Ekki bjartsýn á að Katrín verði við kröfunni

Viðreisn hefur sent for­sæt­is­ráð­herra erindi og farið fram á að Alþingi verði kallað saman vegna Íslands­banka­máls­ins. Hanna Katrín Frið­riks­son þing­flokks­for­maður Við­reisnar segir það skýrt að stjórn­völdum hafi mis­tek­ist að gæta hags­muna almenn­ings.

Ekki bjartsýn á að Katrín verði við kröfunni
Ekki byrjuð að ræða við þing­flokka Hanna Katrín segir að verði for­sæt­is­ráð­herra ekki við beiðni Við­reisnar muni hún láta reyna á að ná saman meiri­hluta þing­manna til að knýja fram að þing verði kallað saman. Mynd: Bára Huld Beck

Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, hefur sent Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra erindi þar sem hún fer fram á að Alþingi verði kvatt saman til þing­funda vegna Íslands­banka­máls­ins. Aðkomu allra að sölu­ferli hluta rík­is­ins í bank­anum verði að skoða og það verði ekki öðru vísi gert en með skipun rann­sókn­ar­nefndar á vegum Alþingis. „Það er öskrað á það að við veltum við öllum steinum.“

Hanna Katrín sendi erindið á for­sæt­is­ráð­herra í morgun en eftir að þingi hefur verið frestað getur for­seti Íslands kvatt Alþingi saman til funda ef nauð­syn ber til að kröfu for­sæt­is­ráð­herra eða ef ósk berst um það frá meiri­hluta Alþing­is­manna. Spurð hvort hún sé, í ljósi yfir­lýs­inga Katrínar frá því að sátta­gjörð Íslands­banka við fjár­mála­eft­ir­litið var birt í gær, bjart­sýn á að Katrín bregð­ist við kröf­unni á jákvæðan hátt svarar Hanna Katrín: „Miðað við svör hennar til þessa, eftir að skýrslan kom út, þá er ég það ekki, nei. En mér fannst rétt og eðli­legt að leita til hennar fyrst áður en ég leit­aði til hvers þing­flokks fyrir sig.“

„Miðað við svör hennar til þessa, eftir að skýrslan kom út, þá er ég það ekki, nei“
Hanna Katrín Frið­riks­son
um hvort hún sé bjart­sýn á að Katrín Jak­obs­dóttir muni kalla saman þing.

Hanna Katrín segir einnig aðspurð að hún hafi ekki átt í neinum við­ræðum, form­legum né óform­legum, við aðra þing­flokka vegna máls­ins til þessa og hafi ekki farið í hausa­taln­ingu á því hvort líkur séu á því að hægt verði að knýja fram þing­fundi með meiri­hluta þing­manna. „Ég þori ekk­ert að segja um það, en mér finnst þetta bara mjög eðli­leg krafa.“

Hanna Katrín minnir á að strax eftir að ljóst var að brotala­mir hefðu verið á sölu­ferl­inu kall­aði stjórn­ar­and­staðan eftir því að sér­stök rann­sókn­ar­nefnd yrði skipuð. Skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar og ákvörðun fjár­mála­eft­ir­lits­ins stað­festi að sú leið hefði átt að vera farin strax í upp­hafi.

„Ég held að það hljóti allir sem horfa á málið með gler­augum hlut­leysis að átta sig á því að nú er enn rík­ari ástæða en áður til þess að skoða aðkomu stjórn­valda að mál­inu, þá á ég sér­stak­lega við þátt fjár­mála­ráð­herra sem fer með eign­ar­haldið í bank­anum fyrir hönd rík­is­ins. Það er öskrað á það að við veltum við öllum steinum, skoðum ferlið frá upp­hafi til enda, og það getum við ekki gert nema að aðkoma allra aðila sé skoðuð, og til þess þarf að setja rann­sókn­ar­nefnd á lagg­irnar. Það liggur núna skýrt fyrir að stjórn­völdum hefur mis­tek­ist að gæta hags­muna almenn­ings við sölu á þessum hlut rík­is­ins í bank­anum. Það þarf að vera hafið yfir allan vafa af hverju það mistókst.“

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár