Pálminn úr höndum Framsóknar?

Eftir ákvörðum Vinstri grænna um að sitja í minni­hluta á kom­andi kjör­tíma­bili og úti­lokun Pírata á Sjálf­stæð­is­flokknum og Sós­í­alista á sam­starfi við hann og Viðreisn, er lítið annað í stöð­unni en meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Pírata, Við­reisnar og Fram­sóknar.

Pálminn úr höndum Framsóknar?
Mögu­leik­arnir ekki enda­lausir Snúin staða virð­ist vera uppi í Reykja­vík um myndun meiri­hluta. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Fram­sókn­ar­flokkur, Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn er eina stjórn­ar­mynstrið sem stendur til boða í Reykja­vík, haldi allir flokkar sig við fyrri yfir­lýs­ingar um úti­lok­anir. Það er önnur staða en blasti við í gær þegar Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virt­ist ráða ferð­inni. 

Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn hafa bund­ist böndum í þeim meiri­hluta­við­ræðum sem fram undan eru. Saman fara þessir flokkar með níu full­trúa og þurfa á tveimur til við­bótar til að mynda meiri­hluta. Sós­í­alistar, sem hafa tvo full­trúa, hafa úti­lokað sam­starf við Viðreisn og Píratar úti­lokað sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Vinstri græn ætla að standa utan meiri­hluta og eini full­trúi Flokks fólks­ins dugir ekki til. Fram­sókn­ar­flokkur hefur fjóra full­trúa og er því eini kost­ur­inn fyrir gömlu meiri­hluta­flokk­anna. 

Það virð­ist þó líka vera eini val­kostur Fram­sókn­ar­flokks­ins. Með sex full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks­ins vantar tvo upp á að mynda meiri­hluta. Eini full­trúi Flokks fólks­ins myndi ekki duga til og Sós­í­alistar hafa úti­lokað sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Viðreisn, sem ekki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2022

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár