Friður hins heilaga refs?

Hefðu Bretar átt að semja frið við Hitler árið 1940 til að koma í veg fyrir frekara mann­fall?

Friður hins heilaga refs?

Rétt í þann mund að leið­toga­fundur Evr­ópu­ráðs­ins var að hefj­ast í Reykja­vík á dög­unum birt­ist furðu­leg yfir­lýs­ing „hóps frið­ar­sinna“ á Vísir.is. Þar var skorað „á leið­toga evr­ópskra ríkja að stöðva stríðið í Úkraínu nú þegar“ og „byrja frið­ar­ferlið strax í dag“.

Þótt ekki skuli efast á nokkurn hátt um ein­lægan frið­ar­vilja hóps­ins var yfir­lýs­ingin furðu­leg í ljósi þess að „leið­togar evr­ópskra ríkja“ (utan tveir) hafa ekk­ert yfir þessu stríði að segja og ekki á þeirra valdi að „stöðva [stríðið] taf­ar­laust með skil­yrð­is­lausu vopna­hléi“, eins og einnig sagði í yfir­lýs­ing­unni. Úkra­ínu­menn vilja ekki gef­ast upp fyrir Rússum eða semja um eitt­hvað sem verð­launar Rússa fyrir hina villi­mann­legu inn­rás þeirra, svo krafa hóps­ins um „skil­yrð­is­laust vopna­hlé“ felur í raun í sér að „leið­togar Evrópu“ eigi að knýja Zelensky for­seta til „frið­ar­ferlis“ með því að hætta öllum stuðn­ingi við her­varnir Úkraínu.

Aðeins þannig – ég ítreka þetta, aðeins þannig verður stríðið í Úkraínu „stöðvað taf­ar­laust“. Og í plagg­inu kemur fram það álit hóps­ins að stríðið í Úkraínu snú­ist um „ágrein­ing ríkja“. Engin inn­rás nefnd, eng­inn yfir­gangur, nei, „ágrein­ingur ríkja“.

Nú má skömm þeirra vera lengi uppi sem krefj­ast þess undir fölskum eða fávísum for­sendum af Úkra­ínu­mönnum að þeir beygi sig fyrir útlensku inn­rás­ar­liði og stríðs­glæpa­mönnum.

Glatað trausti þjóðarinnar

En kannski hafa að minnsta kosti sum þeirra sem skrif­uðu undir ekki áttað sig á því hvað þau voru í raun að skrifa undir. Það er ævin­lega fal­legra að lýsa yfir stuðn­ingi við frið en stríð. Og þetta mætti sosum afsaka, þótt illt sé að skrifa undir yfir­lýs­ingar um mik­ils­verð mál án þess að hugsað sé út í hvað þær þýða í raun, nema vegna þess að eins og vana­lega má finna dæmi úr sög­unni sem fólk hefði átt að líta til áður en það hóf penna sinn á loft.

Þar sem krafa um „frið“ felur í raun í sér að fall­ist er á enn meiri hörm­ungar en fylgir yfir­stand­andi stríði.

Og þau dæmi eru auð­fundin.

Og eitt blasir alveg við.

En ljótt er það.

Síðari heims­styrj­öldin hófst með því að Hitlers-Þýska­land og síðan Sov­ét­ríki Stalíns lögðu undir sig Pólland í sept­em­ber 1939. Bretland og Frakk­land lýstu yfir stríði á hendur Þjóð­verjum en fóru mjög hall­oka fyrstu miss­erin. Snemma í maí 1940 var ljóst að Neville Chamberlain, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hafði glatað trausti þjóðar og þings til að leiða Breta gegnum stríðið. Þá töldu íhalds­menn lífs­nauð­syn­legt að taka Verka­manna­flokk­inn í stjórn­ina en flokk­ur­inn neit­aði að setj­ast í stjórn undir for­ystu Chamberlains.

Íhalds­flokk­ur­inn kom því saman til að velja nýjan leið­toga. 

Vammlaus og kirkjusækinn

Tveir komu til mála. Annar var Halifax lávarður, rétt tæp­lega sex­tugur þá, hafði verið í póli­tík allt sitt líf, rólyndur maður, sjálfsör­uggur í fasi, pott­þéttur og sam­visku­samur en ekki hug­mynda­ríkur, afar hávax­inn, inn­múr­aður og inn­vígður í bresku yfir­stétt­ina. Hann var kall­aður „heilagi ref­ur­inn“ („holy fox“) af því hann var svo vamm­laus og kirkju­sæk­inn og lét hunda sína drepa refi við hvert tæki­færi eins og breskum aðal­s­mönnum sæmdi.

Og svo nátt­úr­lega af því „holy fox“ hljómar næstum eins og Halifax.

Halifax hafði verið utan­rík­is­ráð­herra Chamberlains frá 1938 og tók þátt í þeim alræmda fundi í München í sept­em­ber það ár þegar Bretar og Frakkar afhentu Hitler stóran hluta Tékk­lands á silf­ur­fati.

Hinn var Winston Churchill, hálf­sjö­tugur og hafði verið meðal mest áber­andi en um leið umdeild­ustu stjórn­mála­manna Breta í ára­tugi. Hann var skjót­ráður en oft fljót­fær, barma­fullur af hug­myndum en þær ekki allar jafn­góðar, tæp­lega með­al­maður á hæð, hvikur, bjó yfir snert af snilli­gáfu en átti mjög til að strjúka liggj­andi köttum öfugt.

Hvað var í viskíglasinu?

Mjög auð­velt er að herma ýmsar sakir og sumar alvar­legar upp á Churchill en þær verða látnar liggja milli hluta hér. Þó skal tekið fram að drykkju­skapur Churchills er gjarnan mjög ýktur; það viskíglas sem hann hafði ein­lægt í hendi inni­hélt aðal­lega vatns­sull – „fremur munnskol en áfengi“ sagði ein­hver sem dreypti á glasi hans.

Enginn vafi er á því að meiri­hluti þing­manna Íhalds­flokks­ins hefði heldur kosið Halifax en Churchill. Lávarð­ur­inn vinstri­hand­ar­lausi var maður kerf­is­ins, þeirra maður. Churchill áttu þeir bágt með að treysta af ýmsum ástæðum og það var ein­lægt vesen í kringum hann.

Á hinn bóg­inn var Churchill aug­ljós­lega meira dríf­andi maður en hinn hæg­láti Halifax. Ekki var heldur hægt að neita því að hann hafði haft rétt fyrir sér um hætt­una af Hitler árin á undan meðan þeir Chamberlain og Halifax óðu enn í villu um að hægt væri að hafa hemil á nas­ista­for­ingj­anum með vana­legri diplómasíu.

Churchill verður ofan á

Svo fór að Churchill varð ofan á í leið­toga­vali 10. maí. Kannski var ástæðan sú að Halifax gerði sér sjálfur grein fyrir að Churchill yrði rögg­sam­ari stríðs­leið­togi, en kannski hik­aði utan­rík­is­ráð­herr­ann bara of lengi. Hann var vanur því að láta ganga á eftir sér eins og „herra­mönnum“ sæmdi. Altént varð afar örlaga­ríkt á næstu vikum að hinn her­skái Churchill en ekki Halifax sat í Downingstræti 10.

Því sama dag hófst árás Þjóð­verja í vestur og gekk satt að segja eins og í lyga­sögu. Eftir aðeins tvær vikur var ljóst að hinn mikli franski her var að falli kom­inn og kröfur um vopna­hlé (það er að segja upp­gjöf) orðnar háværar í Frakk­landi.

Þeir sem vildu umfram allt frið­mæl­ast við Þjóð­verja spurðu gjarnan þau dægrin af hverju þeir ættu að hætta lífi sínu fyrir þá bresku lávarða, sem rækju stríðið áfram og ætl­uðu sér að „berj­ast til síð­asta Frakka“.

(Þeir tóku í alvöru svona til orða, sjá Le Chagrin et la Pitié eftir Marcel Ophuls.)

En allt gekk á aft­ur­fót­unum hjá Bretum líka.

Milliganga Mussolinis?

Og þá lagði Halifax fram þá til­lögu í bresku stríðs­stjórn­inni að leitað yrði hóf­anna um „frið“ við Þjóð­verja. Af því sem á eftir fylgdi er æsi­leg saga sem ekki er tóm til að rekja hér en um tíma virt­ist raun­veru­leg hætta á að til­laga Halifax næði fram að ganga. Svo fór þó að Churchill náði að kveða hana í kút­inn.

Hann var vissu­lega ekki einn um að vísa á bug kröfum um að „stöðva stríðið [í Frakk­landi] þegar í stað“ með því að koma á „skil­yrð­is­lausu vopna­hléi“.

Verka­manna­flokk­ur­inn studdi Churchill til dæmis dyggi­lega að þessu leyti og vildi enga upp­gjöf.

En ef Halifax hefði orðið for­sæt­is­ráð­herra 10. maí, þá er þó sann­ar­lega hætt við að hann hefði náð að „byrja frið­ar­ferlið“ með milli­göngu Mus­sol­inis, fas­ista­leið­toga Ítalíu, eins og hann taldi æski­legt.

Pútin skýtur upp kollinum

„Hætta á … hætt við“? Hvaða orða­lag er þetta?

Hefði ekki verið undir öllum kring­um­stæðum æski­legt að „úkljá ágrein­ing [þess­ara] ríkja“ með því að „ræða og semja um langvar­andi frið“? – svo ég vitni enn í yfir­lýs­ingu „hóps frið­ar­sinna“ árið 2023.

Reyndar ekki.

Skoðum það. Nú er að sönnu óvíst hversu lágt Bretar hefðu þurft að leggj­ast á þessum erf­iða tíma­punkti til að tryggja sér „vopna­hlé“ við Þjóð­verja. Í raun hefði auð­vitað falist í þessu upp­gjöf, rétt eins og í kröfu um „skil­yrð­is­laust vopna­hlé í Úkraínu“ býr ekk­ert annað en krafa um upp­gjöf Úkra­ínu­manna, algjöra eða að stórum hluta.

Pútín Rúss­lands­for­seti býður ekki upp á neitt annað. Svo ein­falt er það eftir það sem á undan er gengið.

Flotinn bundinn við bryggju

Í allra besta falli hefðu Bretar árið 1940 þurft að binda flota sinn við bryggju, leysa upp flug­her­inn og veita Þjóð­verjum aðgang að „vopna­hlés­eft­ir­liti“ á æðstu stöðum í Bret­landi.

Bretar hefðu kannski ekki verið hernumdir en alveg múl­bundnir. Þjóð­verjar hefðu þá haft frjálsar hendur um aðdrætti og útflutn­ing á Atl­ants­hafi. Verð­mætir málmar til hern­að­ar­fram­leiðslu og ómælt elds­neyti hefðu streymt til upp­bygg­ingar á hern­að­ar­vél Hitlers.

En inn­rásin í Sov­ét­ríkin sum­arið 1941?

Hún mis­heppn­að­ist að lokum eins og við vitum. Ástæð­urnar voru ýmsar. Óþrjót­andi mann­fjöldi Rauða hers­ins sem Stalín fórn­aði hik­laust. Miklu meiri og full­komn­ari her­gagna­fram­leiðsla Sov­ét­manna en Þjóð­verja óraði fyrir. Og síð­ast en ekki síst gríð­ar­leg aðstoð sem Sov­ét­mönnum barst frá Bret­landi og þó fyrst og fremst Banda­ríkj­unum frá og með 1941.

En ef Bretar hefðu samið við Þjóð­verja 1940 hefðu her­sveitir Hitlers þá átt mun meiri mögu­leika á að sigra Rauða her­inn.

Drepa átti hundruð milljóna

Fyrir því eru ýmsar her­fræði­legar ástæður sem ekki er tóm til að rekja hér (inn­rásin hefði til dæmis getað haf­ist fyrr), en ég nefni bara þetta: Þótt Franklin Roosevelt Banda­ríkja­for­seti fyr­ir­liti nas­ista­stjórn­ina í Þýska­landi vissu­lega af öllu hjarta og vildi ólmur fá að taka þátt í að kné­setja hana, þá er úti­lokað að hann hefði séð sér fært að koma til liðs við Stalín 1941 ef Bretar hefðu ekki verið til staðar í stríð­inu.

Og ef Hitlers-Þýska­land hefði þá náð að leggja undir sig Evr­ópu­hluta Sov­ét­ríkj­anna til fram­búðar, hvað þá?

Við vitum hvað hefði gerst þá. Þjóð­verjar voru búnir að gera um það nákvæm plön sem byggð­ust reyndar á yfir­lýs­ingum sem Hitler hafði gefið alveg blygð­un­ar­laust í bók sinni Mein Kampf árið 1925.

Það átti ein­fald­lega að tor­tíma öllum Rússum, Úkra­ínu­mönnum, Hví­trússum, Tartörum, Pól­verjum, að ekki sé minnst á Gyðinga og Rómafólk … það átti að þræla út og síðan drepa með vopnum, gasi og þó aðal­lega hungri hund­ruð millj­óna manna, eyða heilu þjóð­unum, svo kyn­hreinir Þjóð­verjar gætu eft­ir­leiðis haft það huggu­legt á búgörðum sínum á pólsku og úkra­ínsku og rúss­nesku slétt­unum.

„Kyn­hreinir Þjóð­verjar gætu haft það huggu­legt á búgörðum sínum á pólsku og úkra­ínsku og rúss­nesku slétt­unum.“

Klíkur innan yfirstéttar

Til þessa hefði „frið­ar­krafa“ Halifax lávarðar og nóta hans mjög auð­veld­lega getað leitt.

Sú krafa sem ekki var sett fram af því Halifax væri ein­hvers konar und­ir­lægja Þjóð­verja og hvað þá nas­ista, heldur ein­fald­lega af því hann vildi ekki berj­ast fram í rauðan dauð­ann.

Ýmsir frið­ar­hópar á Bret­landi tóku undir kröf­una um „taf­ar­laust vopna­hlé“. Það voru bæði ein­lægir frið­ar­sinnar sem mundu hryll­ing fyrri heims­styrj­aldar en ekki síður klíkur innan yfir­stétt­ar­innar þar sem Þjóð­verja- og jafn­vel nas­ista­vinir leynd­ust furðu víða.

En Churchill, Attlee, leið­togi Verka­manna­flokks­ins, og félagar tóku sem betur fer ekki undir frið­ar­kröf­urnar.

Því það hefði nærri því áreið­an­lega leitt til enn hræði­legri hörm­unga en þó riðu yfir næstu árin.

Ekki vitur eftir á

Og vel að merkja er það ekki að vera „vitur eftir á“ að varpa önd­inni léttar yfir því að ekki skyldi hlustað á frið­ar­hópana 1940.

Það var ekki af „stríðsæs­ingum“ sem kröf­unum um frið­ar­um­leit­anir við Þjóð­verja var hafnað.

Churchill var að sönnu eng­inn frið­ar­sinni, nokkuð langt frá því jafn­vel, en ástæða númer eitt, tvö og þrjú fyrir stað­festu hans var þó sú að hann hafði glögg­skyggni og hug­rekki til að horfast í augu við ein­ræð­is­herr­ann.

Og átta sig á hvað hann sá þar.

Einskæra illsku.

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Páll Pálsson skrifaði
    Þad hjàlpađi líka samnigur stalin vid japan ....hvenin hefđi orustan um mosku fariđ ef ussar hefdi ekki getaď flutt hermen frà austur kyrahafi ..hefđu japnir ràđist à russa í stađin fyrir perl harbur
    0
  • Tjörvi Schiöth skrifaði
    Svar mitt við þessu:
    https://m.facebook.com/story.php?story_fbid=10219640059147109&id=1685374526
    -1
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Og síðast en ekki síst gríðarleg aðstoð sem Sovétmönnum barst frá Bretlandi og þó fyrst og fremst Bandaríkjunum frá og með 1941."
    Aðstoðin barst að mestu með skipalestum til íshafshafna sovétríkjanna. Kostaði miklar mannfórnir að ótöldum öðrum kostnaði. Pútín er hljóður um þetta á friðardaginn þegar hann hrósar Stalín. Yngri kynslóð rússa veit varla af þessu.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár