„Það eru mjög sterk tengsl á milli áfalla í æsku við skerta getu til að takast á við áskoranir daglegs lífs og geðræn einkenni. Því fleiri sem áföllin eru í æsku því sterkari eru tengslin,“ segir Unnur A. Valdimarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, um niðurstöður rannsóknarinnar Áfallasaga kvenna um tengsl áfalla í barnæsku við vanda á fullorðinsárum. Niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar í vísindatímaritinu eLife þann 3. febrúar.
Þriðjungur kvenna svaraði
Unnur segir að rannsóknin sé víðtæk og nái til um þriðjungs kvenna, sem svöruðu ítarlegum spurningalista rannsakenda á árabilinu 2018–2019. Samkvæmt niðurstöðunum hefur tæplega helmingur kvenna orðið fyrir fleiri en einu áfalli í æsku og um tíu prósent þeirra fleiri en fjögur.
„Þessi rannsókn er sérstök að því leyti að við erum að nálgast heila kvenþjóð, það eru þrjátíu prósent kvenna sem svara. Þetta endurspeglar kvenþjóðina mjög vel, með tilliti til aldurs, menntunar, tekna og búsetu,“ segir hún. „Þetta …
Athugasemdir