„Ég er Akureyringur og er alinn upp við Samherja. Og ekki bara það, heldur þekki ég marga og tengist mörgum sem vinna hjá þeim. Það sem gerir þetta pínu snúið er að þetta fyrirtæki var svo mikið stolt okkar og ætti að vera enn. En þetta er auðvitað umdeilanlegt í ljósi stöðunnar,“ segir Birgir Snæbjörn Birgisson myndlistarmaður sem opnar sýningu með málverkum af togurum Samherja, heimaflotanum eins og hann kallar þau, í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík þann 23. september.
Um er að ræða átta myndir, verkaröð, sem Birgir Snæbjörn kallar „Stolt“. Verkið var hluti af stórri einkasýningu sem Birgir Snæbjörn hélt í Listasafni Íslands í Reykjavík í fyrra sem hét „Í hálfum hljóðum“. Samherji rekur stórt frystihús á Dalvík og er stærsti atvinnurekandinn í sveitarfélaginu. Útgerðin tengist bænum því sterkum böndum og fjármagnar meðal annars stóran hluta af Fiskideginum mikla sem haldinn er þar árlega.
Sýningarstjóri Bergs, Ragnhildur Weisshappel, segir …
Athugasemdir