Framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs vissi af plastinu en aðhafðist ekkert

Í tölvu­póstum milli Ólafs Kjart­ans­sonar, fram­kvæmda­stjóra Úrvinnslu­sjóðs, og Leif Karlson, fram­kvæmda­stjóra sænska endu­vinnslu­fyr­ir­tæk­is­ins Swerec, kemur skýrt fram að þegar árið 2020 hafi Ólafur haft vit­neskju um að mikið magn íslensks plasts væri geymt í vöru­skemmu í Svíþjóð „Vona að þetta sjái um blaða­mann­inn,“ var það sem Leif skrif­aði um tölur um end­ur­vinnslu­hlut­fall plasts frá fyr­ir­tæk­inu. Þær tölur reynd­ust rangar.

Framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs vissi af plastinu en aðhafðist ekkert

Ný gögn sem Stundin hefur undir höndum sýna að Ólafur Kjart­ans­son, fram­kvæmda­stjóri Úrvinnslu­sjóðs, hafði fulla vit­neskju um íslenska plastið í vöru­húsi í smá­bænum Påryd um einu og hálfu ári áður en sjóð­ur­inn brást við.

Stundin greindi nýverið frá því að allt að 1.500 tonn af íslensku plasti, sem íslenskir neyt­endur flokk­uðu og Úrvinnslu­sjóður greiddi tæpar hund­rað millj­ónir króna fyrir að senda í end­ur­vinnslu, væri að finna í vöru­hús­inu og fyrir utan það. 

Úrvinnslu­sjóður hefur sent sænska end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæk­inu Swerec bréf þar sem þess er kraf­ist að íslenska plastið verði sótt og því komið í réttan far­veg. Hver sá far­vegur verður er ekki nákvæm­lega vitað, en plastið er orðið mjög gam­alt. Það hefur legið óhreyft í vöru­hús­inu og á lóð þess í um fimm ár. Sér­fræð­ingar sem Stundin hefur rætt við segja að litlar líkur séu á því að íslenska plastið verði nokkurn tím­ann end­ur­unnið vegna þess hversu gam­alt það er orðið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Endurvinnsla á Íslandi

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár