Ýtt undir offramleiðslu á alþjóðlegum ráðstefnum um hlýnun jarðar

Ráð­stefnur þar sem fjallað er um lofts­lags­mál sem þús­undir eða jafn­vel tug­þús­undir sækja losa mikið magn loft­teg­unda sem valda hlýnun jarðar. Flugið er stór þáttur en líka mat­seð­ill­inn og ýmis varn­ingur. Um 1.500 gestir á ráð­stefn­unni Hring­borð Norð­ur­slóða, eða Arctic Circle, fengu gjafir sem fram­leiddar voru í Kína og Taívan. Umhverf­is­stjórn­un­ar­fræð­ingur segir að gagn­semi ráð­stefna þar sem fjallað er um þá vá sem mann­kynið stendur frammi fyrir þurfi að vera meiri en skað­semin.

Ýtt undir offramleiðslu á alþjóðlegum ráðstefnum um hlýnun jarðar

Und­ir­bún­ingur fyrir lofts­lags­ráð­stefn­una í Glasgow stendur nú sem hæst en hún verður haldin dag­ana 31. októ­ber til 12. nóv­em­ber næst­kom­andi. Eins og aðrar lofts­lags­ráð­stefnur Sam­ein­uðu þjóð­anna ber þessi heitið COP sem stendur fyrir Conference of the Parties, það er að segja ráð­stefna aðild­ar­ríkja Sam­ein­uðu þjóð­anna.  Glasgow-ráð­stefnan er í dag­legu tali kölluð COP26 því hún er sú tuttug­asta og sjötta í röð ráð­stefna Lofts­lags­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna. Á ráð­stefn­unni í París árið 2015, eða COP21, komust þjóðir heims að sam­komu­lagi um lofts­lags­mál. Par­ís­ar­sátt­mál­inn svo­kall­aði mark­aði því tíma­mót í alþjóða­sam­starfi í lofts­lags­málum. Nú tæpum sex árum eftir Par­ís­ar­fund­inn er ljóst að enn eiga þjóðir heims langt í land með að ná þeim yfir­lýstu mark­miðum sínum að halda hlýnun jarðar vel undir tveimur gráðum á Celsíus. 

Eins og á fyrri lofts­lags­ráð­stefnum Sam­ein­uðu þjóð­anna eru miklar vænt­ingar gerðar til þeirrar sem hefst innan fárra daga í Glasgow. Alok Sharma, for­seti …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Mér finnst umræðan tala of lítið um að loka framleiðsluhringum. Við þurfum að sjá til þess að framleiðsla sé lokaður hringur þannig að framleidd vara fari aftur inn í einhvern annan framleiðsluhring. Við verðum að viðurkenna að efnahagslíf okkar byggist líka á sóun. Við fögnum því að matvælaframleiðsla skili arði og þá hugsum við ekkert um hvort maturinn er borðaður eða honum er hent. Við fögnum því að flugfélögin á Íslandi skili arði og þá skiptir ekki máli hvort þau flytja gesti á umhverfisráðstefnur eða ferðamenn til að skoða landið okkar. Umhverfisráðstefnur skila kanski ekki miklum árangri en án þeirra gerist ekkert. Og munum: Þeir sem borða morgunmat á ráðstefnu borða líka morgunmat heima hjá sér.
    0
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Auðvitað þarf að gæta þess að takmarka "umhverfistúrisma" eins og hægt er. Ráðstefnur eru að einhverju leyti umhverfistúrismi. Hins vegar þufum við á Íslandi að huga að því að allur túrismi er álag á umhverfið en við þurfum túrisma til að standa undir lífsstíl okkar. Verslun milli landa er ábatasöm fyrir alla sérstaklega fyrir íslendinga en hún hefur flutninga í för með sér og eykur útblástur CO2. Málið er að finna lágmarkið fyrir hverja hringrás og sérhver umræða um það er gagnleg.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Arctic Circle-ráðstefnan

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár