Fimm daga hungur léttvægt miðað við kvalir hvalanna

Samuel Rostøl er svangur. Hann hefur enda ekki borðað síðan Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra heim­il­aði hval­veiðar að nýju á fimmtu­dag. En hans óþæg­indi eru smá­vægi­leg miðað við þær þján­ingar sem stór­hveli ganga í gegnum þegar þau eru skotin á hafi úti, segir hinn norski Rostøl.

Norski dýra­vernd­un­ar­sinn­inn Samuel Rostøl var staddur á kaffi­hús­inu Röst við Reykja­vík­ur­höfn á fimmtu­dag. Á milli þess sem hann end­ur­hlóð síður frétta­miðl­anna virti hann fyrir sér skipin, á meðal þeirra hval­veiði­skip sem höfðu ekki fengið að veiða síðan Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra kom á banni við veiðum á lang­reyðum í júní­mán­uði. Svo kom höggið. „Vertíðin fer af stað á morgun.“ 

„Mér leið eins og stór steinn sykki í mag­anum á mér,“ sagði Rostøl sem ákvað þá og þegar að fara í hung­ur­verk­fall. „Ég hef séð hvernig farið er með þessi dýr. Ég hef séð hvernig þau eru drepin og það er hrylli­legt.“

Vísir greindi fyrst frá hung­ur­verk­falli Rostøls. 

Rostøl var staddur skammt frá staðnum þar sem hann heyrði frétt­irnar þegar blaða­maður Heim­ild­ar­innar náði tali af honum í dag. Hann var þar til þess að styðja tvo aðgerða­sinna sem klifr­uðu upp í möstur hval­skipa við Reykja­vík­ur­höfn eldsnemma í morgun til þess að mót­mæla hval­veiðum. Mót­mæl­end­urnir eru þar enn þegar þetta er skrifað. Lög­reglan er með mik­inn við­búnað á svæð­inu. 

„Þær eru að fórna miklu, sinni eigin heilsu og öryggi til þess að vernda hval­ina,“ sagði Rostøl, fullur aðdá­unar.

„Þetta myndefni hefur grætt mig oftar en ég hef tölu á“

Hann hefur verið staddur á hval­stöðvum þegar hvalir eru dregnir þangað upp og horft á myndefni frá Mat­væla­stofnun sem sýna drápin. 

„Það er ekki margt sem getur grætt mig en þetta myndefni hefur grætt mig oftar en ég hef tölu á,“ sagði Rostøl. „Að vita að þessi skip muni geta farið út og gert þetta aftur með smá­vægi­legum breyt­ingum á skil­yrðum gerir mig mjög pirraðan.“

Hann ætlar sér að halda hung­ur­verk­fall­inu áfram, helst þar til íslensk stjórn­völd hafa bannað hval­veiðar. 

„Ég myndi elska að fara heim og fá mér að borða,“ sagði Rostøl. „En mín óþæg­indi eru létt­væg miðað við óþæg­indi hval­anna.“

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Af myndinni að dæma má ætla að blessaður maðurinn þoli vel að sleppa nokkrum máltíðum
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár