Ellefu karlar, tvær konur og tveir sem heita Jón Sigurðsson á listanum yfir launahæstu forstjórana

For­stjóra­launin eru í flestum til­fellum betri hjá þeim fyr­ir­tækjum sem ekki eru skráð á markað, og eru í eigu erlendra aðila. Alls voru 13 for­stjórar með meira en átta millj­ónir króna á mán­uði í laun á síð­asta ári. Það tók þann sem var með hæstu launin um ell­efu daga að vinna sér inn mið­gildi heild­ar­launa allra Íslend­inga á einu ári. Heim­ildin birtir lista yfir launa­hæstu for­stjóra lands­ins.

Ellefu karlar, tvær konur og tveir sem heita Jón Sigurðsson á listanum yfir launahæstu forstjórana

Hjalti Bald­urs­son, stofn­andi og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Bókunar sem var um tíma fram­kvæmda­stjóri Heim­kaupa á síð­asta ári, var með tæp­lega 25 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun að með­al­tali á síð­asta ári. Fyrir vikið voru heild­ar­laun hans rúm­lega 298 millj­ónir króna á árinu 2022. Það gerir hann að launa­hæsta for­stjóra lands­ins sam­kvæmt úttekt Heim­ild­ar­innar á álagn­ing­ar­skrám Skatts­ins. Þær tölur sem eru til­teknar í þess­ari grein­ingu eru ein­ungis launa­tekjur, ekki fjár­magnstekjur.

Hjalti hefur verið fasta­gestur í efstu sæt­unum yfir tekju­hæstu lands­menn á und­an­förnum árum. Árið 2021 námu launa­tekjur hans 21,8 milljón krónum á mán­uði að með­al­tali og árið 2018, þegar banda­ríski bók­un­arris­inn TripA­dvisor sem rekur stærsta ferða­vef heims, keypti Bókun á 2,7 millj­arða króna skil­aði það Hjalta um 700 millj­ónum króna í fjár­magnstekjur. Hjalti var stærsti hlut­haf­inn með 45 pró­senta hlut.

Það vekur athygli að af þeim tólf for­stjórum sem voru með hæstu launin – yfir átta millj­ónum króna á mán­uði – á síð­asta …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Allt hlýtur þetta fólk að vera vel að þessum launum komið. En eitthvað hvíslar að manni að verðlag á Landinu góða hlýtur að spegla þessi ágætu laun. Sem dæmi eldsneytisverð, það eru víst ekki til á byggðu bóli jafn margar bensínstöðvar per haus og hér á Hjaranum. Svo má nefna Lágvöruverðsverslun með fyrir fram greiddum aðgangi ásamt öðrum verslunum í eigu olíufélaga. Mammon dafnar nú um stundir eins og púkinn á fjósbita um, þökk sé okkur hinna sem nægjumst með meðallaunin og þaðan af minna.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

Ójöfnuður ósanngjarn en samt nauðsynlegur
SagaHátekjulistinn 2023

Ójöfn­uður ósann­gjarn en samt nauð­syn­legur

Nið­ur­stöður nýlegrar rann­sóknar á við­horfum íslensks almenn­ings til ójafn­aðar og félags­legs rétt­lætis sýna að stærstur hluti almenn­ings er óánægður með tekju­ó­jöfnuð og telur ójöfnuð við­hald­ast vegna þess að hinir ríku og valda­miklu hagn­ast á honum. Sami almenn­ingur vill hins vegar ekki útrýma ójöfn­uði með öllu vegna trúar á opin tæki­færi og verð­leika.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár