Ákæra í Lindsor-málinu á leið til dómstóls í Lúxemborg 14 árum eftir að meint brot voru framin

Lindsor var aflands­fé­lag sem keypti skulda­bréf á yfir­verði af Kaup­­­þingi, ein­­­stökum starfs­­­mönnum þess banka og félagi í eigu vild­­­ar­við­­­skipta­vinar Kaup­­­þings sama dag og Geir H. Haarde bað guð að blessa Ísland.

Ákæra í Lindsor-málinu á leið til dómstóls í Lúxemborg 14 árum eftir að meint brot voru framin
Bréf Rannsókn á Lindsor-mál­inu hófst þegar Davíð Odds­son, þá seðla­banka­stjóri og nú rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, sendi grein­ar­gerð sem huldu­menn höfðu afhent hon­um, til efna­hags­brota­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra þann 9. des­em­ber 2008.

Sak­sókn­ari í Lúx­em­borg, sem hefur haft hið svo­kall­aða Lindsor-mál til rann­sóknar árum saman, hefur að mestu lokið vinnu við gerð ákæru í mál­inu og mun í nán­ustu fram­tíð senda hana til dóm­stóla þar í landi. 

Þetta segir Henri Eippers, tals­maður dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í Lúx­em­borg, í svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar.

Það þýðir þó ekki endi­lega að réttað verði í mál­inu, enda réttar­­kerfið í Lúx­em­borg ólíkt því sem Íslend­ingar eiga að venj­­­ast. Ákæra sak­sókn­ara er send til svo­­­kall­aðs „council chamber“ hér­­­aðs­­­dóms­­­stigs Lúx­em­borgar sem mun taka ákvörðun um hvort að málið fái efn­is­­­með­­­­­ferð eða verði vísað frá. Sak­­­born­ingar í mál­inu munu á þeim tíma­­­punkti fá tæki­­­færi til að setja fram varnir í mál­in­u. Auk þess er hægt að áfrýja nið­ur­stöðu dóm­stóls­ins til sér­staks áfrýj­un­ar­dóm­stóls, sem hefur loka­vald í mál­inu. 

Rann­sókn­ar­dóm­ari lauk rann­sókn sinni á mál­inu árið 2020 og vís­aði nið­ur­stöðum sínum til sak­sókn­ara …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár