Týndi árum á leigumarkaði

Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Samtaka leigj­enda, upp­lifir sig fastan á leigu­mark­aði. Hann hefur í tvígang reynt að festa kaup á íbúð frá því að hann byrj­aði að leigja eftir skilnað en hefur ekki tek­ist það. Baráttan, höfn­unin og upp­lifun sem hann lýsir sem áfalli segir hann hafa haft mikil og langvar­andi áhrif á and­lega heilsu hans og atgervi. Hann segir árin sem farið hafa í bar­átt­una ekki koma aftur og þess vegna séu þau í raun týnd.

Týndi árum á leigumarkaði

Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Samtaka leigj­enda á Íslandi, hefur verið á leigu­mark­aðnum í Reykja­vík síðan 2015, eða í sjö ár sam­fleytt, og á þeim tíma búið í fjórum íbúðum. Hann freist­aði þess í tvígang að kom­ast inn á sér­eigna­mark­að­inn, flutti inn á for­eldra sína og bjó á sófa á skrif­stofu sinni til þess að safna fyrir útborgun í eitt skiptið, en tókst það ekki. „Staðan sem ég hef verið í hefur haft mjög mikil og langvar­andi áhrif á and­lega heilsu mína og atgervi,“ segir hann og útskýrir svo: „Þessi streita sem fylgir því að vera í þess­ari stöðu veldur kvíða og hefur ollið mér getu­leysi til að ráð­ast á aðstæður mínar, vegna þess að í þessi skipti sem ég hef reynt að breyta veru­leika mínum þá hefur það ekki tek­ist. Það er mjög íþyngj­andi að finn­ast maður vera á stað sem maður vill alls ekki vera á og reyna af …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neyð á leigumarkaði

Missti leiguíbúðina við brunann
FréttirNeyð á leigumarkaði

Missti leigu­í­búð­ina við brun­ann

Sögu Nazari dreymir um að eign­ast íbúð en er að eigin sögn föst á óör­uggum leigu­mark­aði þar sem leigu­verð sé óbæri­lega hátt og lífs­gæði leigj­enda mun lak­ari en flestra íbúða­eig­enda, aðeins ungt fólk sem eigi efn­aða for­eldra geti keypt íbúð. Saga er nú í end­ur­hæf­ingu, meðal ann­ars vegna áfalls sem hún varð fyrir í sept­em­ber í fyrra en þá kvikn­aði í íbúð sem hún leigði.
Ráðherra segir leigumarkaðinn „óstöðugan og óáreiðanlegan“
FréttirNeyð á leigumarkaði

Ráðherra segir leigu­mark­að­inn „óstöðugan og óáreið­an­legan“

Nokkrir ráð­herrar og þing­menn segja leigu­mark­að­inn á Íslandi óör­uggan. „Mis­kunn­ar­laus“ segir einn. „Ónýtur“ segir annar. For­sæt­is­ráð­herra keypti íbúð því hún þurfti að flytja reglu­lega meðan hún var leigj­andi og mat­væla­ráð­herra segir leigu­mark­að­inn óstöðugan og óáreið­an­legan. Nokkrir keyptu íbúð til að tryggja öryggi fjöl­skyld­unnar.
Ástandið á leigumarkaði getur grafið undan geðheilsu leigjenda
FréttirNeyð á leigumarkaði

Ástandið á leigu­mark­aði getur grafið undan geð­heilsu leigj­enda

Elín Ebba Ásmunds­dóttir, sem hefur starfað að geð­heil­brigðs­málum í fjöru­tíu ár, segir að leigu­mark­að­ur­inn grafi undan geð­heilsu fólks. Kvíði leigj­enda yfir því að ná ekki endum saman og að þurfa jafn­vel að flytja gegn vilja sínum sé mjög skað­legur. Það sé umhugs­un­ar­efni að sumt fólk græði á óförum ann­arra og að yfir­völd leyfi það.
Kvartaði undan myglu og missti íbúðina
FréttirNeyð á leigumarkaði

Kvartaði undan myglu og missti íbúð­ina

Bryndís Ósk Odd­geirs­dóttir neyð­ist til að flytja með fjöl­skyldu sína úr íbúð sem hún hefur leigt frá því síð­ast­liðið haust. Hún segir leigusal­ann hafa rift samn­ingi við þau í kjöl­far þess að hún kvart­aði undan myglu í íbúð­inni. Hún telur að lítil við­brögð við fyr­ir­spurnum hennar um leigu­í­búðir helgist af því að mað­ur­inn hennar er af erlendum upp­runa.
Stjórnvöld hafa hlúð að tekjuháum og millistétt á kostnað leigjenda
FréttirNeyð á leigumarkaði

Stjórn­völd hafa hlúð að tekju­háum og milli­stétt á kostnað leigj­enda

Fólk á leigu­mark­aði er valda­laust gagn­vart leigu­sala varð­andi leigu­verð og hve lengi það fær að búa á sama stað. Ef ástand hús­næðis er slæmt treg­ast leigj­endur oft við að kvarta af ótta við að missa hús­næðið. Þetta kemur fram í nýlegri rann­sókn þar sem rætt er við tæp­lega 30 leigj­endur. Höfundar hennar segja stjórn­völd bera vissa ábyrgð á því að hópur fólks sé fastur á leigu­mark­aði gegn vilja sínum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár