Á ég að drepa Emil?

Síðari heims­styrj­öldin var nýhafin og helstu hers­höfð­ingjar Þjóð­verja voru svo vissir um að allt myndi enda með ósköp­unum að þeir hugs­uðu um fátt annað en hvernig þeir gætu komið For­ingj­anum úr valda­stóli og helst fyrir katt­ar­nef í leið­inni.

Á ég að drepa Emil?

Þessi grein er óbeint fram­hald af flækju­sögu sem birt­ist fyrir þrem vikum: Vélráð í Venlo: Svik við For­ingj­ann?

***

Franz Halder rann kalt vatn milli skinns og hör­unds. Hann var mættur til vinnu sinnar eldsnemma hinn 10. nóv­em­ber 1939 – veður var þung­búið, hvasst og dimmt og það var kalt. Halder var kom­inn á hálf­kar­aða skrif­stofu sína í nýjum aðal­stöðvum þýska her­ráðs­ins í miklu neð­an­jarð­ar­byrgi sem var verið að grafa í þorp­inu Zossen, 20 kíló­metra fyrir sunnan Berlín.

Þegar Þjóð­verjar réð­ust á Pólland tveimur mán­uðum fyrr og Bretar og Frakkar svör­uðu með stríðs­yf­ir­lýs­ingu, þá var fram­kvæmdum við byrgið flýtt og nú þegar var flest til reiðu til að stjórna þaðan stríðs­rekstri Þjóð­verja.

Mannrán í Venlo

Þar lék Halder stórt hlut­verk því þessi hálfsex­tugi hers­höfð­ingi var yfir­maður for­ingja­ráðs þýska hers­ins, Chef des Gener­al­sta­bes des Heeres, og því í raun þriðji æðsti maður hers­ins þá um …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Eyþór Dagur skrifaði
    Gaman að lesa þetta. Væri gaman að fá umfjöllun um Rauðu Khmerana í kjölfar frétta um síðasta eftirlifandi leiðtoga þeirra fyrir 2 dögum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár