Lögmannsstofan Logos stofnaði félag Moshenkys sem teygði sig í skattaskjól

Lög­fræði­skrif­stof­unni Logos er lýst sem „hjarta aflands­við­skipta“ Íslend­inga. Á tíma­bili kom um helm­ingur af tekjum lög­fræði­skrif­stof­unnar frá skrif­stof­unni í London, sem sá meðal ann­ars um við­skipti fyrir MP Banka og við­skipta­veldi Aleksand­ers Mos­hen­sky, hví­trúss­neska ólíg­ar­kans og kjör­ræð­is­manns Íslands, sem verið hefur stærsti ein­staki kaup­andi upp­sjáv­ar­fisks af íslenskum útgerðum.

Lögmannsstofan Logos stofnaði félag Moshenkys sem teygði sig í skattaskjól
MP Banki og Logos þjón­u­st­uðu Mos­hen­sky MP Banki, sem var með starf­semi í Austur-Evrópu, og lög­manns­stofan Logos þjón­u­st­uðu fyr­ir­tæki Aleksand­ers Mos­hen­sky.

Þann 5. apríl árið 2016, einum degi eftir að rúm­lega 20 þús­und manns mót­mæltu á Aust­ur­velli í Reykja­vík eftir opin­ber­anir um eign­ar­hald ráð­herr­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Bjarna Bene­dikts­sonar á félögum í Panama­skjöl­unum, hætti íslenska lög­fræði­skrif­stofan Logos í London að þjón­usta breskt félag með eign­ar­haldi sem end­aði í skatta­skjól­inu  Seychelles-eyjum. 

Nú liggur fyrir að þetta fyr­ir­tækja­net var í eigu hví­trúss­neska kaup­sýslu­manns­ins Alex­and­ers Mos­hen­sky, sem er náinn sam­verka­maður ein­ræð­is­herr­ans í Hvíta-Rúss­landi, Alex­and­ers Lukaschenko. Þetta fyr­ir­tækja­net hefur meðal ann­ars verið notað til að kaupa upp­sjáv­ar­fisk eins og mak­ríl, loðnu og gull­lax af íslenskum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum. 

Logos er stærsta lög­manns­stofa lands­ins. Fyr­ir­tækið er með aðsetur á Íslandi og í London. Logos hafði stofnað umrætt fyr­ir­tæki, Max Credit Invest­ments,  árið 2008. Í stofnskjölum félags­ins kemur fram að það hafi verið stofnað „fyrir og fyrir hönd MP banka“.  Max Credit Invest­ments var í eigu fyr­ir­tækja­nets, sem teygir sig til áður­nefndra Seychelles-eyja þar til fyrir tveimur árum. Eign­ar­haldið er nú íslenskt. 

Enginn end­an­legur eig­andi að félag­inu er hins vegar til­greindur í stofnskjölum þess heldur aðeins að það sé stofnað fyrir MP banka og að Logos sé umsýslu­að­ili félags­ins. Eign­ar­hald félags­ins var því vand­lega falið í skúffu aflands­þjón­ustu á Seychelles-eyjum.

MP banki, sem í kjöl­far hruns­ins og eig­enda­breyt­inga og sam­ein­inga varð hluti bank­ans sem í dag heitir Kvika, var á þessum tíma með tölu­verð umsvif í Austur-Evrópu. Einkum í Úkraínu, vegna tengsla stofn­anda bank­ans, Margeirs Pét­urs­sonar, þar í landi. Margeir stofn­setti síðar sjálfur banka í land­inu, Bank Lviv, eftir að hann missti yfir­ráðin yfir MP banka og rekur hann þann banka enn í dag. 

Árið 2020 færð­ist eign­ar­haldið á Max Credit Invest­ment Limited til íslensks fyr­ir­tækis fyrr­ver­andi starfs­manns MP banka, Karls Kon­ráðs­sonar, sem skráð er á heim­ili hans í smá­í­búða­hverf­inu. Karl var áður starfs­maður einka­banka­þjón­ustu MP banka í Litáen og komst þar í kynni við Alex­ander Mos­hen­sky. Hví­trúss­inn var þó að sögn ekki form­lega við­skipta­vinur MP banka, heldur munu tengsl hann við bank­ann hafa verið í gegnum Margeir Pét­urs­son, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. MP banki starf­aði hins vegar klár­lega fyrir Mos­hen­sky þar sem bank­inn og starfs­maður bank­ans hafði umsjón með félag­inu, Max Credit Invest­ments, sem var í form­legri eigu Mos­hen­skys þar til fyrir tveimur árum. 

Guð­mundur Oddsson, lög­maður hjá lög­manns­stof­unni Logos í London, svar­aði ekki spurn­ingum Stund­ar­innar um félagið Max Credit Invest­ment Limited. Eitt af því sem Stundin spurði Logos var hvort lög­manns­stofan hefði vitað hver væri end­an­legur eig­andi félags­ins. Guð­mundur var um tíma skráður stjórn­andi Max Credit Invest­ments Limited. 

Eignarhaldið líklega enn hvítrússneskt

Þrátt fyrir form­legt íslenskt eign­ar­hald á félag­inu þá er þetta félag, Max Credit Invest­ments, hins vegar að öllum lík­indum í end­an­legri eigu Aleksand­ers Mos­hen­sky, hví­trúss­neska kaup­sýslu­manns­ins. Mos­hen­sky á í veru­legum við­skiptum við íslensk útgerð­ar­fé­lög í gegnum umrætt félaga­net. Eins og Stundin hefur fjallað um þá er Mos­hen­sky kon­súll Íslands í Hvíta-Rúss­landi og hefur hann ýmiss konar tengsl við Aleksander Lukashenko, ein­ræð­is­herra í land­inu. 

Í breskum árs­reikn­ingum Max Credit Invest­ments er félagið alltaf sagt vera í eigu Alpha Mar Foundation en ekki er til­greint hver á þetta félag eða hvar það er. End­an­legt eign­ar­hald þessa fyr­ir­tækja­nets er í skatta­skjól­inu Seychelles. Þetta skatta­skjól er meðal ann­ars þekkt á Íslandi vegna þess að Panama­skjölin sýndu fram á að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hafði átt í félagi þar.

Þegar  Karl Kon­ráðs­son er spurður að því, eftir að hafa svarað því ját­andi að hafa keypt fyr­ir­tækið af félögum í eigu Alex­and­ers Moshenky, hver eigi Alpha Mar Foundation svarar hann Stund­inni á þá leið að blaðið eigi að spyrja „þá“. Miðað við svarið er Karl ekki bara að vísa til Alex­and­ers Moshenky heldur ein­hvers ann­ars líka. Engar opin­berar upp­lýs­ingar liggja hins vegar fyrir um end­an­legan eig­anda Alpha Mar Foundation. 

Átta ára þjón­ustaLogos í London þjón­u­staði fyr­ir­tækið Max Credit Invest­ments sem umsýslu­að­ili frá árinu 2008 til 2016. Guð­mundur Oddsson er lög­mað­ur­inn sem stofn­aði félag Mos­hen­skys.

Logos hætti að þjónusta félagið

Sá sem skrif­aði undir stofnskjöl Max Credit Invest­ments var lög­mað­ur­inn Guð­mundur Oddsson, stjórn­andi skrif­stofu Logos í London. Logos var umsýslu­að­ili þessa félags allt þar 5. apríl árið 2016 þegar annað fyr­ir­tæki, Jordan Cosec Limited, tók yfir sem umsýslu­að­ili félags­ins.  Guð­mundur varð um hríð lands­frægur í kjöl­far banka­hruns­ins árið 2008 vegna aðkomu sinnar og Logos að Al Thani-við­skipt­unum svoköll­uðu. Lög­mað­ur­inn var einn af þeim sér­fræð­ingum sem komu að því að koma við­skipt­unum á kopp­inn. 

Svo vill til að tveimur dögum áður en Logos hætti að vera umsýslu­að­ili Max Credit Invest­ments voru birtar fréttir á Íslandi úr Panama­skjöl­unum svoköll­uðu. Þann 3. apríl 2016 var birt við­tal Kast­ljóss­ins á RÚV og sænska rík­is­sjón­varps­ins við Sigmund Davíð Gunn­laugs­son þar sem hann var spurður um Wintris-málið svo­kall­aða. Panama­skjölin urðu að heims­frétt vegna leka frá panömsku lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca sem hafði þjón­u­stað mörg þús­und aðila sem vildu nýta sér slík félög af skatta­legum ástæðum. Sig­mundur Davíð hætti sem for­sæt­is­ráð­herra Íslands í kjöl­far þess­ara frétta og kosn­ingum til Alþingis var flýtt. 

Hvort upp­lýs­ing­arnar úr Panama­skjöl­unum leiddu til þess að Logos hætti að þjón­usta þetta félag sem teng­ist Mos­hen­sky er erfitt að segja. En tíma­setn­ingin vekur athygli.  

Fyrirtæki sem tengt hefur verið við Messi tók við

Eftir að Logos hætti að vera þjónstu­að­ili Max Credit Invest­ments tók fyr­ir­tæki sem heitir Jordan Cosec Limited við því. Þetta er fyr­ir­tæki í borg­inni Bristol í Suð­vestur Englandi. Ekki er að finna miklar upp­lýs­ingar um það á net­inu en um er að ræða fyr­ir­tæki sem býður upp á þjón­ustu við rekstur á félögum. Fyr­ir­tækið er meðal ann­ars tengt við meinta skatta­snið­göngu argent­ínska fót­bolta­manns­ins Leo Messi í einni frétt á net­inu. 

Til­gangur þeirrar þjón­ustu sem þetta fyr­ir­tæki veitir virð­isti vera, í stuttu máli, að dylja raun­veru­legt og end­an­legt eign­ar­hald á fyr­ir­tækjum og félögum með því að búa til milli­lið.  Í til­felli Leo Messi var fyr­ir­tækið Jordan Cosec Limited sagt vera eitt af nokkrum sem var notað í þessum til­gangi. 

Samkvæmt bresku fyr­ir­tækja­skránni er þetta fyr­ir­tæki Jordan Cosec enn þá umsýslu­að­ili Max Credit Invest­ments. 

Fyr­ir­tæki í Bristol sem tengt hefur verið MessiFyr­ir­tækið sem tók við sem þjón­ustu­að­ili Max Credit Invest­ment Limited hefur verið tengt við meinta skatta­snið­göngu knatt­spyrnu­manns­ins Lionel Messi hjá PSG.

Að þekkja viðskiptavin sinn

Sú stað­reynd að Logos í London var þjón­u­stað­ili þessa félags án þess að eign­ar­hald þess lægi fyrir er merki­leg fyrir margra hluta sakir. 

Umræðan um Panama­skjölin og aðra sam­bæri­lega leka um skatta­skjól leiddi til mik­illar umræðu um hvernig lönd heims­ins ættu að berj­ast gegn skatta­skjólum. Segja má að Panama­skjölin hafi leitt til þess að enn frekar stimpla notkun á skatta­skjólum sem nei­kvæða í hugum fólks. 

Einn af þeim sem tók þátt í þeirri umræðu var sænski skatta­skjóls­sér­fræð­ing­ur­inn Thorsten Fensby. Um notkun aflands­fé­laga sagði hann í við­tali við Frétta­tím­ann: „Aflands­fé­lög eru kannski ekki ólög­leg í strang­asta skiln­ingi. En ef maður notar félag í skatta­skjóli er mark­miðið alltaf að fara í kringum eitt­hvað, hvort sem það eru skattar, reglur um pen­inga­þvott, reglur á fjár­mála­mark­aði, sið­ferð­is­reglur, reglur um hags­muna­á­rekstra eða eitt­hvað slíkt. Ég ætla að koma með dæmi: Ef þú kaupir þér hjól þá lætur þú aflands­fé­lag ekki eiga hjólið ef mark­miðið er ekki að fara í kringum ein­hverjar reglur. Það væri hreint fárán­leg lykkja á leið­inni að því mark­miði að verða eig­andi hjóls­ins.“ 

Eitt af því sem Panama­skjölin áttu þátt í að kveikja aukna umræðu um voru svo­kall­aður KYC-reglur. Þessar reglur standa fyrir „know your client“ á ensku, eða „þekktu við­skipta­vin þinn“. Bankar, verð­bréfa­fyr­ir­tæki og lög­manns­stofur eiga og verða að vita hverjir end­an­legir eig­endur þeirra félaga sem þeir þjón­usta eru.

Annars eiga þessi fyr­ir­tæki ekki að þjón­usta umrædd félög. Ekkert í opin­berum upp­lýs­ingum um Max Credit Invest­ments bendir til að Logos hafi getað vitað hver var end­an­legur eig­andi félags­ins. Enda var MP banki líka annar milli­liður í við­skiptum félags­ins. 

Í reglum verð­bréfa- og fjár­mála­fyr­ir­tækja um könnun á raun­veru­legum eig­endum er alveg skýrt að afla þarf upp­lýs­inga um raun­veru­lega eig­endur félags. Um þetta segir til dæmis í verk­lags­reglum Arion banka: „Óheimilt er að stofna til við­skipta­sam­bands við aðila nema fram­kvæmd hafi verið full­nægj­andi áreið­an­leika­könnun í sam­ræmi við verk­lags­reglur um áreið­an­leikakann­anir (KYC).“ 

Stór hluti tekna Logos kom erlendis frá

Sú stað­reynd að Logos veitti félag­inu Max Credit Invest­ments þessa þjón­ustu á þessum tíma, allt fram til árs­ins 2016, þarf hins vegar ekki að koma á óvart þegar litið er til þess að slík þjón­usta við fyr­ir­tæki var mik­il­væg tekju­lind fyrir lög­manns­stof­una. Logos stofn­aði skrif­stof­una í Bret­landi á hápunkti íslenska góð­ær­is­ins fyrir banka­hrunið 2008: Árið 2006. Þá voru mörg íslensk fjár­fest­ing­ar­fé­lög í útrás til ann­arra landa og þurftu aðstoð fyr­ir­tækja­lög­fræð­inga og sér­fræð­inga erlendis. 

Í árs­reikn­ingum  Logos á árunum 2008 og 2009 kemur til dæmis fram að nærri 600 millj­ónir af tæp­lega 1.700 millj­óna tekjum félags­ins hafi komið utan Íslands. Árið 2009 var þessi upp­hæð enn þá hærri eða rúmur millj­arður af tæp­lega 2,6 millj­arða króna tekjum. Þannig komu á bil­inu 35 til 40 pró­sent af tekjum Logos frá skrif­stofu lög­manns­stof­unnar í London og einnig í Kaup­manna­höfn. 

Eignir félags­ins í London juk­ust hratt eftir stofnun þess 2006, fóru meðal ann­ars úr tæp­lega hálfri milljón punda upp í rúm­lega 3 millj­ónir punda árið 2008 og þaðan upp í tæp­lega fimm millj­ónir árið 2009. Árs­reikn­ingar Logos í London eru hins vegar ekki mjög ítar­legir heldur er um að ræða sam­an­dregna reikn­inga þar sem tekj­urnar koma til dæmis ekki fram með beinum hætti. 

Eins og einn við­mæl­andi Stund­ar­innar orðar það þá var Logos í London það sem hann kallar „hjarta aflands­við­skipta Íslands“  á þessum árum fyrir og eftir banka­hrunið árið 2008. Hluti þess­ara aflands­við­skipta sner­ist um að liðka til fyrir við­skiptum með fisk frá Íslandi sem hlykkj­uð­ust á papp­ír­unum um Bretland, Kýpur og Seychelles-eyjar í gegnum hví­trúss­neskt eign­ar­hald.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ólígarkinn okkar

Pólverjar æfir vegna ólígarkans okkar
FréttirÓlígarkinn okkar

Pól­verjar æfir vegna ólíg­ar­kans okkar

Áhrifa­miklir pólskir stjórn­mála­menn brugð­ust í vik­unni harka­lega við fréttum af því að ólíg­arki frá Belarús, sem ítrekað hefur verið reynt að beita við­skipta­þving­unum, vegna tengsla hans við ein­ræð­is­stjórn­ina í Minsk, hefði komið sér fyrir í Varsjá. Um er að ræða íslenska kjör­ræð­is­mann­inn í Belarús, sem fer allra sinna ferða í skjóli verndar sem sendi­full­trúi Belarús. Óásætt­an­legt er að hann sé full­trúi Íslands, segir sér­fræð­ingur.
Úkraínskt orkufyrirtæki flutt af nafni ólígarka í skúffufélag í Smáíbúðahverfinu
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Úkra­ínskt orku­fyr­ir­tæki flutt af nafni ólíg­arka í skúffu­fé­lag í Smá­í­búða­hverf­inu

Íslenskur banka­maður, Karl Kon­ráðs­son, er sagður hafa keypt helm­ings­hlut í úkra­ínsku orku­fyr­ir­tæki nýverið af Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manni Íslands og ólíg­arka í Belarús. Áður hafði Karl eign­ast breskt félag Mos­hen­skys fyrir slikk. Þá og nú átti Mos­hen­sky á hættu að sæta við­skipta­þving­unum, vegna tengsla sinna við stjórn­völd í Belarús.
Tugir milljarða í skattaskjól í gegnum Smáíbúðahverfið
RannsóknÓlígarkinn okkar

Tugir millj­arða í skatta­skjól í gegnum Smá­í­búða­hverfið

Kjör­ræð­is­maður Íslands í Belarús hefur á und­an­förnum árum flutt tugi millj­arða króna til dul­ar­fulls aflands­fé­lags á Seychelles-eyjum með aðstoð félags sem stýrt er úr heima­húsi Reykja­vík. Um er að ræða ávinn­ing af fisk­við­skiptum og sér­kenni­legum lán­veit­ingum til fyr­ir­tækja kjör­ræð­is­manns­ins í Austur-Evrópu, sem allt bendir til að séu gerð til að koma hagn­aði undan sköttum.
Gagnrýndi stjórnvöld fyrir hræsni í málefnum Belarús
FréttirÓlígarkinn okkar

Gagn­rýndi stjórn­völd fyrir hræsni í mál­efnum Belarús

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­kona Pírata sak­aði íslensk stjórn­völd og utan­rík­is­ráð­herra um hræsni, í umræðum um bar­áttu lýð­ræð­is­sinna í Belarús á Evr­ópu­ráðs­þing­inu í gær. Íslensk stjórn­völd gætu ekki látið sér nægja að sitja fyrir á myndum og segj­ast styðja stjórn­and­stöðu lands­ins, á sama tíma og þeir hefðu náinn sam­verka­mann ein­ræð­is­stjórn­ar­innar í emb­ætti kjör­ræð­is­manns.
Ólígarkinn okkar fastagestur í einkaþotum einræðisherrans
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Ólíg­ar­k­inn okkar fasta­gestur í einka­þotum ein­ræð­is­herr­ans

Alex­ander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi, hefur flogið hátt í þrjá­tíu sinnum með einka­þotum ein­ræð­is­stjórnar Lukashenko á síð­ast­liðnum ára­tug, sam­kvæmt gögnum sem lekið var nýlega. Eingöngu fjöl­skylda og nán­ustu banda­menn Aleksand­ers Lukashenko nota þot­urnar. Bæði þot­urnar og flestir far­þega hennar hafa verið sett í ferða­bann um Evrópu og Norður-Ameríku.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár