Safna fyrir dóttur Þóru Dungal: „Við höldum áfram í minningu mömmu“

„Mamma mín var breysk eins og við öll,“ segir Max Sól, eldri dóttir Þóru Dungal heit­innar. „Hún hafði upp­lifað sinn skerf af áföllum og var lengi á flótta. Nú þarf hún ekki að flýja lengur.“ Max þarf nú að vinna úr áskor­unum síð­ustu ára sem barn for­eldris með fíkni­vanda, en einnig því mikla áfalli að versti ótti hennar hafi ræst og hún komið að móður sinni lát­inni.

Safna fyrir dóttur Þóru Dungal: „Við höldum áfram í minningu mömmu“
Á góðri stundu Mæðgurnar Þóra Dungal, Max Sól Dungal og Stefanía Guðný.

Útför Þóru Dungal fer fram í kyrr­þey. Hún lést 16. maí eftir erf­iða glímu við fíkni­sjúk­dóm­inn. Hún var 47 ára gömul og lætur eftir sig tvær dætur, Max Sól Dungal og Stefaníu Guðnýju.

„Mamma mín var breysk eins og við öll,“ segir Max Sól, eldri dóttir Þóru. „Hún hafði upp­lifað sinn skerf af áföllum og var lengi á flótta. Nú þarf hún ekki að flýja lengur. Við systir mín sitjum eftir og lífið er skrítið. En við höldum áfram í minn­ingu mömmu sem reyndi að vera góð mamma þó stundum hafi sárs­auk­inn og flótt­inn bara tekið yfir,“ segir hún.

Kom að móður sinni látinni

Stofn­aður hefur verið styrkt­ar­reikn­ingur fyrir Max Sól en þær mægður bjuggu saman. Max er 22 ára gömul og hún situr nú ein eftir með allar afborg­anir ásamt því að þurfa að standa algjör­lega á eigin fótum. Auk þess þarf hún að vinna úr áskor­unum síð­ustu ára sem barn for­eldris með fíkni­vanda, en einnig því mikla áfalli að versti ótti hennar hafi ræst og hún komið að móður sinni lát­inni og þeim missi sem hún hefur nú orðið fyrir.  

Söfn­un­ar­reikn­ing­ur­inn er á nafni Sigrúnar Lilju Guð­jóns­dóttur sem hefur verið fóstra Max síðan hún var 7 ára, og er það fyr­ir­komu­lag söfn­un­ar­innar með sam­þykki Max. Auk þess sem hún missti móður sína á dög­unum, hafði hún nýverið misst móð­ur­ömmu sína. 

Max Sól og Þóra

Þóra kvaddi móður sína fyrir stuttu á Facebook, en móðir hennar lést nýlega eftir langa bar­áttu við fíkn. „Þú fékkst snögg­lega hvíld eftir veik­indi og mikla bar­áttu þina við fíkn. Þú gast verið sjúk­lega fyndin og kald­hæðin og fólki fannst gaman í kringum þig. Þegar neyslan tók yfir breytt­ist margt. Það var þá sem ég týndi mömmu minni,“ skrif­aði hún til móður sinnar. 

Táknmynd X-kynslóðarinnar

Þóra Dungal varð tákn­mynd X-kyn­slóð­ar­innar á Íslandi skömmu fyrir alda­mótin þegar hún fór með aðal­hlut­verk í kvik­mynd­inni Blossa árið 1997.

Hún varð lands­þekkt undir lok 10. ára­tug­ar­ins. Hún hóf feril sem fyr­ir­sæta 18 ára gömul. Skömmu síðar fékk hún annað aðal­hlut­verkið í mynd­inni Blossi. Þar lék hún Stellu, sem ásamt Robba, eða Páli Banine, ferð­að­ist um landið og lenti í ýmsum ævin­týrum.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár