Hvað er ást? Sál­fræð­ing­arnir Ólöf Edda Guð­jóns­dóttir og Hrefna Hrund Pét­urs­dóttir tala um hvað ást er og að gott sam­band hafi góð áhrif á heils­una. Mynd: Heiða Helgadóttir

Gott samband getur bætt heilsuna og lengt lífið

Sál­fræð­ing­arnir Hrefna Hrund Pét­urs­dóttir og Ólöf Edda Guð­jóns­dóttir segja frá nið­ur­stöðum rann­sókna sem sýna fram á að heil­brigð og ham­ingju­rík sam­bönd hafi vernd­andi áhrif á and­lega og lík­am­lega heilsu. Gott sam­band hefur þannig jákvæð áhrif á lágt sjálfs­mat, þung­lyndi, kvíða og hjarta- og æða­sjúk­dóma.

Ef ham­ingja í sam­bandi hefur vernd­andi áhrif á heils­una, skal byrjað á byrj­un­inni. Ein­fald­lega með því að spyrja, hvað er ást? „Í byrjun eru þetta horm­ónar,“ segir Hrefna Hrund Pét­urs­dóttir sál­fræð­ingur, en síðan tekur við annað skeið þar sem talað er um „þroskaða ást“ heldur hún áfram.

Annar sál­fræð­ingur, Ólöf Edda Guð­jóns­dóttir, skýrir ást með svip­uðum hætti. „Oft er talað um tvenns konar ást,“ segir hún: „Fyrst er það þessi líffræði­lega ást þegar fólk er að kynn­ast mak­anum. Þá er ástandið horm­óna­tengt, sem snýst meðal ann­ars um lykt. Það end­ist í um ár. Síðan er það sem við höfum kallað þroskaða ást, sem er eitt­hvað sem þarf að vinna í. Til að við­halda öruggum tengslum er mik­il­vægt fyrir pör að tala saman. Ef annar aðil­inn hefur ekki átt góð geð­tengsl áður er oft erfiðara að búa til eða …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár