„Þarf þetta allt að vera til í póstum milli manna?“

Ný gögn sem eru undir í rann­sóknum héraðs­saksóknara og namibískra yfirvalda varpa ljósi á hversu víðtæk þekking var um mútu­greiðslur og háttsemi Samherja í Namibíu innan útgerðar­risans. Frjáls­lega var talað um mútu­greiðslur og hótanir í skrif­legum samskiptum lykil­stjórnenda. Þorsteinn Már Baldvinsson fékk stöðugar upplýsingar um gang mála.

Áður óbirt gögn innan úr Samherja sýna hversu víðtæk þekking var um mútu­greiðslur til hátt­settra og vel tengdra Namibíu­manna til að verða fyrir­tækinu úti um verðmætan fisk­veiðikvóta í Namibíu. Talað er opinskátt um að greiða mútur og tölvu­póstar sem eru undir í rannsókn íslenskra og namibískra yfirvalda sýna hvernig undirmenn Þorsteins Más Baldvins­sonar, forstjóra og þá aðal­eiganda útgerðar­risans, héldu honum stöðugt upplýstum um þróun mála í Namibíu. Gögnin gefa líka til kynna að Þorsteinn hafi kynnt starfsemina fyrir stjórn Samherja.

Þessi nýju gögn sýna líka að Þorsteinn Már átti fjölmarga fundi, fleiri en áður hefur verið greint frá, í eigin persónu með „hákörlunum“, namibísku ráða- og áhrifa­mönnunum, sem nú sitja bak við lás og slá í Namibíu og bíða þess að koma fyrir dóm vegna ákæru um mútuþægni. Þá afhjúpast þær aðferðir sem starfs­menn útgerðarinnar notuðu til að halda samskiptum sínum leyndum og viðhorf Þorsteins Más til þess að …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • OS
    Olgeir Sigmarsson skrifaði
    Bravó!

    Kominn tími á alvöru fréttamennsku. Haldið áfram á sömu braut, ekki veitir af aðhaldi frá fjölmiðlum.
    0
  • Alexandra Briem skrifaði
    En ótrúlega ömurlegt framferði hjá þessu fólki. Ekki vottur af siðferði eða sómakennd.

    Kjósum ríkisstjórn sem við treystum til að tryggja að þetta mál og önnur sambærileg verði rannsakað til fullnustu.
    0
  • FSK
    Fríða S. Kristinsdóttir skrifaði
    Takk fyrir þessar upplýsingar um mjög svo ógeðfellt mál Samherja gagnvart Namibíu.
    Vel unnið hjá ykkur rannsóknarblaðamenn Stundarinnar.
    0
  • Tímabærar skýringar, ef réttar, á sóðaskap viðskipta íslendinga á fyrirtækjasviði, lögfræðinga, bankastofnana sem og stjórnmálamanna. Sjálfsagt ekki öll kurl til grafar komin en þetta lítur svæsið ut. Takk takk
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Hef enga athugasemd að senda ykkur. Mér finnst þetta bara einstaklega vel af hendi leyst .
    Loksins kemur sannleikurinn í ljós.
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Loksins, loksins.!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ný Samherjaskjöl

FréttirNý Samherjaskjöl

Skuggi Baldvins hjá Samherja í Namibíu

Hlutverk Baldvins Þorsteins­sonar, sonar Þorsteins Más Baldvins­sonar, hjá útgerðar­félaginu Samherja, hefur ekki legið alveg ljóst fyrir á liðnum árum. Hann hefur borið hina ýmsu starfs­titla og jafnvel stýrt félagi sem Samherji hefur keypt en á sama tíma alltaf líka verið með puttana í útgerðinni á bak við tjöldin. Þetta sýna rann­sóknar­gögnin í Samherja­málinu í Namibíu þar sem nafn Baldvins kemur það mikið fyrir að ætla má að hann sé eins konar aðstoðar­forstjóri föður síns hjá Samherja.

16 mín. lestur

FréttirNý Samherjaskjöl

KPMG breytti skýrslu um völd Þorsteins Más vegna „óánægju“ hans

Endur­skoðenda­fyrirtækið KPMG breytti skýrslu sinni um stjórnenda­strúktúr Samherja­samstæðunnar eftir að Þorsteinn Már Baldvinsson lýsti yfir óánægju með drög að skýrslunni. Embætti héraðs­saksóknara hefur yfirheyrt starfs­mann KPMG, sem sá um skýrslu­gerðina, sem vitni og er ljóst að ákæru­valdið hefur mikinn áhuga á valdsviði Þorsteins Más innan Samherja.
AfhjúpunNý Samherjaskjöl

Jón Óttar sagðist ekki skyldugur til að „fela þetta“ fyrir Samherja í Namibíu

Eitt af því sem Jón Óttar Ólafsson, ráðgjafi Samherja, gerði ítrekað fyrir útgerðar­félagið var að reyna að stuðla að því að mútu­greiðslurnar til ráða­mannanna í Namibíu færu leynt. Jón Óttar sagðist ekki bera skylda til að fela þessar greiðslur en hélt samt áfram að gera það í rúm þrjú ár eftir að hann hóf störf hjá Samherja í Namibíu.

9 mín. lestur

AfhjúpunNý Samherjaskjöl

Banka­stjóri og stjórnar­maður Íslands­banka liðkuðu til fyrir viðskiptum Samherja í Namibíu

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, fundaði með stjórnar­manni og banka­stjóra Íslands­banka, Birnu Einars­dóttur, um aðstoð við að stunda fisk­veiðar í Namibíu. Fundurinn leiddi til þess að Samherji fékk meðmæla­bréf sem sent var til Bernhard Esau sjávar­útvegs­ráðherra. Birna Einars­dóttir segir að hún hafi einungis verið að aðstoða viðskiptavin bankans og að hún hafi aldrei vitað til hvers fundurinn leiddi.

11 mín. lestur

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár