Þrír bankar sem högnuðust um 66,9 milljarða króna í fyrra

Hagnaður stærstu banka lands­ins dróst saman í fyrra en vaxta­tekjur þeirra uxu um 24 pró­sent milli ára í umhverfi síhækk­andi stýri­vaxta og verð­bólgu. Seðla­bank­inn er búinn að biðja þá um að halda að sér höndum í að skila pen­ingum til hlut­hafa á næst­unni. Heim­ildin tók saman tíu stað­reyndir um upp­gjör Lands­bank­ans, Arion banka og Íslands­banka.

Þrír bankar sem högnuðust um 66,9 milljarða króna í fyrra

1 Hagn­að­urinn minni en árið áður

Allir stóru bank­­arnir þrír; Lands­bank­inn, Arion banki og Íslands­banki, hafa nú birt árs­­reikn­inga sína vegna árs­ins 2022. Sam­an­lagður hagn­aður þeirra á því ári var 66,9 millj­arðar króna. Það er nokkuð minna en þeir þén­uðu árið áður, sem var gríð­ar­lega arð­bært. Þá var hagn­aður bank­anna þriggja 81,2 millj­arðar króna, eða 170 pró­sent meira en þeir högn­uð­ust um árið 2020. Í fyrra hagn­að­ist Lands­bank­inn minnst, eða um 17 millj­arða króna, en hinir tveir voru með svip­aðar hagn­að­ar­tölur. Arion banki hagn­að­ist um 25,4 millj­arða króna en Íslands­banki um 24,5 millj­arða króna.

Bank­arnir þrír urðu allir til á grund­velli neyð­ar­laga sem sett voru haustið 2008, í kjöl­far banka­hruns­ins. Þá voru eignir fall­inna banka fluttar með handafli yfir á nýjar kenni­töl­ur. Sam­an­lagður hagn­aður stóru bank­anna frá hruni er 817,1 millj­arðar króna. Mestur var hann árið 2015, en þá lit­aði umfangs­mikil eigna­sala upp­gjör­ið.

2 Vaxtatekjur í aðalhlutverki

Stærsta tekju­lind bank­anna í fyrra voru hreinar vaxta­tekjur. Þær voru sam­tals 129,9 millj­arðar króna, eða næstum 25 millj­örðum krónum meira en þær voru árið 2021. Hreinar vaxta­tekjur juk­ust því um 24 pró­sent milli ára eftir að hafa ein­ungis vaxið um 2,3 pró­sent milli 2020 og 2021. 

Vaxta­tekj­urnar byggja á mun­inum á þeim vöxtum sem bank­arnir borga fyrir að fá pen­inga að láni og þeim vöxtum sem þeir rukka fyrir að lána ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum fjár­muni. Sá munur kall­ast vaxta­munur. Hann var 2,7 til 3,1 pró­sent á síð­asta ári, sem er meiri munur en var árið áður, þegar hann var 2,3 til 2,8 pró­sent. Mestur var hann hjá Arion banka en minnstur hjá Lands­bank­anum, eina stóra banka lands­ins sem er að mestu í eigu íslenska rík­is­ins.Vaxta­munur íslenskra banka er tals­vert meiri en þekk­ist á meðal ann­arra nor­rænna banka. 

3 Hreinar þóknanatekjur upp um tíu prósent

Hinn stóri tekju­póst­ur­inn í grunn­rekstri banka eru þókn­ana­tekjur, stundum kall­aðar þjón­ustu­tekjur. Þar er um að ræða þókn­­anir fyrir til dæmis eigna­­stýr­ingu og fyr­ir­tækja­ráð­­gjöf en líka þau gjöld sem ein­stak­lingar og heim­ili greiða fyrir ýmis konar þjón­ustu sem bank­arnir veita þeim. Hreinar þókn­ana­tekjur Lands­bank­ans, Arion banka og Íslands­banka voru 40,8 millj­arðar króna á síð­asta ári. Það er tíu pró­sent meira en þær skil­uðu bönk­unum þremur í hreinar tekjur á árinu 2021. Hæstar voru þókn­ana­tekj­urnar hjá Arion banka, 16,1 millj­arður króna, en lægstar hjá Lands­bank­anum, 10,6 millj­arðar króna. 

4 Eigið fé tveggja minnkaði

Bankar halda á miklu magni af eigin fé. Það magn sem þeir þurfa að halda á, til að geta til dæmis tek­ist á við áföll og virð­is­rýrnun lána, var aukið veru­lega eftir banka­hrunið til að koma í veg fyrir að sama staða kæmi upp á ný. Eigið fé við­skipta­bank­anna þriggja var sam­an­lagt 686,3 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Það er 5,3 millj­örðum krónum meira en þeir áttu í eigið fé ári áður en eigið fé tveggja banka, Arion banka og Lands­bank­ans, dróst lít­il­lega saman milli ára á meðan að það jókst hjá Lands­bank­anum. 

5 Arðsemi eigin fjár verri en 2021

Sá mæli­kvarði sem stjórn­endur banka nota til að mæla árangur sinn er ekki endi­lega hversu mik­ill hagn­aður er í krónum talið, heldur hver hlut­falls­leg arð­semi þessa eigin fjár er. Stjórnir við­skipta­banka á Íslandi gera kröfu um að arð­semi eigin fjár sé að minnsta kosti tíu pró­sent. Sögu­lega þá náði hún að vera sam­eig­in­lega rúm­lega ell­efu pró­sent að með­al­tali hjá bönk­unum þremur á árunum 2009 til 2018, en þar vigtar inn í að ein­skiptis­tekjur vegna t.d. sölu eigna voru umtals­verðar á fyrri hluta þess tíma­bils. 

Arðsemi eigin fjár allra bank­anna þriggja jókst umtals­vert á árinu 2021, þegar hún var á bil­inu 10,8 til 14,7 pró­sent. Í fyrra dróst hún saman hjá öllum og var á bil­inu 6,3 til 13,7 pró­sent, minnst hjá Lands­bank­anum og mest hjá Arion banka. Hjá Íslands­banka var hún 11,1 pró­sent. Stærsta ástæða þess að arð­semin er svona lág hjá Lands­bank­anum er lækkun á gang­virði óskráðra eign­ar­hluta bank­ans í Eyri Invest hf. sem nam 10,5 millj­örðum króna í fyrra. Lands­bank­inn á 14,1 pró­sent í Eyri Invest, sem er langstærsti eig­andi Marel. 

Mark­aðsvirði Marel lækk­aði um 43,9 pró­sent á síð­asta ári, úr 663,5 millj­örðum króna í tæp­lega 367 millj­arða króna.

6 Kostnaðarhlutfallið breyttist

Önnur leið til að auka hagnað er að spara í kostn­aði. Þar snýst allt um að ná niður hinu svo­kall­aða kostn­að­ar­hlut­falli, sem mælir hvað kostn­að­ur­inn er stórt hlut­fall af tekj­um. Yfir­lýst mark­mið íslensku bank­anna er að ná því hlut­falli niður fyrir 40-50 pró­sent. Ein­faldasta leiðin til að ná kostn­að­­ar­hlut­­falli niður er að fækka starfs­­fólki.

Kostn­að­­ar­hlut­­fall Arion banka var 45,6 pró­­sent og hjá Íslands­banka lækk­­aði það úr 46,2 í 42,1 pró­­sent milli ára. Mest var það hjá Lands­bank­anum þar sem kostn­að­ar­hlut­fallið mæld­ist 46,8 pró­sent. Það hafði verið 43,2 pró­sent árið áður.

7 Seðlabankinn biður bankana að fara rólega í útgreiðslur

Ein skil­virkasta leiðin til að auka arð­semi eigin fjár er að minnka ein­fald­lega eigið féð með því að greiða það eigið fé sem þeir halda á umfram kröfur eft­ir­lits­að­ila út til hlut­hafa. Bæði Arion banki og Íslands­banki hafa það sem yfir­lýst mark­mið að gera það, í gegnum arð­greiðslur og end­ur­kaup á bréf­um. Minna eigið fé þýðir að hlut­falls­leg arð­semi eig­in­fjár í ann­ars óbreyttum rekstri eykst. Seðla­bank­inn hefur hins vegar beðið stóru bank­anna um að stíga var­lega til jarðar þegar kemur að útgreiðslu á eigin fé á næst­unni. 

Arion banki, eini stóri bank­inn sem er ekki að neinu leyti í opin­berri eigu, hefur verið allra banka dug­leg­astur í þess­ari veg­ferð. Alls greiddi bank­inn út arð eða keypti eigin bréf af hlut­höfum fyrir 31,5 millj­­­arða króna ​á árinu 2021. Í fyrra skil­aði Arion banki skilað um 32,3 millj­­örðum króna til hlut­hafa sinna í gegnum arð­greiðslur og end­­ur­­kaup á bréf­­um. Bankinn ætlar að greiða hlut­höfum sínum út 12,5 millj­arða króna í arð á grund­velli þessa árang­urs í ár auk þess sem til stendur að halda áfram að kaupa eigin bréf af hlut­höfum.

Íslands­banki greiddi út 11,9 millj­arða í arð­greiðslu í mars 2022 vegna árs­ins 2021. stjórn bank­ans leggur til að hlut­hafar fái 12,3 millj­arða króna í arð vegna síð­asta árs. Auk þess liggur fyrir áætlun um end­ur­kaup á eigin bréfum upp á 15 millj­arða króna. Í árs­reikn­ingi bank­ans segir að í ljósi „alþjóð­legrar efna­hag­sóvissu og óstöð­ug­leika á fjár­magns­mörk­uðum hefur Seðla­banki Íslands beðið íslensku bank­anna um að stíga var­lega til jarðar þegar kemur að útgreiðslu eigin fjár á næst­unni. Því hefur bank­inn í hyggju að ráð­ast í end­ur­kaup eigin hluta­bréfa með hefð­bundnu end­ur­kaupa­ferli að fjár­hæð fimm millj­arðar króna. Þeim tíu millj­örðum króna sem eftir standa verður bætt aftur við eigið fé bank­ans til útreikn­ings eig­in­fjár­hlut­falla. Bankinn mun óska eftir end­ur­nýj­aðri heim­ild til end­ur­kaupa á eigin hluta­bréfum á aðal­fundi bank­ans í mars og hefur áform um að bæta enn frekar sam­setn­ingu eigin fjár fyrir árs­lok 2024.“ 

Lands­­bank­inn greiddi sam­tals 20,6 millj­arða króna í arð á árinu 2022. Í nýbirtum árs­reikn­ingi hans segir að banka­ráð Lands­bank­ans leggi til að 8,5 millj­arðar króna verði greiddir út vegna síð­asta rekstr­ar­árs. Verði til­lagan sam­þykkt munu arð­greiðslur Lands­bank­ans á árunum 2013 til 2023 sam­tals nema 175,2 millj­örðum króna.

8 Há laun og bónusgreiðslur á fullu í einum banka

Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, fékk alls 87,2 millj­ónir króna í laun frá bank­anum í fyrra eða um 7,3 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði. Heild­ar­laun hans, sem sam­an­standa af launum, árang­urstengdri greiðslu upp á 9,1 milljón króna og mót­fram­lagi í líf­eyr­is­sjóð, hækk­uðu um 25 pró­sent milli ára. Á árinu 2021 fékk Benedikt 69,8 millj­ónir króna greiddar, eða um 5,8 millj­ónir króna á mán­uði að með­al­tali. Arion banki hefur einn stóru bank­anna inn­­­leitt kaupauka- og kaup­rétt­­ar­­kerfi sem umb­unar starfs­­fólki umtals­vert. Í fyrr gjald­færði bank­inn 1,6 millj­arð króna vegna kaupauka­kerf­is­ins sem er svipuð upp­hæð og fór í bónusa árið áður, en það kerfi virkj­ast ef Arion banki nær því mark­miði að vera með meiri arð­semi en helstu sam­keppn­is­að­ilar sínir. Það hefur náðst síð­ustu tvö ár. Sam­­kvæmt kaup­rétt­­ar­á­ætlun Arion banka geta allir fast­ráðnir starfs­­menn keypt hluta­bréf í bank­­anum fyrir 1,5 milljón króna einu sinni ári í fimm ár, en áætl­unin stendur fram á árið 2026. 

Heild­ar­laun banka­stjóra og lyk­il­stjórn­enda hinna stóru bank­anna, Lands­bank­ans og Íslands­banka, breytt­ust líka í fyrra. Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans, var með 61,6 millj­ónir króna í heild­ar­laun á árinu 2022, eða 5,1 milljón króna að með­al­tali á mán­uði. Laun hennar hækk­uðu um 14 pró­sent á milli ára.

Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka var með 59,8 millj­ónir króna í heild­ar­laun á síð­asta ári. Það var rúmum tveimur millj­ónum krónum meira en hún fékk í föst laun, hlunn­indi og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóði á árinu 2021. Þá voru heild­ar­laun hennar hins vegar 68,6 millj­ónir króna vegna þess að Birna fékk sér­staka 10,9 milljón króna greiðslu vegna yfir­vinnu í tengslum við und­ir­bún­ing hluta­fjár­út­boðs og skrán­ingar Íslands­banka á markað sum­arið 2021.

9 Fækkar hjá Íslandsbanka en fjölgar hjá Arion banka

Lands­bank­inn er að nán­ast öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins þótt nokkur fjöldi starfs­manna eigi lít­inn hlut. Arion banki hefur verið skráður á markað frá sumr­inu 2018. Fjöldi hlut­hafa hans var 7.400 í lok árs 2020, 11.287 í lok árs 2021 og 12.059 um síð­ustu ára­mót. Þeim hefur því fjölgað um 63 pró­sent á tveimur árum. 

Íslands­banki var einka­væddur að hluta sum­arið 2021 þegar íslenska ríkið seldi 35 pró­sent hlut í bank­anum í almennu útboði, sem fjölg­aði hlut­höfum hans gríð­ar­lega. Hlut­haf­arnir voru um 24 þús­und eftir að því útboði lauk. Alls 22,5 pró­sent í við­bót var svo selt í lok­uðu útboði í mars 2022 til alls 207 fjár­festa. 

Hlut­höfum í bank­anum hefur fækkað skarpt frá almenna útboð­inu og voru ríf­lega 13 þús­und í lok síð­asta árs. Þeim hefur því fækkað um ell­efu þús­und frá sumr­inu 2021. 

10 Unnið að gerð stærsta banka á Íslandi

Nýverið var greint frá því að stjórn Kviku hefði óskað eftir því við stjórn Íslands­banka að hefja við­ræður um sam­runa bank­anna tveggja. Stjórn Íslands­banka sam­þykkti að hefja við­ræður á fundi sínum 9. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Báðir bank­arnir eru skráðir á hluta­bréfa­markað, en Íslands­banki er miklu stærri en Kvika banki. Virði beggja hefur tekið stökk upp á við eftir að greint var frá beiðn­inni um sam­runa­við­ræður.

Mark­aðsvirði Íslands­banka er nú 255 millj­arðar króna á meðan að mark­aðsvirði Kviku banka er um 97 millj­arðar króna. Verði af sam­ein­ung­unni mun sam­ein­aður banki verða sá stærsti á Íslandi.

Íslands­banki er til rann­sóknar hjá fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands í tengslum við fram­kvæmd á lok­aða útboð­inu á hlut rík­is­ins í bank­anum í fyrra­vor. Frummat þess liggur þegar fyrir og þar kemur fram að eft­ir­litið telji Íslands­banka hafa brotið lög og reglur. Í nýbirtum árs­reikn­ingi Íslands­banka er gert ráð fyrir því að greiða stjórn­valds­sekt vegna þessa en ekki er greint frá því hversu há sú færða skuld­bind­ing er. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár