Þurfti að sigrast á sorginni eftir skilnað

Guðbjörg Ósk Frið­riks­dóttir upp­lifði mikla sorg og van­líðan í kjöl­far skiln­aðar árið 2005. Hún seg­ist hafa gengið í gegnum djúpa van­líðan í heilt ár en síðan fór hún að byggja sig upp and­lega og lík­am­lega og fór mark­visst í að finna ham­ingj­una á nýjan leik.

Þurfti að sigrast á sorginni eftir skilnað

Guðbjörg Ósk Frið­riks­dóttir varð fyrir gríð­ar­legu nið­ur­broti þegar hún skildi við mann­inn sinn árið 2005 og greinir hér frá því hvernig hún náði að byggja sig upp að nýju. „Ég var búin að byggja ham­ingju mína á því að eiga mann og börn; eða fjöl­skyldu. Virði mitt náði bara utan um það. Eftir skiln­að­inn leið mér ofboðs­lega illa. Mér fannst ég vera einskis virði og ömur­leg. Mér fannst mér hafa alger­lega mis­tek­ist þar sem ég hefði ekki einu sinni getað haldið fjöl­skyld­unni saman. Ég held að margir upp­lifi þessar til­finn­ingar í kjöl­far skiln­aðar,“ segir Guðbjörg Ósk, sem er kölluð Ósk. „Mér leið eins og ég myndi aldrei geta treyst á sjálfa mig aftur af því að þetta mistókst. Þetta var það sem ég var búin að ákveða að ég ætl­aði að gera vel og vand­lega allt lífið og ég ætl­aði bara að takast á við þau vanda­mál sem kæmu upp …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár