Tengingin er nærandi og sjálfbær

Hjónin Hulda Jóns­dóttir Tölgyes og Þor­steinn V. Ein­ars­son fundu ást­ina fyrir tæpum ára­tug og leit­uðu til sál­fræð­ings þegar erf­ið­leikar bönk­uðu upp á. Þar kynnt­ust þau tækjum og tólum til að tengj­ast aftur og í dag vita þau hvað á að gera ef þau eru að detta aftur í sama hjólfarið þar sem veg­ur­inn er grýttur.

Tengingin er nærandi og sjálfbær
Djúp teng­ing Hjónin Hulda Jóns­dóttir Tölgyes og Þor­steinn V. Ein­ars­son hafa tek­ist á við ýmsar áskor­anir en með aðstoð para­sál­fræð­ings lærðu þau að vera tengd og vera saman. Tengd saman. Mynd: Heiða Helgadóttir

Vinur Þor­steins V. Ein­ars­sonar er frændi Huldu Jóns­dóttur Tölgyes og árið 2014 benti hann þeim í raun­inni á hvort annað; nefndi að þeim gæti kannski lit­ist vel á hvort annað. Þau urðu vinir á Facebook og hitt­ust síðar á kaffi­húsi. Hann keyrði hana heim og þau hafa verið saman síðan þá. Í dag eru Hulda Jóns­dóttir Tölgyes og Þor­steinn V. Ein­ars­son hjón og eiga tvö börn saman. Fyrir átti hann son.

„Þetta er pínu klisja,“ segir Þor­steinn. „Það var ein­hver djúp teng­ing og við höfum bara verið saman síðan. En síðan byrj­uðum við að búa saman og eign­uð­umst barn og þá fór þetta að verða krefj­andi.“

„Það var ein­hver djúp teng­ing og við höfum bara verið saman síðan“

„Við bjuggum nátt­úr­lega ekki saman fyrst,“ segir …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár