Hólmfríður Matthíasdóttir, útgáfustjóri Forlagsins, segir hér í örfáum orðum frá bókinni Dauði Francos eftir Guðberg. Bókin er á leið í prentun og væntanleg glóðvolg nú í haust. Sjálf hefur Hólmfríður búið lengi í Barcelona þar sem Guðbergur nam spænsk fræði, listasögu og bókmenntir, nánar tiltekið í Háskólanum í Barcelona, La Universidad de Barcelona.
Bók Guðbergs Bergssonar, Dauði Francos, sem kemur út hjá Forlaginu í október, var í raun skrifuð árið 1975, þegar Guðbergur fylgdist með nokkurra vikna dauðastríði einræðisherrans Francisco Francos og skrásetti í dagbók.
Þetta er ekki löng bók, en hún er einstök heimild um þessi tímamót og varpar upp heillandi nærmynd af þjóðfélagi og tíðaranda þar sem nýi og gamli tíminn takast á í samfélagslegri ringulreið.
Grípandi lesning sem ég spændi í mig um leið og mér barst handritið í tölvupósti frá skáldinu. Guðbergur skrifar svo skemmtilega og af einstakri innsýn og skilningi á …
Athugasemdir