Þarf að mæta manninum sem braut á henni aftur fyrir dómi

Dómur yfir manni sem bauð konu skjól og braut síðan á henni er ónýtur, vegna þess að íslenska ríkið braut mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu við skipan dóm­ara við Lands­rétt. Þessi kona og fleiri í sömu stöðu þurfa því að mæta ger­anda sínum aftur fyrir dómi eftir úrskurð end­ur­upp­töku­nefndar. Dósent í lögum hvetur brota­þola til að sækja skaða­bætur til rík­is­ins en fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra vísar allri ábyrgð til Alþingis.

Þarf að mæta manninum sem braut á henni aftur fyrir dómi
Fjórir af fimmtán Ákvörðun Sigríðar Á. Andersen um að breyta röðun á lista yfir dóm­ara­efni Lands­réttar og skipa fjóra dóm­ara sem ekki voru á lista mats­nefndar hefur haft miklar afleið­ingar fram á þennan dag. Mynd: Dómsmálaráðuneytið

Kona sem fann fyrir ógleði­til­finn­ingu á skemmti­stað, gekk út og kastaði upp, ráf­aði þaðan og end­aði í inn­keyrslu við hús, þar sem hún fann fyrir miklum dofa í lík­am­anum, svo miklum að hún gat ekki staðið í fæt­urna. Maður sem var búsettur í húsi við inn­keyrsl­una varð kon­unnar var, færði henni pappír til að þurrka sér og átti við hana ein­hver sam­skipti. Hann reisti kon­una við, gekk undir henni inn í hús og inn í íbúð sína, þar sem hann lagði hana í rúm. Síðar lýsti konan því fyrir dómi að hana hefði alls ekki grunað að mað­ur­inn hefði eitt­hvað illt í huga, en hann var dæmdur fyrir að brjóta á henni kyn­ferð­is­lega þetta kvöld. 

Fyrir dómi lýsti konan því hvernig Eldin hafi allt í einu verið kom­inn upp í rúm með henni, nak­inn, og byrjað að káfa á lík­ama hennar. Hún hefði ekki getað hreyft sig vegna doða­til­finn­ingar, …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár