Barist um borgina: Áherslur og átakalínur

Ellefu fram­boð bjóða fram til borg­ar­stjórnar fyrir kosn­ing­arnar sem fram fara í dag, 14. maí. Stóru átaka­lín­urnar sem greina má í kosn­inga­á­herslum flokk­anna eru einkum mis­mun­andi áherslur í hús­næð­is­upp­bygg­ingu, þar sem deilt er um hvort þétta skuli byggð eða nema ný lönd, og í sam­göngu­málum þar sem ekki ríkir sam­staða um hvort lögð verði áhersla á upp­bygg­ingu almenn­ings­sam­gangna eða upp­bygg­ingu sem þjóni einka­bílum. Í öðrum mála­flokkum ber almennt minna á milli.

Barist um borgina: Áherslur og átakalínur

Dagvistun og skólamál

Framsókn (B)

  • Biðlistum eftir leik­skóla­plássum verði eytt. Sveigj­an­leiki í opn­un­ar­tíma leik­skóla verði auk­inn.
  • Dag­for­eldra­kerfið verði eflt.
  • Skólar borg­ar­innar verði bættir og grunn­stoðir þeirra tryggðar.

Viðreisn (C)

  • 5 ára börn fái gjald­frjálsan leik­skóla 6 tíma á dag.
  • Öll börn fái leik­skóla­pláss við 12 mán­aða aldur.
  • Stærri vinnu­staðir geti rekið leik­skóla.
  • Grunn­skólar verði gjald­frjálsir óháð rekstr­ar­formi.
  • Samþætta á skóla- og frí­stunda­starf.

Sjálfstæðisflokkur (D)

  • Öll börn fái leik­skóla­vist frá 12 mán­aða aldri.
  • Stærri vinnu­staðir geti rekið dag­gæslu eða leik­skóla.
  • Vægi list-, verk- og tækni­greina verði aukið í skóla­starfi.

Reykjavík, besta borgin (E)

  • Leik­skóla­gjöld verði lækkuð.
  • Biðlistum á leik­skóla verði eytt árið 2026.
  • Skóla­mál­tíðir lækki um 50%

Flokkur fólksins (F)

  • Biðlistum eftir fag­legri aðstoð frá Skóla­þjón­ustu Reykja­víkur verði útrýmt.
  • Máltíðir í …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár