Sjávarútvegurinn fær sérmeðferð í hringrásarhagkerfi stjórnmálanna

Veið­ar­færi verða und­an­þegin úrvinnslu­gjaldi, ólíkt öllum öðrum vörum sem sam­kvæmt lögum eiga bera úrvinnslu­gjald, í nýsam­þykktum lögum um hringrás­ar­hag­kerfi. Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi beita sér gegn því í nýjum samn­ingi að missa sér­stöð­una. For­svars­menn þeirra neita að koma í við­tal vegna máls­ins.

Íslenskir stjórn­mála­menn hafa komið ítrekað í fjöl­miðla und­an­farið, þá sér­stak­lega í kringum kosn­ing­arnar, og rætt mik­il­vægi hringrás­ar­hag­kerf­is­ins. Boðaðar eru breyt­ingar á lögum sem muni auka end­ur­vinnslu hér á landi og gera Ísland að fyr­ir­mynd­ar­ríki þegar það kemur að þessa mik­il­væga máli sem hefur áhrif á lofts­lags­breyt­ingar.

Undanþága sjávarútvegsins

Einn iðn­aður virð­ist ætla að fá að sleppa við þessar aðgerðir stjórn­valda, sá iðn­aður er sjáv­ar­út­veg­ur­inn. Veið­ar­færi verða und­an­þegin úrvinnslu­gjaldi, ólíkt öllum öðrum vörum sem sam­kvæmt lögum eiga að bera úrvinnslu­gjald, sam­kvæmt nýsam­þykktum lögum um hringrás­ar­hag­kerfi. Með því sleppur sjáv­ar­út­veg­ur­inn við að greiða hund­ruð millj­óna króna í úrvinnslu­gjald. Und­an­farin 15 ár hefur sjáv­ar­út­veg­ur­inn kom­ist hjá því að borga millj­arða króna í úrvinnslu­gjald til rík­is­ins vegna sér­samn­ings sem Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi gerðu við ríkið.

Þá hefur sjáv­ar­út­veg­inum tek­ist að sann­færa stjórn Sorpu um að lækka verð­skrá sína á urðun veið­ar­færa, á sama tíma og Sorpa til­kynnti fyrir stuttu um …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár