Í launaviðtali með móður sinni

„Manni á að bera gæfa til þess að hætta á toppnum og við hjónin erum að gera það,“ segir Egill Örn Jóhanns­son sem kveður sem fram­kvæmda­stjóri For­lags­ins. Í átta­tíu ár hefur fjöl­skyldan starfað við bóka­út­gáfu. Á hans tíma hefur hann séð margt og upp­lifað.

Í launaviðtali með móður sinni

Egill Örn Jóhanns­son mætir sport­legur í Aðal­stræti 2 í hettu­peysu yfir svartri skyrtu og þegar búinn að drekka tvo kaffi­bolla, að tjilla á kaffi­húsi á miðjum vinnu­degi, hvorki með fundi né skila­fresti hang­andi yfir sér. Hann þiggur samt þriðja boll­ann sem Margrét Mart­eins­dóttir blaða­kona á stassjón hellir upp á og við röbbum aðeins um dag­inn og veg­inn í sól­inni. Og nýtt líf!

Hann stendur á tíma­mótum, slakur og kátur, og hættur sem fram­kvæmda­stjóri hjá For­lag­inu eftir að hafa ­verið vak­inn og sof­inn yfir rekstri For­lags­ins frá stofnun þess, ásamt Þórhildi Garð­ars­dóttur, eig­in­konu sinni, sem lét einnig af störfum sem fjár­mála­stjóri. Bók­mennta­fé­lagið Mál og menn­ing er eig­andi For­lags­ins eftir að Egill Örn seldi hlut sinn, um 13 pró­sent, fyrir um það bil tveimur árum. Áður hafði Jóhann Páll, pabbi hans, selt 42,5% hlut sinn.

Raunar rennur starfs­saga Egils saman við allan aðdrag­anda þess að Forlagið varð til í núver­andi …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár