Ritstjórar Morgunblaðsins þénuðu samanlagt 114 milljónir króna í fyrra

Innan íslenska fjöl­miðla­heims­ins gefur best í aðra hönd að rit­stýra Morg­un­blað­inu. Karlar raða sér í tíu efstu sætin á launa­list­anum og tölu­verðar breyt­ingar urðu á högum ýmissa fjöl­miðla­manna á milli áranna 2021 og 2022.

Ritstjórar Morgunblaðsins þénuðu samanlagt 114 milljónir króna í fyrra

Davíð Oddsson, annar rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, er að venju lang­launa­hæsti fjöl­miðla­maður lands­ins með tæp­lega 5,9 millj­ónir króna á mán­uði þegar horft er til fjöl­miðla sem eru með fleiri en einn starfs­mann. Davíð hefur setið í því sæti sleitu­laust frá því að hann hóf störf í fjöl­miðlum árið 2009, en Davíð varð 75 ára í jan­úar á þessu ári. 

Laun Davíðs eru þó ekki ein­ungis þau sem Árvakur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, greiða honum. Hann þiggur líka eft­ir­laun sem for­sæt­is­ráð­herra og þing­maður og eft­ir­laun vegna starfa sem seðla­banka­stjóri. Eft­ir­laun Dav­íðs fyrir þing­manna- og ráð­herra­störf eru 80 pró­sent af launum for­sæt­is­ráð­herra, sem voru 2.470 þús­und krónur á mán­uði í grunn­laun í fyrra. Miðað við þau laun for­sæt­is­ráð­herra fékk Davíð næstum tvær millj­ónir króna í eft­ir­laun á mán­uði vegna starfa sinna sem for­sæt­is­ráð­herra. Hann hefur getað þegið þau eft­ir­laun síðan 2005 en þau greið­ast úr …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Ríkisstyrkti ritstjórinn á moggasneplinum ber mest úr býtum, hann heitir Davíð Oddsson og starfar af miklum heilindum fyrir 10-fjölskyldur í landinu (ríkisstyrktu-einokunar-útgerðina) allur almenningur greiðir samt mest af launum hans, þetta er áhugavert vegna þess að fáir eða engir hafa talað meira og betur fyrir nýfrjálshyggju-óþverranum sem hann (Davíð) innleiddi í samfélagið fyrir 30árum síðan sem forsætisráðherra og hefur haft skelfileg áhrif á líf afgerandi meirihluta almennings = afnám regluverks um eftirlit á fjármálafyrirtækjum, sem leiddi yfir þjóðina HRUN-þjófnaðinn (2008) Davíð henti út um gluggann á svörtuloftum 84-milljörðum í gjaldþrota Kaupþing-banka, sem enduðu á bankareikningum helstu fjármála-SÓÐA Íslandssögunnar. bjargaði olíufyrirtæki Engeyinga með almannafé, það er sjálfsagt og eðlilegt að rifja þetta upp, þegar helstu afætur samfélagsins birtast almenningi þessi dægrin t.d. Vísis-fjölskyldan í Grindavík sem fær 4.8-milljarða í skattafslátt frá almenningi, af því að nýfrjálshyggju-fólkinu þykir eðlilegt og sjálfsagt að skatta fjármagn með allt annarri skattprósentu en hefðbundnar launatekjur, því má bæta við að heildar veiðigjöld fyrir einokunar-aðgang að sjávar-auðlindinni var sambærleg fjárhæð eða 5-milljarðar.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

Ójöfnuður ósanngjarn en samt nauðsynlegur
SagaHátekjulistinn 2023

Ójöfn­uður ósann­gjarn en samt nauð­syn­legur

Nið­ur­stöður nýlegrar rann­sóknar á við­horfum íslensks almenn­ings til ójafn­aðar og félags­legs rétt­lætis sýna að stærstur hluti almenn­ings er óánægður með tekju­ó­jöfnuð og telur ójöfnuð við­hald­ast vegna þess að hinir ríku og valda­miklu hagn­ast á honum. Sami almenn­ingur vill hins vegar ekki útrýma ójöfn­uði með öllu vegna trúar á opin tæki­færi og verð­leika.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár