Stimplaði sig út af næturvakt og fór í veikindaleyfi

Theódór Skúli Sig­urðs­son brann fyrir lækn­is­fræði, vildi allt fyrir sjúk­linga sína gera en hafði hvorki aðstæður né úrræði til þess. Hann átti æ erf­ið­ara með að slíta sig frá vinnu, þar til hann lenti í heim­speki­legu sam­tali um til­gang lífs­ins við mann deyj­andi konu, og þar með var það ákveðið, hann yrði að skipta um kúrs. Þau Kristín Sig­urð­ar­dóttir ræða streitu, aðferðir til að takast á við hana og lær­dóm­inn.

Stimplaði sig út af næturvakt og fór í veikindaleyfi

Theódór Skúli Sig­urðs­son, sér­fræð­ingur í barna­svæf­inga- og gjör­gæslu­lækn­ingum á Land­spít­ala og for­maður Félags sjúkra­hús­lækna, fór í þriggja mán­aða leyfi í fyrra vegna streitu. Botninum náði hann í tengslum við alvar­leg veik­indi móður sinnar, sem var langt gengin með krabba­mein og komin inn á hjúkr­un­ar­heim­ili. „Hún var í raun að bíða eftir dauð­anum. Þetta var mjög erfitt og lang­dregið ferli, en ég vildi vera hjá móður minni. Það steypti mér end­an­lega fram af brún­inni. Allt annað fékk að láta undan, fjöl­skylda, vinna, rann­sóknir, allt annað,“ útskýrir hann. „Ég beið skip­brot.“

Hann var á næt­ur­vakt þegar eig­in­maður konu sem lá fyrir dauð­anum á gjör­gæslu tók hann tali. „Um miðja nótt lentum við í heim­speki­legum umræðum um lífið og til­ver­una, hvernig allt breyt­ist á einu augna­bliki og hvað skiptir raun­veru­lega máli í líf­inu. Ég kláraði síðan næt­ur­vakt­ina, skrif­aði tölvu­póst til yfir­lækn­is­ins og lýsti kuln­un­ar­ein­kennum. Ég sagð­ist þurfa að taka mér hlé, því …

Kjósa
46
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þuríður Þráinsdóttir skrifaði
    Gangi þér vel Theó­dór
    0
  • Hlynur Vilhjálmsson skrifaði
    Ríkisstjórnin er að eyðileggja heilbrigðiskerfið okkar með einkavinavæðingu.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár