Keypt Þórsmörk keypti skrif­stofu­hús­næðið sem hýsir meðal ann­ars rit­stjórn Morg­un­blaðs­ins á síð­asta ári. Stór­aukin skuld­setn­ing jók vaxta­gjöld sam­stæð­unnar um 120 millj­ónir króna á einu ári.

Skuldir móðurfélags Morgunblaðsins jukust um 1,5 milljarð í fyrra

Þórsmörk tap­aði 244 millj­ónum króna í fyrra. Mörg hund­ruð milljón króna skuldir Árvakurs við prent­smiðju í eigu sam­stæð­unnar voru færðar upp í móð­ur­fé­lagið í fyrra­haust. Hún skuld­aði rík­inu enn 134 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót í vaxta­laus lán sem veitt voru í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum.

Skuldir Þórs­merkur, móð­ur­fé­lags Árvakurs sem gefur út Morg­un­blaðið og tengda miðla, juk­ust um 1,5 millj­arð króna á síð­asta ári. Þær fóru úr því að vera um 1,6 millj­arður króna í lok árs 2021 í að vera um 3,1 millj­arður króna um síð­ustu ára­mót.

Hin nýju lán komu frá banka og tengj­ast ákvörðun Þórs­merkur um að kaupa hús­næði rit­stjórn­ar­skrif­stofa Árvakurs við Hádeg­is­móa 4 af fast­eigna­fé­lag­inu Regin á 1,59 millj­arða króna. Bygg­ingin er að hluta til í útleigu til ann­arra aðila. Auk hennar á Þórs­merkur-sam­stæðan húsið sem hýsir einu starf­andi dag­blaða­prent­smiðju lands­ins, sem stað­sett er við hlið skrif­stofu­hús­næð­is­ins. Sú prent­smiðja er í eigu Lands­prents, dótt­ur­fé­lags Þórs­merkur.

Lántakan gerði það að verkum að fjár­magns­gjöld Þórs­merkur, aðal­lega vaxta­gjöld og verð­bætur af lang­tíma­skuldum, fóru úr því að vera 75 millj­ónir króna á árinu 2021 í að vera 195 millj­ónir króna í fyrra, …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Ætli hefði ekki verið hagkvæmra að Vilhjálmur Bjarnason hefði tekið við þessum rekstri og gerst ritstjóri kannski ásamt Ólafi Stwphenssen sem stýrði blaðinu mjög farællega uns hann var hrakinn úr starfi svo koma mætti DO að?
    0
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Þetta Blað er buið að vera og þun lesning Eg held að engin saknaði þess.
    Blöð hafa aður Hætt. Ja farið hefur fe BETRA.
    2
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Leggjum Morgunblaðið í EYÐI !!!
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár