Áður en haldið er út í náttúrubað þarf að ákveða hvert skal fara, en framboðið af skemmtilegum og fjölbreyttum leiðum er nær óendanlegt.
Einar Skúlason, göngugarpur og leiðsögumaður, kynnir hér fimm bestu gönguleiðirnar á höfuðborgarsvæðinu að hans mati. Einar er stofnandi leiðsöguappsins Wappið og hefur umsjón með því. Hann starfar einnig sem leiðsögumaður hjá gönguhópnum Vesen og vergangur.
Hringur um Gálgahraun
Gálgahraun er sérstæð hraunspilda á Álftanesi sem var friðlýst árið 2009. Það er hluti af Búrfellshrauni sem rann úr Búrfelli ofan Hafnarfjarðar fyrir um 8.000 árum. Aðrir hlutar hraunsins eru til dæmis Garðahraun og Hafnarfjarðarhraun. Hraunið er bæði úfið og hrikalegt. Talið er að glóandi hraunstraumur hafi runnið út á mýrlendi, vatnsgufurnar hafi sprengt það í sundur og myndað þannig gíga og stórar gjár. Svipaðar hraunmyndanir er að finna í Dimmuborgum í Mývatnssveit. Í hrauninu leynist að minnsta kosti einn hellir.
Gálgahraun er kennt við …
Athugasemdir