„Plast er ekki bara plast“

Sigurður Grétar Hall­dórs­son, fram­kvæmda­stjóri nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Pure North Recycling, tók þá ákvörðun þegar hann gekk í gegnum erfið veik­indi fyrir tutt­ugu árum að hann ætl­aði aldrei að starfa við eitt­hvað sem hann hefur ekki gaman af. Í dag hugsar hann um plast á hverjum degi. „Þetta er það skemmti­leg­asta sem ég hef gert.“

„Plast er ekki bara plast“
Skapandi end­ur­vinnsla Ísland er of lítið fyrir end­ur­vinnslu plasts voru skila­boðin sem Sigurður Grétar Hall­dórs­son fékk þegar hann sýndi end­ur­vinnslu áhuga. Í dag er hann fram­kvæmda­stjóri nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Pure North Recycling, eina fyr­ir­tæk­is­ins hér á landi sem end­ur­vinnur plast að fullu. Mynd: Golli

Pure North Recycling er eina fyr­ir­tækið á Íslandi sem end­ur­vinnur plast að fullu. Jarð­varmi er nýttur í vinnsl­una, sem er hvergi ann­ars staðar gert í heim­inum, og gerir ferlið umhverf­is­vænna og lækkar rekstr­ar­kostnað. Sigurður Grétar Hall­dórs­son, fram­kvæmda­stjóri Pure North Recycling, stofn­aði fyr­ir­tækið árið 2016 en end­ur­vinnsla hefur verið honum hug­leikin lengi. 16 ár eru síðan hann byrj­aði að þróa end­ur­vinnslu á timbri með nýt­ingu á jarð­varma. 

„Mér var alltaf sagt að það væri ekki séns að end­ur­vinna plast á Íslandi, við værum alltof fá, þetta væri alltof lítið magn, það væru svo stórar verk­smiðjur sem þyrfti að setja upp svo hægt væri að end­ur­vinna plast. En ég hafði reynslu af að nýta jarð­varma til end­ur­vinnslu.“ Sú reynsla kom að gagni og fer end­ur­vinnslu­ferlið þannig fram að plast­úr­gangur er tættur niður, þveg­inn, þurrk­aður og í flestum til­fellum end­ur­bræddur í plast­perlur sem seldar eru til fram­leiðslu á nýjum plast­vörum hér á …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    "Dangerous chemicals found in recycled plastics, making them unsafe for use. Experts explain the hazards" [Grein á miðlinum 'phys.org' er birtist þ. 17.1.2024]
    Sjá hér: https://phys.org/news/2024-01-dangerous-chemicals-recycled-plastics-unsafe.html
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Töfrasprotar

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár