„Hann var ekki að kaupa aðgengi að mér þegar hann lánaði mér pening“

Katrín Lóa Kristrún­ar­dóttir þótt­ist heppin þegar henni var tjáð af vinnu­veit­anda sínum, Helga Vil­hjálms­syni í Góu, að hann gæti lánað henni fyrir útborgun í íbúð. Hún hefði þó aldrei þegið slíkt lán ef hún hefði vitað hvað það hefði í för með sér en Katrín Lóa lýsir því að eftir lán­veit­ing­una hafi hún þurft að sitja undir kyn­ferð­is­legri áreitni Helga svo mán­uðum skipti. Helgi biður Katrínu Lóu afsök­unar á fram­ferði sínu.

„Hann var ekki að kaupa aðgengi að mér þegar hann lánaði mér pening“
Hefði aldrei þegið lánið hefði hún vitað afleið­ing­arnar Katrín Lóa segir að eng­inn komi heill út úr kyn­ferð­is­legu áreiti. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ef ég hefði bara vitað þetta þegar ég sam­þykkti, ég hefði frekar búið á göt­unni sko. Heldur en að ganga í gegnum þetta.“ Þetta segir Katrín Lóa Kristrún­ar­dóttir um það sem hún lýsir sem afleið­ingum þess að hún þáði lán frá vinnu­veit­anda sínum, lán fyrir útborgun í íbúð.

Vinnu­veit­andi Katrínar Lóu var Helgi Vil­hjálms­son, Helgi í Góu, en hún vann á þessum tíma í sjoppu sem hann á, Skalla á Selfossi, í sama hús­næði og KFC sem Helgi er einnig eig­andi að. Það sem Katrín Lóa lýsir hér að framan, það sem var svo slæmt að hún hefði heldur viljað búa á göt­unni, er að eftir hennar frá­sögn hóf Helgi að áreita hana kyn­ferð­is­lega eftir að hún hafði þegið umrætt lán. Í yfir­lýs­ingu sem Helgi sendi Stund­inni biður hann Katrínu Lóu afsök­unar á fram­ferði sínu. 

Biðst afsök­unarHelgí í Góu biður Katrínu Lóu afsök­unar í …
Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Elías Sigurðsson skrifaði
    Þá væntanlega endurgreiðir hún lánið án tafar til að skera á þetta samband.
    -10
  • Thordis Malmquist skrifaði
    skelfilega eru sumir fullorðnir menn tæpir í dómgreind og skilningi á því hve ljótt er að notfæra sér aðstöðumun sinn og vald. Er Helgi búin að gleyma því hve sárt er að missa? Ef stúlkan missti föður sinn ung þarf hún ekki á því að halda að maður sem gæti verið faðir hennar eða afi, notfæri sér og brjóti á trausti hennar. Hve ömurlegt er það?
    13
  • Birgir Lúðvígsson skrifaði
    Þvílíkur viðbjóður sem þessi maður er!
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár