­ingu þannig að á þessum fyrsta sól­ar­hring fædd­ust hér þrjú börn.“

Með­stofn­andi hennar og stjórn­ar­for­maður, Embla Ýr Guð­munds­dóttir, man vel eftir þessum fyrstu klukku­tímum: „Þetta er ótrú­legt,“ segir hún með bros á vör.

Ljós­mæður Fæð­ing­ar­heim­ilis Reykja­víkurÍ dag starfa fimm ljós­mæður á Fæð­ing­ar­heim­ili Reykja­víkur. Mikið er lagt upp úr því að hver og ein fái að vinna með sitt sér­svið innan ljós­mæð­ur­fræð­innar.

Gengu lengi með hugmyndina

Emma og Embla Ýr eru báðar með dokt­ors­próf í ljós­móð­ur­fræði og hafa mikla reynslu af störfum á því sviði. Þær höfðu lítið sem ekk­ert unnið saman en kynnt­ust betur við kennslu í Háskóla Íslands. „Við fórum svo­lítið að tala saman og sáum strax að okkar hug­myndir áttu algjöra sam­leið. Þannig fór bolt­inn að rúlla og þá gerð­ist þetta frekar hratt,“ rifjar Emma upp. 

Að eigin sögn höfðu þær báðar gengið með þá hug­mynd í mag­anum lengi að stofna fæð­ing­ar­heim­ili. 

JógaBoðið er upp á ýmis­konar jóga­tíma fyrir verð­andi og nýbak­aða for­eldra.

Emma telur tvennt hafa spilað inn í að hægt var að hrinda hug­mynd­inni í fram­kvæmd. Annars vegar að þær voru á sömu blað­síðu og þurftu því ekki að rök­ræða stór atriði. Hins vegar að þær eru báðar týpur sem ganga í málin og eru ófeimnar við að læra nýja hluti, eins og að búa til rekstr­ar­bók­hald og heima­síðu.

Til þess að gera und­ir­bún­ings­ferlið eins skil­virkt og hægt var bjuggu Emma og Embla Ýr til verk­ferla og plan um hvernig þær ætl­uðu að fara að því að láta draum­inn ræt­ast. Þær sönk­uðu einnig að sér upp­lýs­ingum, söfn­uðu hús­gögnum, byrj­uðu snemma að sækja um leyfi og reyndu ávallt að vera einu skrefi á undan í ferl­inu. 

„Þetta var heil­mikið ferli en ég held við höfum báðar haft svo­lítið gaman af því og við vinnum mjög vel saman. Þannig að við gátum kastað bolt­anum á milli og þá fór hann bara að rúlla. Við vorum búnar að opna hér svona einu og hálfu ári eftir að hug­myndin varð til,“ segir Emma.

„Þetta var heil­mikið ferli en ég held við höfum báðar haft svo­lítið gaman af því og við vinnum mjög vel saman“
Emma M. Swift
ljós­móðir og fram­kvæmda­stjóri Fæð­ing­ar­heim­ilis Reykja­víkur

Þjónustan

„Það hefur alltaf verið okkar fram­tíð­ar­sýn að geta verið með stað sem hvort tveggja býður upp á fjöl­breytta þjón­ustu með ólíkum fag­að­ilum eins og ljós­mæðrum, brjósta­ráð­gjöfum, sjúkra­þjálf­urum og sál­fræð­ingum,“ útskýrir Embla Ýr.

„Og svo einnig að bjóða upp á þjón­ustu sem spannar langt tíma­bil. Þá til dæmis fyrir barn­eign­ar­ferlið, á með­göngu, í fæð­ingu og eftir fæð­ingu. Við höfum líka verið að bjóða upp á ráð­gjöf á breyt­inga­skeiði.“

Ljós­mæð­urnar lögðu mikla vinnu í að finna rétta hús­næðið sem gæti hýst þessa starf­semi og fundu sinn heima­stað í Hlíðunum. „Við þurftum að hafa góðan sal til þess að geta verið með þessi fjöl­breyttu nám­skeið, tvær fæð­ing­ar­stofur og þrjú ráð­gjafa­her­bergi. Allt þetta þurfti svo­lítið að geta spilað saman af því að það er und­ir­staðan að ein­hverju leyti til þess að geta unnið með þessa hug­mynda­fræði.“

Meðal þeirrar þjón­ustu sem nú stendur til boða í Fæð­ing­ar­heim­ili Reykja­víkur er fæð­ing­ar­þjón­usta, brjósta­gjafa­ráð­gjöf, nudd, jóga, nála­stungur, fræðsla og alls kyns nám­skeið.

„Vonandi getum við aukið þjón­ust­una enn meir og stefnum að því meðal ann­ars með getn­að­ar­varn­ar­ráð­gjöf,“  segir Embla Ýr. 

AðstaðanAnd­rúms­loftið á Fæð­ing­ar­heim­ili Reykja­víkur er nota­legt og heim­il­is­legt, eins og það var á Fæð­ing­ar­heim­ili Reykja­víkur fyrir alda­mót.

Svöruðu eftirspurn

Eft­ir­spurnin eftir fæð­ing­ar­heim­il­inu var mikil og starf­semin fór á fullt eftir opnun. Síðan þá hafa fæðst í kringum 70 börn á heim­il­inu og fjölda fjöl­skyldna verið sinnt þar. 

Nafnið, Fæð­ing­ar­heim­ili Reykja­víkur, kom til af því að Emma og Embla Ýr vildu heiðra starf­semi Fæð­ing­ar­heim­ilis Reykja­víkur sem var starf­rækt á árunum 1960–1995 á Eiríks­götu. 

„Þegar við horfum á Fæð­ing­ar­heim­ili Reykja­víkur sem var, að þá var mjög mikil frum­kvöðla­starf­semi þar,“ segir Emma. „Margt af því sem við teljum eðli­legt í dag byrj­aði þar.“

Með­göngu­jógaBarns­haf­andi kona í með­göngu­jóga hjá Fæð­ing­ar­heim­ili Reykja­víkur.

Hún nefnir aukna þátt­töku feðra í fæð­ingum, að börn séu hjá mæðrum sínum í stað þess að vera færð í vöggu­stofur og aukna áhersla á líðan móður.

Embla Ýr bætir því einnig við að þar hafi verið lögð áhersla á heim­il­is­legt og hlý­legt umhverfi og leggja þær mikið upp úr því að skapa slíkt and­rúms­loft hjá sér. 

„Þegar við horfum á Fæð­ing­ar­heim­ili Reykja­víkur sem var, að þá var mjög mikil frum­kvöðla­starf­semi þar“
Emma M. Swift
ljós­móðir og fram­kvæmda­stjóri Fæð­ing­ar­heim­ilis Reykja­víkur

„Við höfðum sam­band við ein­hverjar af ljós­mæðr­unum sem voru að vinna á Fæð­ing­ar­heim­il­inu áður fyrr og spurðum hvað þeim fynd­ist um að við tækjum upp nafnið. Það voru allir svo styðj­andi,“ segir Emma bros­andi. Þær hafa einnig fengið fjölda skila­boða frá mæðrum og fyrri starfs­mönnum sem lýsa yfir ánægju sinni með að heyra nafnið á ný í sam­fé­lags­um­ræð­unni.

„Þetta gaf okkur byr undir báða vængi. Okkur þykir mjög vænt um nafnið og að fá að halda áfram því góða starfi sem var.“

Miðla reynslu

Í dag starfa fimm ljós­mæður á Fæð­ing­ar­heim­ili Reykja­víkur og segir Emma þær vinna mikið í teym­is­vinnu. „Það er gaman að vinna á stað sem manni þykir vænt um með fólki sem manni þykir vænt um. Það eru allir að vinna að sama mark­miði með sömu hug­mynda­fræði.“

Hvað er það besta við að vera frum­kvöðlar á þessu sviði?

Embla Ýr svarar því að getan til að heim­færa það sem þær kenna í háskól­anum sé þeim kær. „Mér finnst mjög gaman að geta séð þessa þjón­ustu verða að veru­leika. Líka að hafa tæki­færi til að geta metið hvort þessi þjón­usta sé að skila þeim árangri sem maður vill að hún skili. Mér finnst það dásam­legt.“

FæðingarUppi á vegg í Fæð­ing­ar­heim­ili Reykja­víkur má sjá hvaða daga fæð­ing­ar­voru í hverjum mán­uði.
„Mér finnst mjög gaman að geta séð þessa þjón­ustu verða að veru­leika“
Embla Ýr Guð­munds­dóttir
ljós­móðir og stjórn­ar­for­maður Fæð­ing­ar­heim­ilis Reykja­víkur

Eru þið með ráð til ungra kvenna sem langar að láta frum­kvöðla­drauma sína ræt­ast?

„Finna sér góðan félaga,“ svarar Embla Ýr um hæl og upp­sker gleði­legan hlátur frá Emmu sem sam­sinnir því. Þær hvetja ungar konur til að vera óhræddar við að hrinda hlut­unum í fram­kvæmd og að leita ráða hjá öðru fólki. 

„Við gerðum það mjög mikið. Verið óhræddar við að finna fyr­ir­myndir og hafið sam­band við þær,“ ítrekar Emma. Hún segir það hafa komið þeim á óvart hve margar konur sem þær leit­uðu til voru til­búnar að hjálpa. Nú í dag sjá þær fyrir sér að geta gert hið sama fyrir kom­andi kyn­slóðir. „Við værum svo til í að miðla öllu sem við höfum gert og við fundum fyrir mjög miklum með­byr og hjálp á þann hátt.“

Emma og Embla Ýr leggja mikið upp úr því að skapa svig­rúm og aðstöðu svo að starfs­fólk fái að rækta sína styrk­leika og sér­svið í starfi. Á vinnu­tölv­unni sinni uppi í háskóla er Emma með post-it miða sem er lýsandi fyrir hug­ar­far kvenn­anna tveggja. Miðinn hefur verið þar frá því að þær Embla Ýr ákváðu að stofna fæð­ing­ar­heim­ilið. 

„Þar stendur sem sagt: fæð­ing­ar­heim­ili hug­mynda­hús. Mér finnst það kannski sýna hvernig alveg frá byrjun var það svo­lítið pæl­ingin að hér geta hug­myndir vaknað og draumar ræst.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Töfrasprotar

Mest lesið undanfarið ár