„Krónískar hamfarir“ á Landspítalanum

Starfs­menn Land­spít­al­ans lýsa því yfir að neyð­ar­á­stand hafi mynd­ast á sumum deildum spít­al­ans vegna álags og mann­eklu. Starfs­menn bráða­mót­tök­unnar lýsa vinnu­að­stæðum sem stríðs­á­standi og aðrir starfs­menn spít­al­ans og jafn­vel heilsu­gæsl­unnar lýsa því hvernig álagið færir sig þangað.

„Krónískar hamfarir“ á Landspítalanum
„Það fær mjög á starfs­fólkið að þurfa að vinna við þessar aðstæður“ Bráða­læknir á bráða­mót­töku segir að það fái ofboðs­lega á starfs­menn að geta ekki veitt sjúk­lingum full­nægj­andi lækn­is­þjón­ustu. Mynd: Heiða Helgadóttir

 Á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans leita þeir sem þurfa á bráðri lækn­is­þjón­ustu að halda. Þeir sem hafa slasast eða veikst og þurfa aðstoð án tafar. Flest höfum við leitað þangað, ann­að­hvort því við höfum sjálf slasast eða veikst eða fylgt okkar nán­ustu þangað. Við leitum þangað á okkar verstu stundum, þegar við erum hrædd og þegar eitt­hvað mikið amar að. Þeir sem taka á móti okkur eru bráða­læknar, hjúkr­un­ar­fræð­ingar, sjúkra­liðar og aðrir starfs­menn deild­ar­innar sem reyna hvað þeir geta að koma okkur til hjálpar á þessum verstu stundum.

Vinnur á hamfarasvæði

Einn þeirra sem tekur á móti okkur er Hjalti Már Björns­son bráða­læknir. Hann er við­kunn­an­legur að sjá og það er ekki að sjá á honum að hann sé við það að örmagn­ast þótt hann vinni í aðstæðum sem hann lýsir sjálfur að lík­ist stríðs- og hörm­ung­ar­svæðum.

Eins og að mæta á ham­fara­svæðiHjalti Már Björns­son …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Spítalinn er sjúklingurinn

Léttir að heilbrigðisráðherra ætlar að skoða réttarstöðu heilbrigðisstarfsfólks
FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Léttir að heil­brigð­is­ráð­herra ætlar að skoða rétt­ar­stöðu heil­brigð­is­starfs­fólks

Ásta Kristín Andr­és­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur varð meyr við að lesa frétt­ar­til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­inu þess efnis að heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið að taka til skoð­unar rétt­ar­stöðu heil­brigð­is­starfs­fólks í tengslum við til­kynn­ingar og rann­sókn alvar­legra atvika í heil­brigð­is­þjón­ustu. Ásta er eini heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn á Íslandi sem hefur fengið rétt­ar­stöðu sak­born­ings vegna starfs síns.
Missti allt úr höndunum eftir sýknudóm
ViðtalSpítalinn er sjúklingurinn

Missti allt úr hönd­unum eftir sýknu­dóm

Ásta Kristín Andr­és­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur er eini heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn á Íslandi sem hefur verið ákærð fyrir mann­dráp af gáleysi í starfi. Lög­reglu­rann­sókn, ákæran, sem og máls­með­ferðin, tóku mikið á Ástu sem lýsir með­ferð máls­ins sem stríði. Þrátt fyrir að hafa hlotið sýknu í mál­inu hefur stríðið setið í henni, leitt hana á dimma staði þangað til að hún „missti allt úr hönd­unum“.
Yfirfull bráðamóttaka gat ekki tekið á móti sjúklingi í hjartastoppi
FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Yfirfull bráða­mót­taka gat ekki tekið á móti sjúk­lingi í hjarta­stoppi

Helga Rósa Más­dóttir, deild­ar­stjóri bráða­mót­töku Land­spít­al­ans, stað­festir í sam­tali við Stundina að sjúk­lingi í hjarta­stoppi var vísað frá bráða­mót­tök­unni yfir á Hjarta­gátt spít­al­ans vegna þess að bráða­móttakan var full. Skráð hefur verið atvik vegna máls­ins. „Við erum að hafna deyj­andi fólki,“ segir áhyggju­fullur starfs­maður.
Veikt fólk innilokað í gluggalausu rými
VettvangurSpítalinn er sjúklingurinn

Veikt fólk inni­lokað í glugga­lausu rými

Á þeim þremur mán­uðum sem liðnir eru frá því að starfs­fólk bráða­mót­tök­unnar sendi frá sér hjálp­ar­kall þar sem það sagð­ist lifa ham­farir hefur lítið sem ekk­ert verið aðhafst til að bæta starfs­að­stæður þeirra. Ef eitt­hvað er þarf það að hlaupa enn hraðar og mann­rétt­indi sjúk­linga eru brotin að mati bráða­læknis sem fylgdi blaða­manni í gegnum deild­ina. Aðstæður á vett­vangi voru slá­andi.
Áhyggjur af því að komandi kosningar hafi áhrif á samstöðu almennings
FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Áhyggjur af því að kom­andi kosn­ingar hafi áhrif á sam­stöðu almenn­ings

Hjalti Már Björns­son, bráða­læknir á Land­spít­al­anum, segir að hann og annað heil­brigð­is­starfs­fólk hafi áhyggjur af því að það „muni skorta á sam­stöðu fólks til að takast á við þetta með sama hætti og hefur verið gert hingað til“. Þá seg­ist hann einnig hafa áhyggjur af sam­stöðu almenn­ings í ljósi þess að kosn­ingar séu á næsta leiti og að stjórn­mála­menn lýsi and­stöðu sinni við ráð­legg­ingar sótt­varna­læknis.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár